ÍA leikur sinn 1000. leik í efstu deild
Á laugardag 7. maí leikur ÍA sinn 1000. leik í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu þegar félagið mætir Breiðablik kl. 14 á Norðurálsvelli. Allt frá 1946 þegar ÍA tók fyrst þátt í Íslandsmótinu í knattspyrnu hefur félagið leikið 999 leiki á efsta stigi og orðið meistari 18 sinnum, fyrst 1951 og síðast 2001. Í þessum 999 leikjum hefur ÍA farið með sigur af hólmi í 470 leikjum, 208 lyktaði með jafntefli og ÍA beið lægri hlut í 321 leik. ÍA hefur í þessum leikjum skorað 1.804 mörk en fengið á sig 1.380. Vinningshlutfallið er 57% ÍA í vil.
Á laugardag verður því merkur áfangi í sögu knattspyrnunnar á Akranesi þegar ÍA tekur á móti Breiðablik sem er í efsta sæti Bestudeildarinnar með fullt hús stiga. Skagamenn nær og fjær eru hvattar til að taka þátt með Knattspyrnufélagi ÍA í þessum tímamótum, halda upp á sögulegan áfangan og mæta á völlinn til að styðja ÍA til sigurs. Boðið verður upp á glaðning fyrir börnin í tilefni dagsins.
Eyjólfur Vilberg Gunnarsson
Framkvæmdastjóri
Sími: 856 6524
eyjolfur@ia.is
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Skrifstofu-og verkefnastjóri KFÍA
Sími: 858 7361
palli@ia.is