Skagamenn í æfingaferð í Cardiff í Wales
Meistaraflokkur karla hefur síðustu daga verið við æfingar í Cardiff í Wales en æfingaferðin er liður í undirbúningi liðsins fyrir komandi keppnistímabil sem hefst síðar í mánuðinum.Meistaraflokkur karla hefur síðustu daga verið við æfingar í Cardiff í Wales en æfingaferðin er liður í undirbúningi liðsins fyrir komandi keppnistímabil sem hefst síðar í mánuðinum.

Í dag lék liðið æfingaleik við lið University of South Wales og vann mjög öruggan 5-0 sigur. Mörk ÍA gerðu Albert Hafsteinsson , Tryggvi Hrafn Haraldsson , Steinar Þorsteinsson , Gonzalo Zamorano og Þórður Þorsteinn Þórðarson .
Í æfingaferðinni hefur ungverski markvörðurinn Adam Zima verið til reynslu en hann er 22 ára gamall. Hann fékk að spreyta sig í æfingaleiknum í dag og stóð sig með ágætum.
Strákarnir koma svo heim á morgun og þá hefst undirbúningur fyrir úrslitaleikinn gegn KR í Lengjubikarnum sem fer fram á Eimskipsvellinum á sunnudaginn kl. 19:15.






