3. júní 2010
4-2 sigur á Þórsurum
Strákarnir tóku um síðustu helgina á móti Þórsurum og stefndu á sinn fyrsta sigur í Íslandsmótinu eftir tvo jafntefli í fyrstu tveimur leikjunum. Það er skemmst frá því að segja að liðið spilaði góðan bolta í leiknum sem skilaði 4-2 sigri og ÍA þannig taplaust í þremur fyrstu leikjum sumarsins.
ÍA hóf leikinn af krafti og sótti af miklum móð á fyrstu mínútum. Það skilaði sér strax á fimmtu mínútu þegar Sigurjón Guðmundsson átti góða rispu upp vinstri kantinn og náði góðri sendingu inn í vítateig Þórsara þar sem Eggert Kári Karlsson skoraði með góðu skoti. Eftir markið héldu strákarnir að sækja en gestirnir vörðust af krafti og gáfu lítil færi á sér. Þó átti Jón Björgvin Kristjánsson gott skot að marki sem markvörður Þórs varði af stakri prýði.
Um miðjan hálfleikinn skilaði svo pressan á gestina sér þegar Jón Björgvin fékk boltann á miðjunni, lék upp völlinn með hann og átti góða sendingu inni í vítateig þar sem Eggert Kári kom aðvífandi og smellti boltanum í þaknetið, óverjandi fyrir markvörðinn.
Eftir seinna markið gáfu strákarnir aðeins eftir og Þórsarar komu af krafti inn í leikinn. Þeir fóru að sækja og seint í fyrri hálfleik áttu þeir tvær stórhættulegar sóknir sem hefðu getað skilað marki. Fyrst áttu þeir aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig, sending var gefin fyrir og sóknarmaður Þórs skallaði boltann í þverslána. Skömmu síðar áttu miðjumaður Þórsara góða sendingu innfyrir vörn ÍA en Gísli Þór Gíslason markvörður náði að bjarga á síðustu stundu með góðu úthlaupi. Undir blálokin fékk Eggert Kári svo dauðafæri til að skora þrennu í leiknum en hann náði að brenna af fyrir opnu marki eftir að Ragnar Leósson hafði leikið á varnarmenn og gefið fyrir á Eggert. Fyrri hálfleik lauk þannig þar sem skaginn var með tveggja marka forystu.
Seinni hálfleikur hófst svo þar sem bæði lið stefndu klárlega á að bæta við mörkum í leiknum. Það skilaði sér eftir strax á 51. mínútu þegar Ragnar Leósson skoraði gott mark í fjærhornið eftir góðan undirbúning Sigurjóns Guðmundssonar sem hafði leikið á varnarmann og gefið á Ragnar sem var í góðu færi. Þórsarar gáfust þó ekki upp og á 55. mínútu fengu þeir vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á sóknarmanni þeirra. Skoruðu þeir svo af öryggi úr henni og á nýjan leik komnir inn í leikinn.
Eftir vítaspyrnuna róaðist töluvert yfir leiknum. Meira var um miðjuþóf og langsendingum og ekki var mikið um færi nema að Eggert Kári fékk gott tækifæri til að klára þrennuna þegar hann fékk boltann og átti góða rispu inn í teig Þórsara þar sem markvörðurinn varði af mikilli prýði. Úrslitin réðust þó endanlega á 80. mínútu þegar Einar Logi Einarsson átti frábæra sendingu inn fyrir vörn gestanna þar sem Björgvin Andri Garðarsson stakk sér inn og skoraði með góðu skoti stöngin inn framhjá markverði Þórs.
Þórsarar náðu svo að klóra í bakkann á lokamínútunni þegar brotið var á sóknarmanni þeirra og önnur vítaspyrnan dæmd í leiknum. Enn og aftur var skorað af öryggi og Gísli Þór átti ekki möguleika á að verja frekar en í fyrri vítaspyrnunni. Eftir það var svo flautað til leiksloka og ÍA náði að landa sínum fyrsta sigri í sumar 4-2 gegn vel skipulögðu liði Þórs.
Leikurinn var vel spilaður af hálfu strákanna. Þeir höfðu yfirhöndina frá fyrstu mínútu og hefðu klárlega átt að sigra leikinn með meiri mun. Ekki er sanngjarnt að taka neinn einn leikmann út að þessu sinni. Allir strákarnir lögðu sig fram í leiknum og léku vel. Vörnin og markvarslan traust, miðjan öflug og sóknin góð. Þó ber að geta Eggerts Kára sem átti góðan leik og skoraði tvö mörk, sem hefðu þó klárlega átt að vera fleiri.
Til baka
|