| Frá: |
Rebbi |
29.8.2010 18:46:10 |
|
Þórður Guðjónsson svona talar maður ekki um leikmenn sem fara frá félaginu hvort sem það er í góðu eða illu, það eru klárlega nokkrir aðrir leikmenn í liðinu sem standast ekki væntingar og ætlar sem sagt félagið að rifta samningum við þá? svona vinnubrögð líkar mér illa og vonandi að maður sjái ekki slíka pósta á síðunni hjá okkur.
Ég hins vegar vill þakka Igori fyrir hans vinnu í þágu félagsins.
R.Refsson
|
|
| Frá: |
Tiger |
29.8.2010 19:01:52 |
|
Rólegur tígur..senda vælubílinn í hlað til þín ? mér sýnist þú rebbi styðja svo hundlélegt lið að það mætti halda að þú værir betri en allir leikmenn liðsins.
Einsog þú hefur hagað þér með tali um vissa leikmenn að þá skýturu þig heldur betur í fótinn með þessum pistli og heldur svo sem áfram í þessari grein.
Þú ferð oft ekki fögrum orðum um Andra júll, segir að liðið spili verr þegar hann er ekki með.
Þetta sýnir hvað það er allt á hvolfi í hausnum á þér þar sem Andri var einn af fáum sem náði að pota boltanum í netið í byrjun móts!
Ég býð spenntur á hverjum degi eftir að sjá magnaða og "grjótharða"pistla þína.
Hvað verður næsta umræðuefni ?
Nei rebbi minn það sem er að hjá okkur er einfaldlega við náum ekki að halda haus og löndum því mikið af jafnteflum, það býr meira í einstaka leikmönnum þ.a.m pesic.
Rebbi, svona talar maður ekki. |
|
| Frá: |
ÍA fan |
29.8.2010 19:30:12 |
|
Hvað ertu að bulla, Rebbi ?
Ef erlendir leikmenn, eins og Pesic eru ekki nógu góðir til að styrkja liðið að neinu ráði þá er það bara SJÁLFSAGÐUR HLUTUR að láta þá fara. Við gætum alveg eins látið unga stráka fá tækifæri í staðinn. |
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
29.8.2010 20:41:29 |
|
Ég held að Igor hafi verið í hópnum í einum af síðustu sjö leikjum. Þá var hann varamaður sem var ekki skipt inn á. Þórður segir bara það sem liggur í augum uppi.
Mér skilst að Igor hafi spilað vel í sínum fáu leikjum í fyrra en hann stóð engan veginn undir væntingum í sumar. Ég hafði séð fyrir mér að hann yrði á miðjunni ásamt Arnari Má, Guðmundi Böðvar og Ragnari Le í einhverri mynd. Hins vegar þróuðust mál þannig að allir þessir menn voru á undan honum í goggunarröðinni, og ekki nóg með það heldur stóð nýliðinn Ragnar Þór sig svo vel að hann spilaði Igor út úr liðinu.
Reyndar setti einn maður, sem hefur meira vit á fótbolta en ég, fram kenningu. Nefnilega þá að breytingin sem varð á liðinu þegar því fór að ganga illa síðla vors, áður en mótið hófst, hafi verið innkoma Igor. Besti tími liðsins var áður en hann kom til félagsins. Þetta er viss einföldun, meiðsli settu strik í reikninginn og önnur lið voru kannski ekki komin jafn langt í undirbúningnum og við þegar ÍA rúllaði hverjum sem er upp. En frammistaða Igors var ekki til að bæta leik liðsins. Því miður.
Og hafið í huga að ég var mjög hrifinn af Igor fyrst þegar hann lék með ÍA og tel hann hafa skorað eitt skemmtilegasta mark í seinni tíma sögu ÍA, af eigin vallarhelmingi gegn KR 2006. |
|
| Frá: |
ÍAFAN |
29.8.2010 21:04:26 |
|
2005 |
|
| Frá: |
Rebbi |
29.8.2010 21:33:45 |
|
Já það er ekkert annað eða eins og maðurinn sagði "hold your horses" ég hef aldrei talað um að Andri J sé lélegur leikmaður, það er þín orð, ég talað hins vegar um að liðið virtist spila betur þegar hann er ekki með, það er ekki það sama og að segja að hann sé lélegur leikmaður en engu að síður áhyggjuefni fyrir hann, það er auðvelt að skoða tölfræðina í því samhengi og sést það á KSÍ.is.
Ég nefndi heldur ekkert að mér hafi fundist Igor standa sig vel í sumar, mér finnst bara ekki viðeigandi að það sé birtur pistill á síðu félagsins um það hvort leikmaaur hafi staðið sig vel eða ekki.
Það hafa leikmenn farið frá félaginu án þess að fá þessa pillu frá framkvæmdarstjóranum og það á bara að vera þannig
Ég á mér þá von í brjósti að Andri J sýni sínar réttu hliðar í lok móts (ef hann fær að spila) en það vill nú svo til að ég hef ekki séð síðustu 4 leiki eða svo en mun væntalega skella mér á völlinn næsta laugardag og berja liðið MITT augum þó svo að það hafi nú ekki verið nein sérstök skemmtum í sumar.
kv R.Refsson |
|
| Frá: |
Tiger |
29.8.2010 23:51:49 |
|
Samkvæmt tölfræðinni þinni að þá hefur Andri verið einn af duglegustu markaskorurum okkar í sumar...
Hvað segir það þér ?
Ég ætla að vona að þú "berjir" ekki neinn heldur berir lið þitt augum frekar.
Ég held að það sé nóg komið af rebbanum þú bullar út eitt þykist vera svakatappi og að segja það mín orð að andri sé lélegur einfaldlega lýsir því sem er að gérast í höfðinu á þér.
Veit ekki betur en ég hafi bakkað hann upp.
Þú ert bara enginn stuðningsmaður þó þú segist hafa stutt liðið frá 75.. held að það sé bara eitthvað bull.
Það væri gaman að spjalla við þig face to face.
Kveðja: Magnús V. |
|
| Frá: |
Rebbi |
30.8.2010 07:35:15 |
|
Já þú ert sem sagt að segja mér að þjálfarinn sé ómögulegur líka þar sem hann er ekki að spila Andra í síðustu leikjum, enn og aftur þá hef ég ekki nafngreint þá leikmenn sem mér líkar ekki í liðinu en hef samt áhyggjur af vissum leikmönnum og er Andri einn af þeim, eins og ég sagði þá vona ég að hann sýni okkur sitt rétta andlit en eins og þú veist þá hefur hann bara skorað 4 mörk í sumar og er jafnframt búinn að fá 5 gul spjöld.
kv R.Refsson
Magnús M. |
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
30.8.2010 08:28:05 |
|
Tölfræðin er skemmtilegt fyrirbæri. Þannig kom það mér á óvart á sínum tíma þegar ég reiknaði út að ÍA gekk betur án Grétars Rafns Steinssonar heldur en með hann í liðinu. Nú efast enginn um að Grétar Rafn hafi verið einn allra besti leikmaður okkar nær allan tímann sem hann lék með liðinu. En svona geta hlutirnir verið skrýtnir. En það spilar þá margt inn í, svo sem meiðsli hans og annarra á sínum tíma. Þannig að það er ekki nýtt að tölfræðin bregði skemmtilegu og jafnvel undarlegu ljósi á frammistöðu manna. |
|
| Frá: |
Tiger |
30.8.2010 12:41:42 |
|
Þjálfarinn hefur gert sýn mistök líka rebbi! Andri hefur hvað eftir annað verið okkar hættulegasti maður.
Hann hefur lika skorað í bikarnum t.a.m á moti selfoss.
Þú nafngreinir ekki menn sem þér líkar ekki, en notar orðið "áhyggjur" í stað þess einfaldlega að segja að þér finnist hann slakur.
Enn og aftur hefuru sannað gildi þitt á þessu spjalli rebbi, er ekki nóg komið af fótboltarýni og spurning um að fara að einbeita ´ser bara að t.d dómgæslu eða eitthvað annað álíka fjöri. |
|
| Frá: |
Rebbi |
30.8.2010 14:59:17 |
|
Enn og aftur þá segi ég að ég hafi ekki sagt að Andri sé lélegur leikmaður en ég er næstum viss um að Andri sjálfur veit að hann getur betur en hann er búinn að gera í sumar, ég veit að þjálfarinn hefur gert mistök og það gerum við allir og með því þá langar mig að biðja Andra Júlíusson afsökunar ef ég hef sært hann með þessum skrifum mínum, það er ekki ætlun mín að draga einstaka leikmann í þessa umræðu en ég benti einfaldlega á þær staðreyndir sem eru á vef ksi.is.
Varðandi dómara þá nenni ég ekki að eyða tíma mínum í slíka pappakassa en fyrst þú nefnir þá verð ég að segja að þeir hafa svo sannarlega haft mikil áhrif á úrslit okkar í sumar og þá á báða vegu, síðast leikur sem ég sá var leikurinn á móti Þór fyrir norðan og þar græddum við á dómgæslunni en svo hef ég séð að við höfum líka verið að tapa á henni.
kv R. Refsson |
|
| Frá: |
Skagaskarfur |
30.8.2010 18:55:38 |
|
Las pistilinn hér á kfia.is um að Igor sé að fara frá félaginu. Nota tækifærið og þakka honum fyrir hans framlag síðan hann kom til ÍA.
En það er hinsvegar staðreynd að Igor hefur ekki staðið undir væntingum á tímabilinu.
Sé svosem ekkert að því að taka það fram í viðtali.
Ég skil vel að ÍA hafi ekki haldið honum fyrir næsta tímabil.
En ég vona að samið verði við Gary sem allra fyrst.
Mikill styrkur fyrir liðið og mikilvægt að hann spili fyrir ÍA áfram. Enda er maðurinn augljóslega mikill markaskorari.
Hef heyrt að Hjörtur Hjartar sé til í að spila áfram fyrir félagið og fagna ég því. |
|
| Frá: |
Tiger |
31.8.2010 01:35:27 |
|
Hvernig græddum við á markinu sem við skoruðum í restina en var dæmt rangstætt? rangur dómur.
Farðu nú að haga þér! |
|
| Frá: |
Rebbi |
31.8.2010 08:31:07 |
|
Vert þú ekki með þetta rugl, ég sat akkurat í línu við þetta og Gary var í rangstöðu, þú getur líka séð þetta á síðunni hjá Þór en þú vilt það sennilega ekki, vítin sem við fengum voru glórulaus en þú kvartar að sjálfsögðu ekki yfir því frekar en ég.
R.R. |
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
31.8.2010 11:31:34 |
|
Tiger þarf að finna betri rök en rangstöðumarkið gegn Þór á Akureyri. Það var rangstæða, veit ekki hversu vel það sést á upptökunni en ég talaði við mann sem var á vellinum og hann sagði þetta klára rangstöðu. |
|
| Frá: |
Tiger |
31.8.2010 13:20:51 |
|
Það sést bara engannveginn á upptökuni!
En vítin voru alveg yndisleg, ekki kvartar maður yfir að fá loksins eitthvað gefins. En hvað var með rauðspjaldið rebbivitlausi sem þór átti að fá ? |
|
| Frá: |
ÍA fan |
31.8.2010 13:46:14 |
|
Tiger og Rebbi,
ætliði að rífast í hvor öðrum fram til áramóta eða hvað.
Ég held að þetta sé orðið gott. |
|