Í gærkvöldi spilaði ÍA í Inkasso-deild kvenna
þegar liðið heimsótti Augnablik
á Kópavogsvöllinn. Bæði lið voru að berjast í neðri hluta deildarinnar svo ljóst var að hvorugt liðið ætlaði að gefa neitt eftir í leiknum.
Liðin mættu ákveðin til leiks og baráttan var í fyrirrúmi í leiknum. Augnablik náði að skora mark snemma leiks en að öðru leyti var liðið ekki að skapa sér mörg hættuleg færi gegn sterkri vörn ÍA. Skagastelpur fengu nokkur álitleg tækifæri en náðu ekki að nýta þau. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Augnablik.
Í seinni hálfleik héldu Skagastelpur áfram að sækja og reyna að jafna metin. Þrátt fyrir ágætar tilraunir náðist ekki að koma boltanum í netið. Augnablik beitti skyndisóknum eftir því sem leið á leikinn og náði að bæta við marki undir lok leiksins. Augnablik vann því leikinn 2-0.
Næsti leikur ÍA er við Aftureldingu
en leikurinn fer fram föstudaginn 13. september nk.
Eyjólfur Vilberg Gunnarsson
Framkvæmdastjóri
Sími: 856 6524
eyjolfur@ia.is
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Skrifstofu-og verkefnastjóri KFÍA
Sími: 858 7361
palli@ia.is