Fjáröflunarreglur

Fjáröflunarreglur Knattspyrnufélags ÍA

 

1.   Fjáraflanir allra flokka skulu vera á vegum flokksráðs eða iðkenda sjálfra, ef þeir eru 18 ára eða eldri. Í öllum fjáröflunum skal vera tilnefndur ábyrgðaraðili sem hefur það hlutverk að halda utan um pantanir, greiðslu, samskipti við birgja og önnur atriði sem tengjast fjáröfluninni.

 

2.   Áður en ráðist er í fjáröflun skal liggja fyrir samþykki frá skrifstofu félagsins. 
Leita skal samþykkis með eins góðum fyrirvara og unnt, tilgreina í hverju fjáröflun er fólgin og til hvaða verkefna er verið að efna til fjáröflun um.

 

3.   Áður en fjáröflun hefst, skal liggja fyrir hvernig ágóða af fjáröflun verður varið. Hvernig skipting fjár er ráðstafað er á forræði hvers flokks, en æskilegt er að ágóði af fjáröflunum sé merktur iðkanda sem tekur þátt í fjáröflun fremur en að um sé að ræða sameiginlegan sjóð. 
Flokksráð viðkomandi flokks ber ábyrgð á að upplýsingar um slíka skiptingu séu öllum kunnar enda hafi þær verið ræddar og samþykktar af þeim sem að söfnuninni standa og í samræmi við reglur félagsins.

 

4.   Allar fjáraflanir yngri flokka skulu vera í því formi að ákveðin gæði komi til afhendingar gegn gjaldi þ.e. að um einhverskonar sölustarfsemi sé að ræða eða að vinna sé innt af hendi. 
Ekki er heimilt að leita beint til fyrirtækja um beinan fjárstuðning þar sem slíkt getur stangast á við fjáraflanir félagsins til sameiginlegra verkefna, nema með samþykki stjórnar.

 

5.   Í lok hvers tímabils skal flokksráð skila inn til Barna- og unglingaráðs, yfirliti yfir fjáraflanir á fyrir fram ákveðnu formi, heildarsöfnun flokksins og til hvaða verkefna fjáraflanir náðu til.

 

6.   Einstaklingar sem starfa fyrir hönd Knattspyrnufélag ÍA við fjáraflanir skulu vera merktir félaginu við slík störf. (t.d. þegar labbað er í hús og vörur eru seldar)

 

7.   Fjáröflun skal miðast við að standa straum af beinum kostnaði vegna viðburðar, svo sem kostnaði við þátttöku í mótum, beinum ferða- og dvalarkostnaði, auk kaupa á sameiginlegum æfinga- og utan yfir fatnaði sem hópurinn hefur sammælst um. Eingöngu skal safnað fyrir kostnaði vegna iðkenda sjálfra og eftir atvikum fyrir fararstjóra og þjálfara.

 

8.   Þannig er óheimilt að safna fé til einkaneyslu í nafni félagsins. Til einkaneyslu telst öll önnur neysla en sem til er stofnað vegna verkefna og viðburða á vegum viðkomandi flokks og hafa verið rædd og samþykkt af iðkendum og/eða foreldrum.

 

9.   Í þeim tilfellum sem einstaklingur safnar umfram kostnað við þátttöku móta á árinu eða sameiginlegan æfingafatnað, rennur fjárhæð í sameiginlegan sjóð flokksins.
 

10.             Einstaklingar geta ekki fengið endurgreitt það sem safnast hefur þótt viðkomandi einstaklingur hætti við að taka þátt í þeim viðburði sem safnað er fyrir. Í slíkum tilvikum rennur fé sem merkt var viðkomandi einstaklingi í sameiginlegan sjóð flokksins. Í undantekningartilfellum er hægt að skoða þegar um er að ræða iðkanda sem á systkini i öðrum flokki í Knattspyrnufélagi ÍA, að hægt sé að færa upphæð sem safnast hefur yfir á flokksreikning systkina.


 

 

Ábyrgðarmenn fjáröflunar geta sótt um undanþágur frá reglum þessum. Stjórn Knattspyrnufélags ÍA er heimilt að veita undanþágur að fengnum meðmælum viðkomandi flokksráðs. Stjórn Knattspyrnufélags ÍA úrskurðar um öll ágreiningsmál sem upp kunna að koma í tengslum við safnanir á vegum félagsins og getur sett nánari reglur ef slíkt telst nauðsynlegt.


Share by: