Æfingagjöld Knattspyrnufélags ÍA
Skráning er hafin fyrir haustönn 2026
Á Abler má finna skráningu og hvetjum við forráðamenn að ganga frá skráningu sem allra fyrst!
Nánari upplýsingar veitir yfirþjálfari félagsins, Gísli Freyr Brynjarsson

SKILMÁLAR OG UPPLÝSINGAR UM ÆFINGAGJÖLD KFÍA
Innheimta á árgjaldi verður í tveimur greiðslum. Önnur greiðslan er frá
janúar til loka ágúst (átta mánuðir) og hin frá
september til desember (fjórir mánuðir). Hægt er að sjá dreifingu gjaldana í töflunni hér fyrir ofan.
Þátttökugjöld, kostnaður þjálfara við skemmtimót (ekki Íslandsmót eða faxaflóamót) sem og ferðakostnaður vegna leikja er ekki innifalin í æfingagjöldum.
Keppnisbúningar
Allir iðkendur í 7.flokki og eldri eiga rétt á einni keppnistreyju, merktri iðkanda, annað hvert ár og ÍA peysu árið á móti. Treyjan er innifalin í æfingagjöldum. Ef iðkandi er að fá búning í fyrsta sinn þá þarf að hafa samband við skrifstofu KFÍA til þess að fá uppgefið keppnisnúmer (númer aftan á treyjuna).
Systkinaafsláttur
Systkinaafsláttur er 12% og kerfið sér um að reikna afsláttinn eins og við á. Gott er að hafa í huga að þegar fleiri en eitt barn er skráð í Abler þá er best að byrja á því yngsta barninu sem er með lægsta æfingagjaldið þannig að systkinaafslátturinn nýtist sem best.
Lækkun æfingagjalda
KFÍA býður upp á leiðir til lækkunar á æfingagjöldum. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa félagsins.
Tómstundaframlag Akraneskaupstaðar
Tómstundaframlag Akraneskaupstaðar er fyrir öll börn á aldrinum 5 - 17 ára sem hafa lögheimili á Akranesi. Við skráningu í gegnum Abler er hægt að velja að nýta sér framlagið.
Framlagið er 40.200kr fyrir eitt barn
Sumarmót
KFÍA
KFÍA heldur tvö stór knattspyrnumót á hverju ári, Norðurálsmótið í júní og Gatorademótið í ágúst. Forráðamenn hafa tök á því að sinna sjálfboðavinnu og vinna á mótinu til lækkunnar á æfingagjöldum.
Greitt er 2.500kr per unna klukkustund.
Heimaleikir meistaraflokks
karla og kvenna
Forráðamenn hafa tök á því að vinna á leikjum meistaraflokks kvenna og karla til lækkunnar á æfingagjöldum. Vinnan snýst að gæslu, vinna í sjoppu og almenn aðstoð.
Greitt er 7.000kr, 10.000kr ef iðkandinn kemur með.











