2. júní 2010
Foreldrafundur 7. júní kl 18:00 í Grundaskóla
Sæl öll sömul
Á mánudag, 7. júní, klukkan 18:00 verður fundur í Grundaskóla fyrir foreldra og forráðamenn drengja í 6. flokki.
Á fundinum verður rætt um Skagamótið en foreldrar þurfa að skrá sig í vinnu þar líkt og síðustu ár.
Eftir skráningu á vaktir verður fundur um Shellmótið þar sem rætt verður um mótið og allt sem þarf að vita vegna ferðarinnar þangað.
Mjög mikilvægt er að allir mæti sem geta unnið á Skagamótinu og auk þess er mjög mikilvægt að þeir sem eiga dreng sem er að fara á Shellmótið í Eyjum mæti og fái upplýsingar um mótið.
Sjáumst á mánudag í Grundaskóla (stofunni hans Sjonna í unglingadeild).
kv Sjonni
Til baka
|