Ingi Þór og Jóhannes Breki valdir á úrtaksæfingar U15

Ingi Þór Sigurðsson og Jóhannes Breki Harðarson hafa verið valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum hjá U15 karla.
Dagana 24.-28. júní verða haldnar úrtaksæfingar fyrir U15 karla á Akranesi. Umsjón með æfingunum hefur Lúðvík Gunnarsson , yfirmaður í hæfileikamótun KSÍ og þjálfari U15 landsliða karla og kvenna.
Dagskrá
Mánudagur 24.júní 14:30 Mæting á skrifstofu KSÍ/Laugardagsvöll. 14:45 Brottför frá KSÍ. 15:45 Komið á Akranes. 17:00 Æfing. 19:00 Kvöldverður. 22:00 Kvöldhressing og ró.
Þriðjudagur 25.júní 08:30 Morgunverður. 10:00 Æfing. 12:00 Hádegisverður 15:00 Leikur. 16:30 Miðdegishressing. 19:00 Kvöldverður. 22:00 Kvöldhressing og ró.
Miðvikudagur 26.júní 08:30 Morgunverður. 10:00 Æfing. 12:00 Hádegisverður og fyrirlestur. 15:00 Miðdegishressing. 19:00 Kvöldverður. 22:00 Kvöldhressing og ró.
Fimmtudagur 27.júní 08:30 Morgunverður. 10:00 Æfing. 12:00 Hádegisverður. 15:00 Leikur. 16:30 Miðdegishressing. 19:00 Kvöldverður. 22:30 Kvöldhressing og ró.
Föstudagur 28.júní 08:30 Morgunverður og frágangur. 10:30 Æfing. 11:30 Hádegisverður. 12:00 Brottför frá Akranesi. 12:45 Áætluð koma á skrifstofu KSÍ.





