Framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA
Páll Ásgeirsson • January 26, 2023
ÍA leitar af nýjum Framkvæmdastjóra
Framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA
Knattspyrnufélag ÍA leitar að metnaðarfullum framkvæmdastjóra til að leiða félagið sem og sjá um samskipta og kynningarmál. Um er að ræða fjölbreytt starf sem byggir á miklum samskiptum við starfsmenn félagsins, iðkenndur á öllum aldri, sem og foreldra, aðstandendur, styrktaraðila og stuðningsmenn. Um er að ræða fullt starf. Framkvæmdastjóri heyrir beint undir stjórn félagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirumsjón með fjármálum og daglegum rekstri
Samningagerð og samskipti við samstarfsaðila
Öflun og viðhald styrktarsamninga
Eftirfylgni og innleiðing á stefnu og markmiðum félagsins
Yfirumsjón með leyfiskerfi KSÍ
Frumkvæði og nýsköpun við fjáröflun
Ábyrgð á öllum viðburðum félagsins s.s heimaleikjum
Ábyrgð á innleiðingu fyrirmyndar starfsmannastefnu og vinnustaðamenningar
Undirbúningur stjórnarfunda og eftirfylgni ákvarðanatöku stjórnar
Menntunar- og hæfniskröfur
Mikill áhugi á knattspyrnu og félagsstarfi
Háskólapróf eða reynsla sem nýtist í starfi
Reynsla af rekstri er æskileg
Reynsla af félagsstörfum er æskileg
Sjálfsstæði í vinnubrögðum og rík vinnusemi
Skipulags- og stjórnunarhæfileikar
Þjónustulund gagnvart skjólstæðingum – lausnamiðuð nálgun
Jákvæðni og frumkvæði í öllum málefnum félagsins
Vilji til að vinna með öllum kynjum
Hæfileiki til að tjá sig í rituðu og töluðu máli fyrir hönd félagsins

Félagsfundur um vallarmál KFÍA á Jaðarsbökkum. Á aðalfundi félagsins sem haldinn var í febrúar síðastliðnum var samþykkt að boða til sérstaks félagsfundar um vallarmál KFÍA á Jaðarsbökkum. Fundurinn verður haldinn í hátíðarsalnum á Jaðarsbökkum, þriðjudaginn 29. apríl kl. 18:00. Dagskrá fundar: 1. Ávarp stjórnar KFÍA 2. Ávarp formanns bæjarráðs 3. Samantekt áhugahóps um íþróttasvæðið á Jaðarsbökkum. 4. Umræður og fyrirspurnir

Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA verður haldinn mánudaginn 17. febrúar nk. kl. 20:00 í fundarsalnum í Íþróttamiðstöðinni að Jaðarsbökkum. Dagskrá verður skv. 8. grein laga félagsins sem finna má á heimasíðunni. Stjórn Knattspyrnufélags ÍA samþykkti ársreikning félagsins á stjórnarfundi 11. febrúar sl. og má finna slóð á hann hér að neðan. Ársreikningurinn verður borinn upp til samþykktar á aðalfundi sem og meðfylgjandi rekstraráætlun fyrir árið 2025. Þá er einnig birt ársskýrsla Knattspyrnufélags ÍA fyrir starfsárið 2024. Ársskýrsla 2024 Ársreikningur 2024 til samþykktar á aðalfundi Rekstraráætlun 2025

Jólahappdrætti Knattspyrnufélags ÍA er farið af stað! Sögulegt verðmæti vinninga er 2.704.398kr. Samtals verður dregið um 60 vinninga, 30 frábærir stakir vinningar og 30 veglegir pakkavinningar. Miðinn kostar litlar 2.500 kr og það er til mikils að vinna. Dregið úr seldum miðum á þrettándanum, 6. Janúar 2025. Við þökkum öllum kærlega fyrir stuðninginn. Áfram ÍA Hér má sjá uppfærða vinningaskrá!

Á aðalfundi félagsins í febrúar var tekin ákvörðun um að halda aðalfund í tvennu lagi, fyrri hluta aðalfundar fyrir 15. nóvember ár hvert og síðari hluta aðalfundar fyrir 20. febrúar ár hvert. Fyrri hluti aðalfundar Knattspyrnufélags ÍA verður haldinn miðvikudaginn 13. nóvember nk. kl. 20 í fundarsalnum í Íþróttamiðstöðinni að Jaðarsbökkum. Dagskrá verður skv. 8. grein laga félagsins sem má sjá á heimasíðu félagsins og er þessi: Kosning fundarstjóra og fundarritara Farið yfir helstu lykiltölur og lýsandi tölfræði sumarsins í innra og ytra starfi félagsins Kosning formanns stjórnar (annað hvert ár). (Kosning í ár) Kosning fjögurra manna í stjórn til tveggja ára sömu ár og formaður stjórnar er kosinn ,en þriggja manna auk formanns barna- og unglingaráðs þau ár sem formaður stjórnar er ekki kosinn. (Kosið um fjóra í stjórn og um formann barna- og unglingaráðs þar sem formaður er að taka við stöðu framkvæmdastjóra félagsins) Kosning formanns barna- og unglingaráðs (annað hvert ár). Kosning þriggja manna í barna- og unglingaráð til tveggja ára sömu ár og formaðurráðsins er kosinn, en þriggja manna þau ár sem formaður ráðsins er ekki kosinn. (kosið um þrjá í ráðið, eingöngu verið að kjósa formann vegna breytinga) Þjálfarar meistaraflokka gera upp ný yfirstaðið tímabil Formaður barna- og unglingaráðs/Yfirþjálfari yngriflokka fer yfir starf og árangur yngri flokka sumarsins og framkvæmd Norðurálsmótsins Önnur mál. Að loknum fyrri hluta aðalfundar skal aðalfundi frestað til síðari hluta hans.

Framkvæmdastjóraskipti hjá Knattspyrnufélagi ÍA Eyjólfur Vilberg Gunnarsson framkvæmdastjóri KFÍA, hefur sagt starfi sínu lausu vegna flutninga erlendis í lok tímabils. Nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn til félagsins, Ingimar Elí Hlynsson. Ingimar Elí kemur frá Icelandair þar sem hann hefur starfað sem sölustjóri. Hann hefur lokið BS námi í sálfræði & viðskiptafræði með áherslu á mannauðstjórnun. Ingimar Elí þekkir félagið vel en hann hefur m.a. starfað sem, leikmaður, þjálfari, setið í aðalstjórn og tók við hlutverki formanns barna- og unglingaráðs nú í vor. Ingimar Elí mun hefja störf hjá félaginu þann 1. desember þegar störfum hans lýkur hjá núverandi vinnuveitanda. Eggert Herbertsson, formaður Knattspyrnufélags ÍA; „Ég vil fyrir hönd Knattspyrnufélags ÍA þakka Eyjólfi fyrir gott samstarf og frábært starf þessi tvö tímabil og óska honum velfarnaðar í næstu verkefnum. Einnig vil ég bjóða Ingimar Elí velkominn til starfa. Ingimar hefur starfað í stjórn félagsins og þekkir það vel og verður lykilmaður í spennandi verkefnum félagsins á næstu misserum“ Eyjólfur Vilberg Gunnarsson: „Undanfarin tvö tímabil hafa verið lærdómsrík, árangursrík og skemmtileg. Félagið er á góðum stað í því uppbyggingarferli sem unnið er að og á ég von á að afrakstur þess komi í ljós á næstu árum. Ég hef kynnst mörgu afar duglegu og góðu fólki sem leggur mikið til félagsins og fundið hvernig hjarta Skagamanna slær. Ég er þakklátur fyrir þennan góða tíma og hlakka til að fylgjast með félaginu í framtíðinni. Áfram ÍA!“ Ingimar Elí Hlynsson „Ég er afar þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt af stjórn Knattspyrnufélags ÍA. Það eru mjög spennandi og metnaðarfull áform framundan sem ég er spenntur fyrir að vinna að ásamt öflugum hópi fólks sem kemur að starfi félagsins.“

Gullmerki ÍA Guðjón Þórðarson hlýtur gullmerki fyrir frábært framlag hans til knattspyrnunnar á Akranesi. Guðjón er margfaldur Íslands og bikarmeistari með ÍA sem leikmaður og þjálfari. Hann lék 392 leiki og skoraði 16 mörk ásamt því að þjálfa liðið til margra ára. Eins og allir vita þá kom Guðjón liðinu upp úr 1.deild árið 1991 og gerði liðið að Íslandsmeisturum árið eftir, sem má teljast einstakt afrek. Lið ÍA frá árinu 1993 var svo á dögunum valið besta lið síðustu 40 ára í íslenskri knattspyrnu á Vísi, lið sem gjör sigraði Íslandsmótið og sigraði einnig bikarkeppnina sama ár og var liðið kallað í grein á Vísi “hinir ósnertanlegu”. Á listanum á Guðjón tvö ÍA lið á topp 10 en liðið frá 1996 var einnig á listanum, sem varð einnig tvöfaldur meistari. Guðjón hefur staðið öðrum þjálfurum framar á Íslandi í áraraðir og þótti brautryðjandi í þjálfun. Hann hefur sýnt árangur sem erfitt er að leika eftir. Það er sannur heiður að heiðra Guðjón með gullmerki fyrir hans frábæra framlag til knattspyrnunnar á Akranesi