Eineltismál
ÍA telur mjög mikilvægt að öllum líði vel í leik og starfi innan félagsins og að sá grundvallarréttur, að fá að vera óáreittur, sé virtur. ÍA leggur áherslu á að stuðla að jákvæðum samskiptum þar sem hver og einn sé ábyrgur fyrir orðum sínum og gjörðum. Starfsfólk og sjálfboðaliðar eiga þannig að gæta vandvirkni og samviskusemi og koma fram af umhyggju, heiðarleika og virðingu gagnvart öllum þeim sem starfað er með eða fyrir.
ÍA leggur einnig ríka áherslu á að starfsfólk og sjálfboðaliðar séu fyrirmyndir þátttakenda og sýni góða hegðun og gott fordæmi, jafnt í starfi sem utan þess. Jafnframt telur ÍA mikilvægt að stuðlað sé að heilbrigðu, uppbyggjandi og vönduðu starfi með börnum og unglingum.
Fyrirbyggjandi aðgerðir
Mikilvægt er að börn séu alin upp við jákvæða athygli. Þau læri að setja sig í spor annarra, sýni umburðarlyndi og beri virðingu fyrir öðrum. Nauðsynlegt er fyrir starfsfólk ÍA að gera sér grein fyrir því að það tekur þátt í uppeldi barna og ungmenna. Þannig er hlutverk starfsmanna m.a. að fylgjast vel með samskiptum barna og ungmenna og gera foreldrum strax viðvart ef grunur leikur á að um einelti sé að ræða. Góð og náin samvinna milli starfsmanna og foreldra er grundvöllur þess að börnum og ungmennum líði vel í starfi. Mikilvægt er að börn og iðkendur láti starfsfólk og foreldra vita ef þau verða fyrir eða verða vitni að einelti, stríðni, deilum eða öðrum ágreiningi.
Starfsfólk þarf handleiðslu og fræðslu um aðferðir til að styðja við jákvæða framkomu og hegðun barna og ungmenna. Starfsfólkið sjálft þarf einnig að gæta að sér. Fullorðnir bera ábyrgð á hegðun sinni og framkomu og eru fyrirmyndir barnanna. Til þess að meta staðarbrag og starfsanda er gott að leggja reglulega fyrir kannanir/spurningar um líðan og ánægju þátttakenda, starfsfólks og sjálfboðaliða. Einnig leggur ÍA ríka áherslu á að starfsfólk og sjálfboðaliðar eigi kost á námskeiðum þar sem fjallað er um mannréttindi, jafnrétti og lýðræði.
ÍA hefur sett á fót ráðgjafahóp um aga og einelti sem mun aðstoða og leiðbeina í aga- og eineltismálum sem verða ekki leyst á auðveldan og farsælan hátt af starfsfólki.
ÍA mun gefa út sameiginlegar siðareglur fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða, sem og alla iðkendur. Öllum ber að kynna sér þessar reglur og fylgja þeim þannig að þeir sem taka þátt í starfinu geti notið sín á jákvæðan hátt.
Skilgreining eineltis
Einelti er endurtekið ofbeldi þar sem einn eða fleiri níðast á eða ráðast endurtekið á ákveðinn einstakling. Einelti er ofbeldi og félagsleg útskúfun sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þolandann og gerandann. Einelti á sér stað á milli tveggja einstaklinga eða einstaklings og hóps. Einelti birtist með ýmsum hætti, t.d. að þolandi verður fyrir stöðugri stríðni á einn eða annan hátt, illu umtali, hann er gerður að aðhlátursefni, honum sýnd vanþóknun, útskúfun og hæðst er að honum með ýmsu móti eða verið með stöðugar aðfinnslur.
Einelti getur falið í sér að þolandanum finnist að margir, jafnvel flestallir í hópnum séu á móti honum þótt það þurfi í reynd alls ekki að vera þannig farið. Ræða þarf við börn og ungmenni um samstöðu og að vera aldrei þögult vitni að stríðni eða einelti. Finnist einhverjum að verið sé að stríða honum eða leggja hann í einelti verður hann að láta vita foreldra eða þjálfara vita af því. Það er ávallt huglægt mat þolanda sem er mælikvarði á hvar mörkin í samskiptum liggja.
Allir, sem starfa innan ÍA, þurfa að halda vöku sinni. Mikilvægt er að starfsfólk hvetji börn og ungmenni til þess að láta foreldra eða starfsfólkið vita, verði þau fyrir endurtekinni stríðni eða ef þau verða vör við stríðni eða deilur milli einstaklinga. ÍA vill fá að vita ef brotið er á einhverjum á staðnum. Öðruvísi er ekki hægt að taka á málinu með markvissum og faglegum hætti.
Dæmi um birtingarmyndir eineltis
Einelti getur birst í mörgum myndum, andlegum og líkamlegum, leyndum og ljósum.
Andlegt einelti getur oft verið afar dulið:
- Sýnd eru ýmis svipbrigði sem lýsa t.d. hroka eða fyrirlitningu, glott, augngotur eða augum ranghvolft. Baktal, hvísl, látið sem einstaklingurinn sé ekki á staðnum. Útilokun, upplýsingum haldið frá einstaklingi eða hann hunsaður.
Háð og grín:
- Hæðst er að útliti, líkams- eða klæðaburði, siðum, venjum, trú, húðlit, hjálpartækjum eða fötlun.
- Rafrænt einelti er þegar neikvæðar sögur, frásagnir, lygar eða meiðandi myndir eru settar á netið:
- Facebook, Twitter, Instagram, SMS eða YouTube, með skrifum og myndbirtingum.
Líkamlegt ofbeldi:
- Þegar sparkað er í einstakling, hann sleginn, hrækt á hann eða honum hrint.
Annað:
- Þegar komið er illa fram við einstakling með öðrum hætti, t.d. eigur eru faldar eða eyðilagðar.
Vísbendingar um að einstaklingi líði illa, að hann sé hræddur og að honum finnist sér ógnað
- Þegar einstaklingur er ólíkur sjálfum sér, sýnir einkenni eða hegðun sem hann hefur ekki sýnt áður og sem gefur til kynna að honum líði illa.
- Tekið er eftir að einstaklingur er dapur, niðurdreginn, óttasleginn og/eða var um sig.
- Líkamlegir áverkar, marblettir, eymsl sem einstaklingur á erfitt með að skýra.
- Einstaklingur forðast ákveðnar aðstæður, vill halda sig til hlés, einangrar sig frá hópnum eða leitar í skjól fullorðinna.
- Einstaklingur á erfitt með að einbeita sér, áhugi hefur dvínað, getu og annarri færni hefur hrakað.
- Áberandi er að einstaklingur nýtur sín ekki þar sem hann er staddur.
Þeir sem teljast vera í áhættuhópi
Þolendur stríðni og eineltis eru oft:
- Einlægir og grandalausir einstaklingar, hlédrægir, viðkvæmir, varkárir og hæverskir.
- Einstaklingar sem skera sig úr á einhvern hátt:
- Hafa t.d. sérstök áhugamál, venjur, stíl eða eru sérstakir á annan hátt, t.d. í tali eða framkomu.
- Þolendur eineltis sem eru brenndir af fyrri reynslu og búast oft við neikvæðum viðbrögðum. Börn sem hafa brotna sjálfsmynd eiga frekar á hættu að mistúlka aðstæður og lesa umhverfið sér í óhag.
Gerendur eineltis:
- Vanlíðan af einhverjum orsökum er líklega helsti hvati neikvæðrar hegðunar og framkomu gagnvart öðrum.
- Erfiðleikar á heimili, í skóla eða í frístundastarfi gætu verið orsök.
- Sumir gerendur eineltis hafa áður verið þolendur og óttast að lenda aftur í þeim sporum.
- Ekki er alltaf ásetningur að særa og meiða.
- Sum börn gera ekki greinarmun á hvar mörkin liggja í samskiptum.
- Gerandi eineltis gerir sér oft far um að sýnast sterkur og öruggur.
- Stundum er um að ræða hæfileikaríkan einstakling sem er félagslega sterkur og vinsæll meðal jafnaldra.
- Gerandi er ekki alltaf með áhangendur eða fylgismenn sem taka þátt í eineltinu.
Sumir gerendur glíma við truflandi persónueinkenni:
- Pirring
- Öfund
- Reiði
- Skort á samkennd
- Áhrifagirni
- Taka ekki ábyrgð, kenna öðrum um ófarir sínar
- Glíma við röskun af einhverju tagi
- Hlíta ekki fyrirmælum
- Eru árásargjarnir og ögrandi
Afleiðingar eineltis
- Brotin sjálfsmynd, ofurviðkvæmni, kvíði, depurð, sjálfsásökun og öryggisleysi.
- Versnandi andleg líðan veldur oft skapgerðar- og jafnvel persónubreytingum.
- Einstaklingur, sem óttast að vera strítt eða lagður í einelti, heldur sig til hlés og/eða heldur sig nærri fullorðnum.
- Reynir að forðast aðstæður þar sem honum finnst að ógn steðji að honum.
Tilkynna einelti
ÍA gerir allt sem mögulegt er til að leysa aga- og eineltismál á farsælan hátt þannig að öllum geti liðið vel í starfi sínu innan ÍA. Allir eiga að fá að standa jafnfætis óháð aldri, kyni, trú og þjóðerni.
Til þess að fá upplýsingar um einelti eða tilkynna það þá er það gert hér: www.samskiptaradgjafi.is
Leiðbeinandi verklagsreglur











