| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
8.9.2010 07:46:17 |
|
Næst síðasti leikurinn er gegn efsta liðinu í fyrstu umferðum mótsins. Síðan virðist allur vindur úr ÍR-ingum sem missa fjóra leikmenn í bann fyrir leikinn á laugardag. Við fáum hins vegar þrjá menn til baka og því hægt að velja úr öllum mannskapnum nema ef meiðsli eða veikindi setja strik í reikninginn.
Hverju spáir fólk: Heldur markaveislan úr síðasta leik áfram? Vinnum við sigur? Hverjir skora? |
|
| Frá: |
ÍA4EveR! |
8.9.2010 15:58:27 |
|
Spái að leikurinn fari: 1:3 og við tökum þrjú stig með okkur upp á Skaga.
Hver svo sem skorar, þeir hafa verið heitir nokkrir, Andri, Hjörtur, Gary Martin ofl.
Endilega fá svipaða markasúpu og var gegn Gróttu.
kom sér vel þessi mörk sem skoruð voru í síðasta leik, ef Fjölnir skyldi ná jafntefli við Njarðvík og tapar úti gegn Leikni og við vinnum báða okkar leiki, erum við jafnir Fjölni að stigum í 35 og höfum sömu markatölu og þeir núna +9 þökk sé frábærum mörkum gegn Gróttu.
Þannig að það er séns á að lenda í 4.sæti. Þótt það skiptir ekki öllu máli
En miðað við hvenrig liðið hefur verið að spila í síðustu leikjum, eftir að liðið var styrkt í glugganum og nú er búið að tryggja Gary Martin áfram. Ef það er haldið áfram á þessari braut þá kæmi mér ekkert á óvart þótt við færum upp næsta sumar.
Hlakka til að fylgjast með síðustu 2 leikjum liðsins !
áfram ía!! |
|
| Frá: |
Emma Rakel Björnsdóttir |
9.9.2010 11:37:58 |
|
Er búið að panta Rútuna??? Kannski ælta ég,bróðir minn og vinkona að fara á síðanæsta leikinn (útileik)  |
|
| Frá: |
Rebbi |
10.9.2010 08:32:30 |
|
Já sælt veri fólkið, ég vona að Þ+Þ geti stillt upp svipuðu liði og í síðasta leik, er það vitlaysa í mér eða hafa þeir félagar ekki stillt upp sama liði í tvo leiki í röð í allt sumar? ef svo er þá er væntanlega góð ástæða fyrir því.
Ég er að spá í að skella mér á völlinn og sjá sigurleik en ég tel það vera góðan möguleika fyrir okkur að vinna ÍR núna þar sem þeir virðast vera hættir í þessu móti, sennilega bara saddir og glaðir yfir góðu gengi í sumar.
KV
R.Refsson |
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
10.9.2010 11:56:36 |
|
Ég held að samblanda af áhyggjulausum Skagamönnum og vængbrotnum ÍR-ingum sem hafa misst dampinn leiði til 4-0 sigurs okkar manna. Sem yrði þá jafnstærsta tap ÍR-inga í sumar. |
|
| Frá: |
ÍA fan |
10.9.2010 14:15:37 |
|
Já, það vantar ekki uppá bjartsýnina hjá sumum hérna., svo sem ekkert að því. Við getum auðvitað hæglega unnin þennan leik en þetta verður samt ekki eins auðveldur leikur eins og gegn Gróttu. Ég bíð spenntur yfir því að sjá hvernig Þórður stillir liðinu og þá hvort Arnar Már og Gummi koma aftur í liðið. |
|
| Frá: |
Skagaskarfur |
10.9.2010 15:14:54 |
|
Er ekki málið að skella sér á síðasta útileikinn.
Spyr eins og Emma hér fyrir ofan, er búið að panta rútu ?
Ég spái 1:2
Gary Martin og Hjörtur Hjartar með mörkin.
|
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
10.9.2010 15:55:48 |
|
Alveg rétt "ÍA fan". Það vantar ekkert upp á bjartsýnina fyrir leik. Enda um að gera að hafa gaman af leiknum fyrirfram ef illa fer í sjálfum leiknum og hann verður ekkert nema leiðindi.  |
|
| Frá: |
SBK |
10.9.2010 19:53:08 |
|
Var eitthvað verið að spá í rútu - veit einhver hvort það sé planað? Maður er allavega með góðar vonir um sigur eftir síðasta leik og það væri snilld að fá rútuferð  |
|
|
|
| Frá: |
Skagaskarfur |
11.9.2010 15:20:01 |
|
Jæja... Gary Martin búinn að skora tvö. Staðan 0:2
Bara snilld! |
|
| Frá: |
Hlerinn |
11.9.2010 15:35:54 |
|
og Andri búinn a'ð skora 4 markið |
|
| Frá: |
ÍA4EveR! |
11.9.2010 16:38:04 |
|
Flott úrslit.
Fjölnir vann sinn leik þannig að við náum ekki 4 sætinu, en höfum gulltryggt okkur 5. sæti deildarinnar í ár. Ekki slæmt.
Liðið er á réttri leið. Verðum gaman að mæta á síðasta leik liðsins gegn KA ef ég man rétt. Allir að mæta á völlinn. Þetta er dúndur lið sem við erum komnir með, flottur styrkur sem Gary Martin hefur verið liðinu og ég er bjartsýnn fyrir næsta tímabil.
Verst að okkar markahæsti maður er farinn að skoða græna grasið hinum megin við girðinguna......... en oft er það ekkert grænna þar.
|
|
| Frá: |
grimsbyholyday |
11.9.2010 22:18:07 |
|
5. sæti; ekki slæmt. Hvað er í gangi???? Veistu ekki í hvaða deild Í A er að keppa?
GERUM AÐEINS MEIRI KRÖFUR,. .
HEFÐI EKKI VERIÐ FJÖLGAÐ Í DEILDUNUM VÆRUM VIÐ Í 3JU DEILD.
vAKNIÐ SKAGAMENN:!!!!! 5. SÆTI í ANNARI DEILD... OG ALLIR SÁTTIR? |
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
11.9.2010 22:21:34 |
|
Rólegur Helgi Dagur frá Grimsby. Ég held að "ÍA4ever!" hafi átt við að fimmta sæti væri ekki slæmt miðað við það hvernig liðið byrjaði. Ég held það sé enginn ánægður með fimmta sætið. Hins vegar hefur liðið ekki tapað nema einum af síðustu tólf deildarleikjum held ég og sóknin virðist vera að smella saman. Þannig að ef við höldum okkar mannskap og bætum við okkur einum til tveimur mönnum, sérstaklega sterkum miðjumanni, þá gefa síðustu leikir vonandi fyrirheit um betri tíð á næsta ári. |
|
| Frá: |
grimsbyholiday |
12.9.2010 00:00:33 |
|
Kommón, 5ta sæi í annari deild,t og allir sáttir?? Hefði ekki verið fjölgað í deildum væru Skagamenn í 3ju deild. Allir sáttir?? Allir stoltir??? Hópferð á Grenivík, og Blönduós ??? |
|
| Frá: |
grimsbyholiday |
12.9.2010 00:04:58 |
|
Kommón, 5ta sæi í annari deild,t og allir sáttir?? Hefði ekki verið fjölgað í deildum væru Skagamenn í 3ju deild. Allir sáttir?? Allir stoltir??? Hópferð á Grenivík, og Blönduós ??? |
|
| Frá: |
ÍA fan |
12.9.2010 00:58:16 |
|
grimsbyholiday, við erum ekki nálægt því að fara niður í þriðju deild svo hættu þessu væli!
Liðið hefur aðeins tapað 2 af 17 leikjum í deildinni og þar af er það ósigrað í níu útileikjum í röð. Ekki einu sinni toppliðin geta státað af því.
Þar sem er meðaldurinn í liðinu er aðeins 21 ár getur það aðeins orðið betra og ætti að geta barist um sæti í efstu deild á næsta ári. Eins og Brynjólfur segir þyrfti að bæta einum til tveimur góðum leikmönnum í hópinn og þá erum við í góðum málum.
Ég vil nú líka benda á að fyrir ekki það mörgum árum voru bæði FH-ingar og Breiðablik í þessari deild í FJÖGUR ár áður þau komust upp á ný. Hvar eru þessi lið núna aftur? |
|
| Frá: |
ÍA4EveR! |
12.9.2010 10:57:46 |
|
Jú Brynjólfur.
Eftir þessa hræðilegu byrjun á mótinu og hvernig þæað spilaðist framan af held ég að við getum verið sáttir við 5 sætið, fyrst við komumst ekki upp þetta árið. En auðvitað er stefnan alltaf að komast upp meðal þeirra bestu.
Málið er líka að munurinn á liðinu núna og í byrjun er mikill. Og ástæðan fyrir því að við náðum þó 5 sætinu, er sú að það er allt annað að sjá til liðsins í dag. Þeir eru að spila flottan bolta, skora fullt af mörkum og eru hörkulið. Þessi styrking í glugganum gerði virkilega góða hluti fyrir liðið.
grimbsby: allir sáttir ? nei ekkert sérstaklega. Ef þú hefur fylgst með spjallinu hérna síðan í byrjun móts að þá vissirðu kannski eitthvað um hvað þú værir að tala.
Enginn sáttur við að vera í 1. deild. Hvorki stuðningsmenn og varla leikmenn. Enda var stefnan sett á að komast upp þetta árið en við þurfum vart að bíða mikið lengur. Ekki miðað við hvernig liðið er að spila í dag. |
|
| Frá: |
Rebbi |
12.9.2010 15:41:36 |
|
Ágætur leikur hjá okkar mönnum í gær og greinilegt að innkoma Gary Martins hefur mikið að segja. Leikurinn í gær var hin besta skemmtun og þá fannst mér áberandi hvað miðjan og vörnin var góð, Ragnar Þór og Guðmundur eiga greinilega vel saman og ánægjulegt að sjá hvað þeir unnu vel saman í öllu, hin ungi Andri Geir var líka góður með Heimi sér við hlið en hinir í liðinu voru á pari eins og maðurinn sagði. Það vakti athygli mína að Andri J. var ekkert sérstakur en kannski að hann sé búinn að ákveða að fara frá félaginu en miðað við þau viðtöl sem hafa verið tekin við hann í fjölmiðlum og á heimasíðu ÍA þá virðist ljóst að hann er farinn.
Gangi þér vel í nýju liði Andri.
kv úr Borgarfirði
R.Refsson |
|
| Frá: |
Spekingur |
12.9.2010 16:35:58 |
|
Fólk er alveg að gleyma Óla Val, hann var án efa lang besti leikmaðurinnn í leiknum. Hann er líka einn langbesti leikmaðurinn í öllu ÍA liðinu.. maður leiksins í gær |
|
| Frá: |
Rebbi |
12.9.2010 18:12:15 |
|
Ólafur var vissulega góður í gær en klárt mál að hann verður ekki bestur fyrr en hann fer að spila heila leiki, þangað til verður hann bara efnilegur.
kv R.Refsson
|
|
| Frá: |
Rotbust |
13.9.2010 16:52:09 |
|
Mér hefur sýnst að Þórður skifti út kantmönnum útaf á 70.mín í allt sumar þannig eftir þessu þá verða kanntmenn aldrei bestir í augum Rebba en Óli Valur hefur í síðustu tveim leikjum lagt upp þrjú mörk og skorað eitt og munar um minna.Það eru greinileg batamerki í liðunu þegar þeir fóru að spila afslappað og spennulaust. |
|