Lög KFÍA

Lög Knattspyrnufélags ÍA


1. grein

Félagið heitir Knattspyrnufélag ÍA, skammstafað KFÍA. Aðsetur þess og heimili er á Akranesi.


2. grein

Markmið og tilgangur félagsins er að iðka knattspyrnu, efling knattspyrnu-, æskulýðs- og

félagsmála svo og að stuðla að bættri aðstöðu til iðkunar knattspyrnu á Akranesi.


3. grein

Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því að:

• Sjá iðkendum innan vébanda KFÍA fyrir góðri knattspyrnuþjálfun vel menntaðra

þjálfara.

• Standa fyrir og taka þátt í knattspyrnumótum.

• Halda uppi fræðslu og vönduðu félagslífi þar sem áhersla er lögð á heilbrigt líf og vinna

gegn vímuefnanotkun.

• Leggja áherslu á fagleg og góð vinnubrögð í uppeldisstarfi sínu, fræðslu og þjálfun.

• Standa fyrir nauðsynlegri uppbyggingu íþróttamannvirkja eða rekstri þeirra eftir því

sem ákveðið er hverju sinni.


4. grein

Félagi getur hver sá orðið sem óskar þess enda greiði hann félags- og/eða iðkendagjald. Sérstakt

félagatal skal haldið af skrifstofu. Tilkynningu um félagsaðild og úrsögn úr félaginu skal skila

skriflega til skrifstofu. Félagsgjald skal ákveðið á aðalfundi.


5. grein

Með stjórn félagsins fara:

• Aðalfundur.

• Stjórn félagsins.

Milli aðalfunda fer stjórn félagsins með stjórnun og stefnumótun þess innan ramma laga

félagsins. Undir stjórn starfar barna- og unglingaráð. Stjórn setur barna- og unglingaráði

starfsreglur og afmarkar starfssvið þess. Stjórn ræður framkvæmdastjóra, þjálfara m.fl. karla og

kvenna auk yfirþjálfara og felur framkvæmdastjóra ráðningar á öðrum starfsmönnum. Stjórn

annast gerð fjárhagsáætlunar fyrir félagið í samráði við framkvæmdastjóra og staðfestir öll

útgjöld sem ekki er gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun.

Stjórn félagsins er heimilt að skipa þriggja manna framkvæmdastjórn, formanns og tveggja

annarra stjórnarmanna, sem starfar með framkvæmdastjóra á milli stjórnarfunda.

Framkvæmdastjórn er heimilt að taka ákvarðanir sem varða félagið og rúmast innan

fjárhagsáætlunar. Þá er stjórn heimilt að skipa verkefnahópa til að sjá um einstök verkefni á

vegum félagsins.


6. grein

Stjórn félagsins skipa níu aðilar. Barna- og unglingaráð skipa sjö aðilar. Einnig skal kjósa þrjá

aðila í fagráð.

Kosning skal fara þannig fram:

a) Kosning formanns til tveggja ára í senn.

b) Kosning fjögurra manna í stjórn til tveggja ára sömu ár og formaður er kosinn, en þriggja

manna auk formanns barna- og unglingaráðs þau ár sem formaður stjórnar er ekki

kosinn.

c) Kosning þriggja manna í barna- og unglingaráð til tveggja ára sömu ár og formaður

ráðsins er kosinn, en þriggja manna þau ár sem formaður ráðsins er ekki kosinn.

d) Kosning þriggja manna í fagráð til eins árs í senn.

e) Kosning þriggja manna í kjörnefnd til eins árs í senn.

Komi til þess að aðili segi sig úr stjórn eða barna- og unglingaráði áður en kjörtímabili

viðkomandi lýkur, skal stjórn félagsins heimilt, að höfðu samráði við kjörnefnd, að skipa nýjan

aðila í stjórn eða barna- og unglingaráð til bráðabirgða fram að næsta aðalfundi.


7. grein

Aðalfundur hefur æðsta ákvörðunarvald í öllum málefnum félagsins.

Aðalfund skal halda í tvennu lagi og skal fyrri hluti hans fara fram eigi síðar en 15. nóvember ár hvert en síðari hluti hans eigi síðar en 20. febrúar ár hvert.

Til fundanna skal boða með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara og skulu fundirnir auglýstir með opinberum hætti með auglýsingu og á heimasíðu félagsins.​

Aðalfundur telst lögmætur ef löglega er til hans boðað og a.m.k. 20 félagar mæta á fundinn.​

Ef ekki mæta 20 félagar á fundinn skal boða til nýs fundar og telst hann löglegur ef löglega er til hans boðað.

Á milli aðalfunda skal vera starfandi þriggja manna kjörnefnd sem gerir tillögu til aðalfundar um skipun stjórnar og ráðs.​



8. grein

Dagskrá fyrri hluta aðalfundar skal vera eftirfarandi:​

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara​
  • Farið yfir helstu lykiltölur og lýsandi tölfræði sumarsins í innra og ytra starfi félagsins
  • Kosning formanns stjórnar (annað hvert ár).​
  • Kosning fjögurra manna í stjórn til tveggja ára sömu ár og formaður stjórnar er kosinn,en þriggja manna auk formanns barna- og unglingaráðs þau ár sem formaður stjórnar er ekki kosinn.​
  • Kosning formanns barna- og unglingaráðs (annað hvert ár).​
  • Kosning þriggja manna í barna- og unglingaráð til tveggja ára sömu ár og formaðurráðsins er kosinn, en þriggja manna þau ár sem formaður ráðsins er ekki kosinn.​
  • Þjálfarar meistaraflokka gera upp ný yfirstaðið tímabil​
  • Formaður barna- og unglingaráðs fer yfir starf og árangur yngri flokka sumarsins og framkvæmd Norðurálsmótsins
  • Önnur mál.​

Að loknum fyrri hluta aðalfundar skal aðalfundi frestað til síðari hluta hans.


Dagskrá síðari hluta aðalfundar skal vera eftirfarandi:

  • Skýrsla stjórnar.​
  • Ársreikningur.​
  • Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir komandi rekstrarár.​
  • Lagabreytingar.​
  • Kosning endurskoðunarskrifstofu.​
  • Kosning þriggja manna í fagráð.​
  • Kosning þriggja manna í kjörnefnd.​
  • Ákvörðun um félagsgjald.​
  • Heiðursviðurkenningar.​

Önnur mál.​​


Á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti úrslitum mála, nema þegar um er að ræða tillögur til

breytinga á lögum félagsins, en þær verða að samþykkjast af 2/3 atkvæðisbærra fundarmanna.

Kosningar skulu vera skriflegar, ef þess er óskað. Séu atkvæði jöfn við stjórnarkjör skal kosning

endurtekin. Verði atkvæði enn jöfn skal hlutkesti ráða.

Rétt til setu á aðalfundi  með atkvæðisrétt, tillögurétt og málfrelsi hafa allir skráðir félagar sem

greitt hafa félagsgjald til félagsins og eru skuldlausir við það.

Einungis lögráða félagsmenn eru kjörgengir til stjórnarstarfa eða setu í ráðum. 


9. grein

Aukaaðalfund má halda ef stjórn félagsins telur þess þörf eða ef ¼ skráðra félaga óskar eftir

því. Aukaaðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað sbr. 7. gr. Aukaaðalfundur getur

tekið ákvörðun um öll málefni félagsins, nema lagabreytingar. Stjórnarkosning skal þó ekki fara

fram á aukaaðalfundi nema réttkjörin stjórn sé af einhverjum ástæðum óstarfhæf og

skal umboð slíkrar stjórnar einungis ná fram að næsta aðalfundi


10. grein

Reikningar félagsins miðast við almanaksárið og skulu þeir endurskoðaðir og liggja frammi á

skrifstofu eigi síðar en sjö dögum fyrir síðari hluta aðalfundar.​



11. grein

Heimilt er stjórn félagsins að vísa hverjum þeim úr félaginu er brýtur lög þess, gerist sekur um

óprúðmannlega framkomu eða vinnur gegn hagsmunum þess. Ákvörðun stjórnar skal lögð fyrir

næsta aðalfund til staðfestingar.


12. grein

Félagið skal vera aðili að Íþróttabandalagi Akraness (ÍA) og leika undir nafni þess. Búningur

félagsins skal vera gul treyja, svartar buxur og svartir sokkar.


13. grein

Tillaga til slita á Knattspyrnufélagi ÍA þarf samþykki 4/5 hluta atkvæðisbærra manna á

aðalfundi eða aukaaðalfundi félagsins.Til þess að unnt sé að taka tillögu um slit félagsins á

aðalfundi eða aukaaðalfundi félagsins þarf tillaga um slíkt að koma fram í fundarborði.

Verði tillaga um slit samþykktu skulu eignir félagsins renna til Íþróttabandalags Akranes. 


14. grein

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi eða og þarf til þess samþykki 2/3

hluta fundarmanna. Tillögur um lagabreytingar skulu liggja frammi á skrifstofu eigi síðar en

sjö dögum fyrir aðalfund. Með samþykki 2/3 hluta aðalfundarmanna er

heimilt að taka fyrir á aðalfundi tillögu um breytingu á lögum félagsins.


15. grein

Lög þessi öðlast þegar gildi.


Samþykkt á aðalfundi þann 19. nóvember 2009, með breytingum á aðalfundi 18. febrúar 2020, aðalfundi 18. febrúar 2021 og aðalfundi 20. febrúar 2024.



Share by: