Í kvöld spilaði ÍA í Pepsi Max deild karla
þegar liðið heimsótti FH
á Kaplakrikavöll.
Liðin mættu mjög ákveðin til leiks og mikil barátta var í leiknum. Skagamenn spiluðu fyrri hálfleikinn frábærlega og sköpuðu sér mörg góð marktækifæri sem á einhvern ótrúlegan hátt misfórust upp við mark FH. FH náði ekki að búa til mörg færi í fyrri hálfleik og ógnaði vörn ÍA sjaldan. Staðan í hálfleik var því markalaus.
Baráttan í seinni hálfleik var ekki minni. Skagamenn lágu meira til baka og beittu skyndisóknum en FH var mun meira með boltann án þess að skapa sér markverð færi. Undir lok leiksins náði FH að skora mark og sótti ÍA af krafti á lokamínútunum en þrátt fyrir góðar tilraunir náðu þeir ekki að jafna metin. FH vann því leikinn 1-0.
Skagamenn gerðu í hvorum hálfleik tilkall til þess að fá vítaspyrnu fyrir hendi og var það mjög augljóst í uppbótartíma þegar varnarmaður FH handlék boltann þegar ÍA átti möguleika á að jafna metin. Slakur dómari leiksins sá ekki ástæðu til að dæma vítaspyrnu sem reyndist ÍA dýrkeypt því hvert stig er mikilvægt í deildinni.
Næsti leikur ÍA er við Breiðablik
sem fer fram á Norðurálsvellinum næstkomandi sunnudag.
Eyjólfur Vilberg Gunnarsson
Framkvæmdastjóri
Sími: 856 6524
eyjolfur@ia.is
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Skrifstofu-og verkefnastjóri KFÍA
Sími: 858 7361
palli@ia.is