Fyrri hluti aðalfundar fyrir árið 2025

Fyrri hluti aðalfundar KFÍA fyrir árið 2025 fór fram í gær, 11. nóvember.
Fín mæting var á fundinn þar sem dagskrá var eftirfarandi:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Farið yfir helstu lykiltölur og lýsandi tölfræði sumarsins í innra og ytra starfi félagsins
- Kosning þriggja manna í barna- og unglingaráð til tveggja ára sömu ár og formaðurráðsins er kosinn, en þriggja manna þau ár sem formaður ráðsins er ekki kosinn.
- Þjálfarar meistaraflokka gera upp ný yfirstaðið tímabil
- Formaður barna- og unglingaráðs fer yfir starf og árangur yngri flokka sumarsins og framkvæmd Norðurálsmótsins
- Önnur mál.
Breytingar verða á stjórn Barna- og unglingaráðs.
Þar kveðja Örn Arnarson og Aðalheiður Rósa Harðardóttir. KFÍA þakkar þeim kærlega fyrir samstarfið og óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
Í stað þeirra koma inn í ráðið Laufey Jóhannsdóttir og Svava Mjöll Viðarsdóttir.
Barna- og unglingaráð félagsins:
Anna María Þórðardóttir – formaður
Arna Björk Ómarsdóttir, ritari
Almar Viðarsson
Eggert Kári Karlsson
Laufey Jóhannsdóttir
Ólafur Valur Valdimarsson
Svava Mjöll Viðarsdóttir
Aðalstjórn félagsins helst óbreytt og er eftirfarandi:
Eggert Herbertsson – formaður
Linda Dagmar Hallfreðsdóttir - varaformaður
Lilja Gunnarsdóttir - ritari
Anna María Þórðardóttir – formaður Barna- og unglingaráðs
Ármann Smári Björnsson
Ellert Jón Björnsson
Jóhannes H. Smárason
Lára Dóra Valdimarsdóttir
Sturlaugur Haraldsson
Að auki fékk Ingi Þór Sigurðsson viðurkenningu fyrir að hafa leikið 100 leiki fyrir félagið en hann náði þeim áfanga á tímabilinu.






















