Spjall
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
Spjall > Gary Martin áfram á Skaganum

Frá: ÍA4EveR! 5.9.2010 14:26:32
Í gær eftir leik ÍA og Gróttu var gengið frá eins árs samningi við Gary Martin, sem hefur komið með mikilvægt innlegg í leik Skagamanna eftir að hann var fenginn til liðsins í lok júlí. Í viðræðunum við Gary síðustu daga hefur verið ánægjulegt að finna að hann er ánægður með móttökurnar á Akranesi og aðbúnað. Ekki síður skiptir máli að hann er einnig ánægður með þjálfara liðsins og þann góða anda sem er í leikmannahópnum. Þó svo að leikmannahópurinn sé að uppistöðu til ungur, þá telur Gary að í honum búi lið sem eigi að ná árangri og þess vegna telur hann að áframhaldandi vist á Akranesi góðan kost til að þroskast sjálfur sem leikmaður. Þetta eru góðar fréttir og ánægjulegt viðhorf í garð leikmanna, þjálfara og þeirra sem vinna að því að móta öflugt Skagalið sem leiki í efstu deild.

Gary Martin hefur fært aukin gæði í Skagaliðið og haft afar jákvæð áhrif á meðspilara sína, sem leika nú af meira sjálfstrausti og gleði. Gary hefur þegar skorað 5 mörk í sex leikjum og átt góðan þátt í nokkrum mörkum að auki. Þeir Andri Júlíusson og kempan Hjörtur Hjartarson hafa skorað 7 mörk hvor það sem af er tímabilinu. Það sem vekur sérstaka athygli nú er að árangur liðsins á útivelli er umfram það sem önnur lið eru að gera, en árangurinn á heimavelli er afleitur. Þar er augljóst verk að vinna - ekki síst með þátttöku stuðningsfólks.
---------

Þetta eru frábærar fréttir. Gary ánægður á Skaganum, enda hvernig er annað hægt.
Síðan er spurning með íþróttafréttamanninn aldna hvort hann sé ekki reiðubúinn að spila næsta tímabil og síðan er Andri Júl vonandi reiðubúinn að halda áfram hjá liðinu.
Frá: Einar Ben 5.9.2010 14:39:38
Þetta eru frábærar fréttir, og eiga þeir Örn og Þórður G. þakkir skildar fyrir að ná að landa samning við Gary Martin.

Áfram Skagamenn.
Frá: Brynjólfur Þór Guðmundsson 5.9.2010 17:30:15
Mjög góðar fréttir. Kappinn kann sitthvað fyrir sér í fótbolta og á vonandi eftir að skora mörg mörk á Skaganum. Mjög gott að halda honum.

Svo bíð ég spenntur eftir fréttum af samningum við aðra leikmenn
Frá: Guðni Már 5.9.2010 19:47:26
Alger snilld, virkilegar góðar fréttir og gefa fyrirheit um framhaldið, svo er að vona að aðrir mikilvægir samningslausir menn spili áfram fyrir ÍA á næsta ári.

Frá: skagi 5.9.2010 23:10:49
Frábært hjá stjórninni að landa þessu. Nú vantar bara sterkan miðjumann og liðð fer beint upp. Hjörtur, Andri Júl og Heimir verða að vera áfram. Spurning hvort það vanti líka öflugan hafsent?
Frá: Skagaskarfur 7.9.2010 09:35:28
Þetta er frábært að heyra.

Verð nú að játa það að mér leist ekkert á að á leik ÍA og Gróttu var allavega einn þjálfari úrvalsdeildarliðs. Eitthvað var verið að tala um að sá þjálfari ásamt fleirum höfðu sýnt ýmsum leikmönnum ÍA áhuga.

En þetta er flott, búið að semja við Gary Martin. Síðan er að sjá hvað hægt er að gera með þá leikmenn sem verða samningslausir í ár, hvort og hverjir eru reiðubúnir að halda áfram hjá liðinu.


Nafn:
Netfang:
Svara:

Sláðu inn textann úr myndinni fyrir ofan
Er myndin óskýr? Smelltu hér til að búa til nýja mynd