Bjarki Steinn gerir samning til þriggja ára við KFÍA
Bjarki Steinn Bjarkason endurnýjar samning sinn við KFÍA

Bjarki Steinn Bjarkason hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Knattspyrnufélag ÍA. Bjarki Steinn er fæddur árið 2000 og er uppalinn í Aftureldingu en hefur spilað með ÍA síðan 2018. Hann hefur spilað 26 leiki með félaginu og skorað í þeim þrjú mörk.
Aðspurður sagði Bjarki Steinn :„Ég er mjög ánægður með að gera nýjan samning við ÍA. Það er frábær stemning í hópnum og liðsheildin er mjög þétt. Tímabilið hefur byrjað ótrúlega vel og það er virkilega gaman að taka þátt í því.”
Knattspyrnufélag ÍA fagnar því að náðst hafi nýr samningur við Bjarka Stein og telur að hann verði einn af lykilmönnum liðsins á komandi árum.
„Það er stór áfangi að ungur og efnilegur leikmaður eins og Bjarki sé búinn að semja til lengri tíma við félagið. Þetta sýnir að hann er með metnaðinn í lagi og ætlar sér stóra hluti í framtíðinni.” sagði Sigurður Þór Sigursteinsson , framkvæmdastjóri KFÍA.






