| Frá: |
Helgi Helga |
18.8.2010 09:51:39 |
|
Hvernig væri að skoða aðeins leikmenn okkar ,allt fullt af meðal leikmönnum. Hvernig væri að stjórn okkar færi að versla leikmenn með super getu. Réttið núverandi þjálfara nokkra sterka leikmenn inn í hópinn og dæmið svo. Við erum búinn að vera með Guðjón,Arnar og Bjarka sem þjálfara undanfarinn ár, ekki gerðu þessir 3 eitt né neitt með liðið.Guðjón einn reynslu mesti þjálfari Íslands og var hann með heldur sterkari hóp í höndunum en er til staðar núna.
Erum ekki með neina alvöru leikmenn. Uppistaðan er 18 - 21 árs strákar. Málið er að við erum ekki með betra lið í dag. Allt tal um að skipta um þjálfara er bull. Ef að við ætlum að vinna okkur upp þá þarf einfaldlega þolinmæði. Sjáið bara t.d. Breiðablik,FH,Stjarnan,Þór,ÍBV, Allt lið sem að hafa verið með sama þjálfarann lengi og verið vinnufriður. Þolinmæði er orð dagsins.
Allt tal um að fá Loga ,Pétur ,Zoran og eitthvað annað skiptir ekki máli þegar okkur vantar betri leikmenn.
Sá ekki leikinn í gær en var sagt að það hefði bara verið ágætis leikur gegn einu af toppliðunum. |
|
| Frá: |
Kristjan |
19.8.2010 05:55:09 |
|
2-3 ár á Þórð sé margt gott í því sem hann er að gera þetta tekur allt helvítis tíma. Komin tími til að menn rífi hausinn upp úr sandinum og horfist á augu við það. Þórður fær minn stuðnig. Hættiði nú þessu djöfulsins væli |
|
| Frá: |
Siggi Bj. |
19.8.2010 18:38:07 |
|
Torfi minn. Þú ert gleyminn í meira lagi. Hann Logi var kominn með liðið bókstaflega í skítinn á sínum tíma og hreinlega nennti ekki að mæta á æfingar eða sýna metnað fyrir félagið. Ef ekki hefði komið til öflug stjórn sem stýrði félaginu í mikilli skuldasúpu hefði tilitt aldrei skilað sér á Skagann ári síðar.
Við verðum hins vegar að gera miklu miklu betur en síðustu tvö ár. Félagið þarf að fá liðsstyrk því þeir leikmenn sem hafa spilað í dag hafa ekki sýnt nægilega getu til að koma félaginu í fremstu röð á ný. Þá verða stuðningsmenn að leggja meira fjármagn til félagsins því án góðrar fjárhgaslegrar stöðu mun lítið gerast.
Það er mitt mat að stjórnin sé að standa sig mjög vel og margt jákvætt hafi gerst. Þórður er ágætis þjálfari þannig að vandinn liggur í þeim leikmönnum sem við höfum. Sú samsetning er greinilega ekki að gera sig.
Áfram ÍA |
|
| Frá: |
Torfi |
19.8.2010 22:47:49 |
|
Ég horfði á þetta sama lið spila frábærlega sín á milli í fyrra hjá A&B en verjast illa en núna verjumst við vel en getum með engu móti sent boltann milli manna og töpum boltanum aftur og aftur á hættulegum stöðum. Það segir mér það að hvorki A&B né Þórður geti látið þá spila nógu vel og þá þurfum við nýjan mann í brúna og mínar tillögur eru annað hvort Logi eða Pétur P |
|
| Frá: |
Hannes B |
19.8.2010 23:28:43 |
|
Torfi þú hefur greinilega fylgst vel með eða ?, hvað eru margir strákar að spila núna sem voru ekkert eða lítið að spila í fyrra og hvaða leikmenn spiluðu mikið í fyrra og lítið núna ?.
Nokkrar breytingar Helgi P farinn,Jón V farinn,Hlynur fótbrotinn,Árni Thor meiddur í allt sumar,Arnar farinn,Bjarki farinn, Palli mikið meiddur í fyrra,Heimir meira og minna meiddur í sumar,Trausti farinn,Sölvi farinn, mann ekki meira í auknablikinu.
Hvernig getur þetta verið nánast sami mannskapur. Liðið í fyrra hafði ekki úthald í 60.mín.
Þeir sem að eru að stíga sín fyrstu spor í sumar og nokkrir aðeins meira eru Raggi G,Einar L,Andri A,Óli V,Ísleifur,Fannar reyndar mikið meiddur,Emil S,Fjalar,Andri Geir, Arnþór,Árni Snær,Ívar, Hvernig getur þú Torfi þá sagt að liðið sé svipað.
Til þess að gera gott lið þá þarf að byrja á því að taka til í varnarleik liðsins sem er verið að gera.
En einhver sagði að góðir hlutir gerast hægt. Við græðum ekkert á því að fara Hauka leiðina upp í efstudeild, betra að byggja upp í 2-3 ár rólega og koma svo upp til þess að vera þar.
Sá ekki leikinn á móti Viking en skilst að hann hafi verið ágætur.
Höldum áfram með þetta eins og það er.
Áfram ÍA.
Kv.Hannes B |
|
| Frá: |
Torfi |
21.8.2010 12:09:46 |
|
ég skal alveg viðurkenna það að ég hef ekki séð marga leiki í ár og í fyrra, sá 3. leiki í fyrra einn þegar A&B stjórnuðu og spiluðu að mig minnir Gummi B, Andri Ad, óli valur,Raggi le og Gutti jújú kannski einhverjar breytingar en í ár er ég búin að sjá fjölnir- ía og ía þór +a netinu en svo hef ég lesiðallar umfjallanir um skagann á netinu bæði hlutlausar og hlutdrægar og niðurstaðan er lélegur fótbolti flestum tilvikum sem mér finnst miður því það er ekki eins og úrslitin hafi verið góð. |
|
| Frá: |
Rebbi |
22.8.2010 14:30:46 |
|
Ágætu skagamenn, það er að sjá eftir síðustu leiki að ungu strákarnir sem spiluðu í vetur og eru meira og minna að spila síðustu leiki eru að standa sig ágætlega og ættu menn að skoða vel hvar má bæta liðið á næsta tímabili, mín skoðun er sú að menn verða að vera slakir og gefa sér tíma til áframhaldandi uppbyggingar. Síðasti leikur sem ég sá var á Akureyri ogþað var skemmtilegur leikur, ég sé að það voru ungir menn að spila í Njarðvík og þar kom sigur þannig að skilaboðin eru skýr frá ungu strákunum í liðinu til þjálfarans.
Skoðið endilega uppstillinguna á liðinu þegar við vinnum leiki og þegar við töpum, hverjir spila og hverjir eru á bekk, athyggliverðar staðreyndir sem koma þar í ljós þó ekki sé meira sagt.
kulda kveðja úr Borgarfirði
R.Refsson |
|