25. maí 2010
Leikir á morgun miðv. 26. maí
Fyrsti leikurinn í Íslandsmótinu hjá okkur er á morgun miðvikudag 26. maí við Fjölni og Grindavík.
Íslandsmótið er með sama fyrirkomulagi og Faxaflóamótið var, leikið ýmist heima eða að heiman.
Á flestum leikdögum spila öll 5 liðin okkar, en þó er það oft þannig að C2 spila við annan andstæðing en ABCD liðin.
Miðvikudagur 26. maí.
ABCD lið spila utanhúss á gervigrasi við Egilshöll í Grafarvoginum gegn Fjölni.
C2 spilar í Akraneshöll við Grindavík.
A og C lið eiga að spila kl. 15:00. Mæting kl. 14:30.
B og D eiga að spila kl. 15.50. Mæting kl. 15.20.
Ég er búinn að hafa samband við skólana og óskaði eftir leyfi fyrir strákana ef þeir áttu að vera í tímum.
C2 á að spila kl. 17.00. Mæting kl. 16.30.
Ég mun ekki stýra c2 en fæ liðsstjóra.
Allir að undirbúa sig vel.
Borða vel í fyrramálið og í hádeginu. Nauðsynlegt að borða svo ávöxt kannski klukkutíma fyrir leik.
Mæta með legghlífar og vatnsbrúsa.
Látið mig vita ef einhver forföll verða hið snarasta í síma 8206833.
Til baka
|