Tilkynningar
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
8. júní 2010

ÍA 3 HK 4

Eftir að hafa tapað 2 fyrstu leikjunum á Íslandsmótinu í ár þá mættu stúlkurnar í 3. flokki til leiks gegn HK í dag staðráðnar í að bæta úr stigaleysinu. Enda var aðeins eitt lið á vellinum fyrstu 15 mínúturnar og staðan orðin 2-0 fyrir ÍA. Fyrra markið kom strax á 1. mínútu þegar Unnur tók hornspyrnu frá vinstri og sneri boltann beint í fjærhornið. Vel að verki staðið. Annað markið kom strax í kjölfarið á 3. mínútu eftir laglegt samspil sem hófst á stungusendingu frá Valdísi á Unni sem gaf fyrir á Maren og hún skoraði af miklu öryggi. Skagastúlkur héldu áfram að sækja og Gréta óð upp kantinn og gaf fyrir á Rut sem var vel staðsett og tók skotið en það var vel varið.

 

Fljótlega fóru HK stúlkur í gang og á 15. mínútu áttu þær skyndisókn þar sem sóknarmaður þeirra var komin ein innfyrir en Elísa bjargaði í horn. Á 19. mínútu varði Vilborg vel eftir skot frá markteig. Á 20. mínútu minnkuðu HK stúlkur muninn en markið hafði legið í loftinu um stund. Sóknarmaður HK lyfti boltanum laglega yfir Vilborgu í markinu. Strax á eftir fékk Maren sannkallað dauðafæri á markteig en skot hennar fór framhjá. Á 32. mínútu voru okkar stúlkur heppnar þegar ein HK stúlkna stakk sér innfyrir vörnina en skot hennar rétt framhjá.

 

Á 37. mínútu jöfnuðu HK stúlkur með laglegu skallamarki eftir hornspyrnu. Skagastúlkur létu þetta mótlæti ekki buga sig og komust yfir á 38. mínútu eftir laglegt samspil frá vinstri til hægri sem endaði á fallegri stungusendingu frá Eyrúnu á Unni sem sett‘ann í fjærhornið.

 

Staðan eftir aldeilis bráðskemmtilegan og opinn fyrri hálfleik því 3-2 okkar stúlkum í vil.

 

HK stúlkur mættu í seinni hálfleik staðráðnar í að jafna metinn og sóttu meira framan af. Það skilaði sér strax á 5. mínútu þegar þær jöfnuðu metin 3-3 með þrumuskoti af 25 metra færi. Vilborg í markinu blinduð af sólinni en engu að síður vel af sér vikið hjá HK stúlkunni. Á 7. mín áttu Skagastúlkur ágæta sókn upp kantinn þar sem Maren fór fyrir hópnum og átti góða sendingu fyrir markið en skotið laust. Aftur komst ein HK-stúlkna ein innfyrir eftir stungusendingu en skotið framhjá.  Á 17. mínútu kom Þóra inn fyrir Anítu og á þeirri 19. kom Margrét inn fyrir Rut.

 

Á 24. mínútu seinni hálfleiks skoruðu HK – stúlkur markið sem reyndist sigurmark leiksins. Það kom eftir laglega sendingu yfir vörn Skagastúlkna. Í kjölfarið voru HK- stúlkur atkvæðameiri en bökkuðu þegar leið að lokum leiksins og freistuðu þess að halda fengnum hlut. Á 30. mínútu komu Viktoría og Elka inn á fyrir Valdísi og Svönu. Skagastúlkur reyndu hvað þær gátu að jafna metin en uppskáru ekki mark þrátt fyrir ágætar tilraunir.

 

Því lauk þessum fjöruga leik með sigri HK og þriðja tap okkar stúlkna í jafn mörgum leikjum var staðreynd. Leikið var á æfingasvæðinu á Jaðarsbökkum við ágætar aðstæður. Lið ÍA var skipað eftirfarandi leikmönnum: Vilborg í marki. Í vörninni léku Aníta Eir, Elísa Svala, Alexandra Ýr og Valdís. Á miðjunni voru Svana, Gréta og Eyrún og fremstar voru Unnur, Maren og Rut. Á bekknum sátu Viktoría, Elka, Elínborg, Margrét og Þóra

 

Á mánudaginn mæta þær FH á útivelli. Það býr meira í þessum hópi en úrslitin segja okkur og við vonum að fyrsti sigurinn verði staðreynd eftir þann leik. Gangi ykkur vel stelpur.



Til baka