tilkynningar
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
8. júní 2010

íBV 1 ÍA 5

Drengirnir í 3. flokki lögðu land undir fót s.l. föstudag. Farið var með rútu til Þorlákshafnar, siglt til Vestmannaeyja og leikið við heimamenn um kvöldið. Gist var í Eyjum um nóttina og síðan farin sama leið til baka heim á Skagann daginn eftir. Ferðin gekk í alla staði mjög vel og voru strákarnir sér og sínu félagi hvarvetna til sóma.

 

Leikurinn byrjaði ekki alveg nógu vel fyrir ferðaþreytta Skagamenn og fljótlega tóku heimamenn forystu í leiknum. Ekki leið þó á löngu þar til Skagamenn fengu vítaspyrnu og úr henni skoraði Sindri örugglega. Staðan var 1-1 í hálfleik og útlit fyrir barning og spennu í seinni hálfleik. Fjalar var þó ekki á sama máli því á 20 mínútna kafla tók hann sig til og gerði 4 mörk og gerði þar með út um vonir Eyjamanna um stig út úr þessum leik. 5-1 sigur og frábær frammistaða hjá strákunum sem voru án tveggja af sínum sterkari mönnum, þeim Atla og Ragga sem urðu að sitja heima vegna rauðu spjaldanna sem þeir fengu í leiknum gegn Þór á dögunum. Gulli, Þórður og Alexander komu allir inn í liðið aftur og stóðu sig með prýði.

 

Við sigurinn lyfti liðið sér upp í 4. sæti B-riðilsins með 4 stig eftir 3 leiki, en Vestmannaeyingar sitja eftir á botninum með ekkert stig. 



Til baka