Þórður Þorsteinn hættur með ÍA
Knattspyrnumaðurinn Þórður Þorsteinn Þórðarson og Knattspyrnufélag ÍA hafa komist að samkomulagi um lok á samningi Þórðar við félagið. „Eftir miklar vangaveltur höfum ég og Knattspyrnufélag ÍA ákveðið að nú skilji leiðir. Ég skil sáttur við klúbbinn minn þar sem ég hef alist upp og átt allan minn feril fram til þessa. Hvað tekur við er ekki ákveðið. Mig langar að þakka ÍA og öllum sem koma að klúbbnum koma og strákunum í meistaraflokki sérstaklega fyrir frábær ár. Stuðningsmönnum ÍA vil ég svo færa sérstakar þakkir fyrir stuðning og hvatningu öll þessi ár.“ segir Þórður Þorsteinn.
Knattspyrnufélag ÍA þakkar Þórði fyrir frábært framlag til knattspyrnunnar á Akranesi og óskar honum alls hins besta í framtíðinni.
Akranesi 24. júlí 2019
Knattspyrnufélag ÍA






















