Fyrri aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA 10.11.26
Frá fyrri hluta aðalfundar KFÍA
Fyrri hluti aðalfundar Knattspyrnufélags ÍA (KFÍA) fyrir árið 2026 fór fram miðvikudaginn 11. nóvember. Góð mæting var á fundinn. Á fundinum voru kynntar helstu lykiltölur og tölfræði úr innra og ytra starfi félagsins á liðnu sumri. Þá var farið yfir nýafstaðið keppnistímabil meistaraflokka félagsins.
Formaður barna- og unglingaráðs, ásamt yfirþjálfara, fór yfir starfsemi og árangur yngri flokka sumarsins auk framkvæmdar knattspyrnumóta á vegum félagsins.
Eggert Herbertsson var endurkjörinn formaður KFÍA til næstu tveggja ára. Þær Linda Dagmar Hallfreðsdóttir og Lilja Gunnarsdóttir voru endurkjörnar til næstu tveggja ára. Breytingar urðu á aðalstjórn félagsins þar sem Sturlaugur Haraldsson, Ármann Smári Björnsson og Lára Dóra Valdimarsdóttir létu af stjórnarstörfum. Í þeirra stað komu ný inn í stjórn Birkir Guðmundarson, Brandur Sigurjónsson og Erla Karlsdóttir. Félagið færir fráfarandi stjórnarmönnum kærar þakkir fyrir þeirra störf og framlag til félagsins og býður nýja stjórnarmenn hjartanlega velkomna til starfa.
Aðalstjórn KFÍA er nú þannig skipuð:
Eggert Herbertsson – formaður
Linda Dagmar Hallfreðsdóttir – varaformaður
Lilja Gunnarsdóttir – ritari
Anna María Þórðardóttir – formaður barna- og unglingaráðs
Brandur Sigurjónsson
Ellert Jón Björnsson
Jóhannes H. Smárason
Erla Karlsdóttir
Birkir Guðmundarson
Stjórn barna- og unglingaráðs félagsins helst óbreytt. Barna- og unglingaráð KFÍA er þannig skipað:
Anna María Þórðardóttir – formaður
Arna Björk Ómarsdóttir – ritari
Almar Viðarsson
Eggert Kári Karlsson
Laufey Jóhannsdóttir
Ólafur Valur Valdimarsson
Svava Mjöll Viðarsdóttir
KFÍA þakkar öllum þeim sem mættu á fundinn fyrir góða þátttöku og áhuga á starfi félagsins.
Fram undan eru spennandi verkefni og mun félagið áfram leggja áherslu á öflugt barna- og unglingastarf, metnaðarfullt starf meistaraflokka og áframhaldandi uppbyggingu knattspyrnunnar á Akranesi.























