KAPP mótið 2026
Kappmótið er dagsmót fyrir stúlkur og drengi í 6. og 7. flokk. Mótið er haldið á þremur mismunandi helgum fyrir mismunandi aldur. Mótið er þannig sett upp að hver aldur er ekki lengur á staðnum en hámark 2 klukkustundir.
Mótið er spilað inn í Akraneshöllinni.
Þátttökugjald er 3.000 krónur á mann.
Greitt er inn á reikning 552-14-400883 kt: 500487 1279
Staðfesting á greiðslu sendist inn á netfang skagamot@ia.is
Spilaður er 7 manna bolti í 6. flokk karla en 5 manna bolti í hinum flokkunum.
Glaðningur er fyrir þáttakendur í lok móts.
Frekari upplýsingar aronp@ia.is
Mót fyrir 6. flokk drengja verður 15. febrúar
Mót fyrir 7. flokk drengja verður 15. mars
Mót fyrir 7. flokk stúlkna verður 3. október
Mót fyrir 6. flokk stúlkna verður 4. október
Mót fyrir 5. flokk stúlkna verður 1. nóvember

Sterkir Skagamenn
Sterkir Skagamenn er skemmtilegur félagsskapur sem hefur það að meginmarkmiði að vera kröftugur fjárhagslegur og félagslegur stuðningsaðili og bakhjarl KFÍA.
Árgjald félagsins er kr. 120.000,- , eða 10.000 kr. á mánuði, sem að öllu leyti er ráðstafað til stjórnar KFÍA.
Innifalið í árgjaldinu er miði á alla leiki meistaraflokks karla og kvenna, þar sem hver félagsmaður getur boðið með sér einum gesti. Þá mun félagsskapurinn standa fyrir móttökum fyrir leiki á Íslandsmóti og fleiri viðburðum sem ræðst af vilja félagsmanna.












