· Innheimt verður árgjald, boðið verður uppá að dreifa greiðslum í 1-4 skipti. (Fjöldinn ræðst af upphæð)
· Boðið verður uppá val á milli þess að taka þátt í fjáröflunum eða ekki.
Afsláttur fyrir þátttöku í öllum fjáröflunum (3x pappírssala og Norðurálsmótið) er 32.000 kr,- á barn, sama hvort að það eru 1, 2, 3 eða 4 börn.
· Systkinaafsláttur verður fastur 6.000 kr,- á hvert barn
(12.000 kr,- fyrir 2 börn, 18.000 kr,- fyrir 3 börn o.s.frv.)
· Þátttaka á Norðurálsmótinu:
o 1 barn = 2 vaktir
o 2 börn = 3 vaktir
o 3 börn og fleiri = 4 vaktir
· Þátttaka í WC-sölunni:
o 1 barn = 3 pakkningar
o 2 börn og fleiri = 4 pakkningar
o Umfram pakkningar gefa 500 kr,- afslátt við móttöku.
· Krakkar í Boltaskólanum (8.flokkur) taka ekki þátt í fjáröflunum en fá engu að síður systkinaafsláttinn.
ATHUGIÐ: Ef fólk skráir sig með fullri þátttöku en tekur svo ekki þátt gjaldfellur strax sú upphæð sem fólst í Þötttökunni 20.000 kr,- fyrir Norðurálsmótið og 4.000 kr,- fyrir hverja WC-sölu, að viðbætum seðilgjöldum.
Afsláttur v/þátttöku, getur aldrei orðið hærri en nemur upphæð æfingagjalda eftir að systkinaafsláttur er reiknaður.