Spjall
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
Spjall > Andri Júl leikmaður 20.umferðar í 1. deild

Frá: Skagaskarfur 6.9.2010 18:07:30
Andri Júlíusson fór á kostum þegar ÍA sigraði Gróttu 6-1 í fyrstu deildinni í fyrradag. Andri skoraði þrennu og lagði upp eitt mark en hann er leikmaður 20.umferðar í fyrstu deild karla.

Ég er ánægður með þessa tilnefningu enda er kominn tími á að leikmaður ÍA verði leikmaður umferðarinnar hjá ykkur, ég held að það hafi ekki gerst í tvö eða þrjú ár," sagði Andri við Fótbolta.net í dag.
---

Það var heldur betur kominn tími á þetta.
Frá: Arnar 6.9.2010 18:10:35
Þetta er skemmtilegt að sjá. ÍA leikmaður maður leiksins. Eru allavega 2 ef ekki aðrir sem eiga þetta skilið miðað við góða spilamennskuna undanfarið.

Átti von á þessu fyrr.
Til hamingju Andri J
Frá: Rebbi 6.9.2010 19:38:45
Til hamingju Andri og þú áttir þetta skilið, þetta er það sem við erum búin að vera að bíða eftir í allt sumar eins og þú segir sjálfur í viðtalinu, það er hins vegar annað sem snertir félagið okkar ogþig sem ég er að spá í þar se þú segir.

",,Það hefur verið stefna klúbbsins frá því að við féllum 2008 og það verður reynt af afli á næsta ári."

Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var mættur á leikinn á Akranesi á laugardag og Andri vonast til að hafa náð að heilla hann.

,,Það er auðvitað alltaf gaman þegar manni er sýndur áhugi. Að sjálfsögðu vilja allir spila í efstu deild og einnig í Evrópukeppninni."

,,Núna er ég leikmaður ÍA og verð það út september allavega. Síðan skoðum við hvað gerist, hvort honum hafi líkað þessi þrenna eða hvað," sagði Andri léttur í bragði að lokum"

þá spyr ég, ætlar þú að taka þátt í þessu með félaginu til enda?

kv úr Borgarfirði
R.Refsson
Frá: Brynjólfur Þór Guðmundsson 6.9.2010 23:00:29
Gaman að sjá strákinn fá þessa viðurkenningu. Vonum að honum beri gæfa til að spila með okkur næsta sumar.
Frá: Skagamaður 11.9.2010 02:32:49
Það vill svo til að ég þekki ágætlega til i herbúðum Vestmannaeyja.

Þegar þeir voru í neðri deild fyrir fáeinum tímabilum, þá fengu nokkrir þeirra efnilegustu leikmenn tilboð frá stóru liðunum í Reykjavík. Þeir héldu tryggð við Eyjaliðið og gráta það ekki í dag.

Hvað Andri gerir er algerlega hans mál. En allir þeir sem íhuga brottför verða að hafa í huga að grasið er ekki alltaf grænna hinum meginn við lækinn.


Nafn:
Netfang:
Svara:

Sláðu inn textann úr myndinni fyrir ofan
Er myndin óskýr? Smelltu hér til að búa til nýja mynd