Spjall
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
Spjall > hvað verður gert í lok tímabils

Frá: Torfi H. Björnsson 17.8.2010 22:40:13
Þetta tímabil eru mikil vonbrigði kannski ekki eins mikil og í fyrra en mikil vonbrigði samt því ÍA á að veru í deild hinna efstu. En það er samt engin lausn að láta Þórð fara núna hann á að klára tímabilið og lendir eflaust í 4-6. sæti sem ekki það sem lagt var upp með. Búnir að gera 7 jafntefli, tapa 5 og vinna fimm. og með 3 mörk í plús. Einu meiðslavandræðin hjá okkur er í vörninni þar sem ansi oft hefur þurft að breyta milli leikja og ég ætla ekki að gera lítið úr því. Og ég er viss um að ef Heimir og Árni Thor hefðu spilað alla leiki liðsins þá væri staðan önnur en ég held að við værum samt ekki að fara upp því miður. Ég held að það væri ráð að tala við t.d. Loga Ólafs (að tímabilinu loknu) hann hefur skilað fínum árangri fyrir félagið ef hann hefur áhuga að koma aftur eftir mjög klaufalegann viðskilnað að hálfu stórnarinnar fyrir 11 árum. Markvarslan er í topplagi hjá okkur og vörninn á pari en þar fyrir framan er aðal vandamálið og þar held ég að Logi geti hjálpað okkur. Ég held reyndar að Þórður kasti sjálfur inn handklæðinu eftir tímabilið en hann bara því miður náði ekki að kveikja neistann sem þurfti til.
Frá: ónafngreindur 17.8.2010 22:50:54
Zoran Milkovic í brúnna!
Frá: Torfi hb 17.8.2010 23:28:21
Var einu sinni spenntur fyrir honum en svo hefur maður heyrt að hann sé með svo leiðinlegar æfingar o.fl. að allir gefist upp. Og eins og fleiri útlendingar sé ekki að gera sér grein fyrir því að hér eru menn í vinnu með fótboltanum en ekki atvinnumenn. en hann er samt alltaf hérna á klakanum, skrýtið finnst mér!!!
Frá: ónafngreindur aftur 17.8.2010 23:31:58
er það ekki það sem þarf ekki þetta kellinga væl
Frá: fannar 17.8.2010 23:35:21
Ég man eftir að Pétur Pétursson let hafa sér fyrir eitthverju síðan, að hann myndi ekki neita því að taka við ÍA.
Akranes á endalausa röð af gulldrengjum sem flest allir er að nota starfskrafta sína hjá öðrum liðum.
það þarf bara að fara fá eitthvað af þessum mönnum heim til að koma með hefðina aftur í klúbbinn.
án þess að vera skipta mér af þjálfara málum ykkar.
Frá: fannar 17.8.2010 23:43:30
Ég man eftir að Pétur Pétursson let hafa sér fyrir eitthverju síðan, að hann myndi ekki neita því að taka við ÍA.
Akranes á endalausa röð af gulldrengjum sem flest allir er að nota starfskrafta sína hjá öðrum liðum.
það þarf bara að fara fá eitthvað af þessum mönnum heim til að koma með hefðina aftur í klúbbinn.
án þess að vera skipta mér af þjálfara málum ykkar.
Frá: Sigurður Líndal 18.8.2010 01:21:24
Loga ólafsson.. ertu alveg með hvellettuskitu? ég vil Pétur í fullt starf. Hafa yfirumsjón með mfl og 2.flokk.
Frá: Torfi hb 18.8.2010 12:30:19
nei ég er ágætur í maganum takk fyrir að hafa áhyggjur af því!!! Ég hef margoft talað um að fá Pétur og vísa þar í viðtal við hann þar sem hann lýsti yfir áhuga sínum að taka við liðinu. Ókosturinn við hann er reynsluleysi hans í m.fl. , tók við góðu búi hjá Atla Edvalds árið 2000 og svo hrundi allt hjá þeim 2001. Svo náði hann eftirtektarverðum árangri með Keflavík eitt árið. Logi hefur góða reynslu eftir að hafa þjálfað Nördana!!!!!
Frá: Logið hvað 18.8.2010 16:32:27
Loga Ólafsson, alveg klárlega ef stefnan er tekin eitthvað annað en í efstu deild. Logi þó skemmtilegur sé þá er hann stóra ástæðan fyrir því hver staða liðsins er í dag. Logið kastaði t.d. Freyr Bjarnasyni auk fleiri skagamanna sem hefðu geta plummað sig fínt í liðinu á sínum tíma og hóf innflutning á strákum utan af landi sem hann ætlaði síðar að græða á með útflutningi til Noregs.

Mér sýnist á flestu að nú séu menn loksins á réttri leið með liðið, ungir strákar blóðgaðir í sumar sem mun skila sér síðar. Menn verða að sýna þolinmæði og þola það að vera í þessari deild í einhver misseri. Byggja upp til framtíðar og nota þessa flottu aðstöðu til þess að búa til flott lið með strákum sem aldir eru upp almennilega, vissulega þarf að setja smá hörku í strákana, en það kemur ekki ef menn sitja bara og horfa á!

Held að það ætti að gefa Þórði 2-3 ár í viðbót. Það tók sir Ferguson nokkur ár að byggja upp sitt lið, nokkrum sinnum var heitt undir kallinum en hann bjó til mörg flott lið og er enn að!
Frá: Helgi Helga 18.8.2010 22:05:53
Nákvæmlega verum þolinmóðir það kemur til með að skila sér.
Þórð áfram í 2-3 ár. Ungu drengirnir okkar eru að stíga sín fyrstu skref og þurfa smá tíma, verðum flottir eftir nokkur ár með þolinmæði, engar skindilausnir takk.
Frá: Torfi 18.8.2010 22:44:07
Bara svo það sé á hreinu þá fældi Logi ekki Frey í burtu heldur hætti hann eftir að Óli tók við,fyrst lánaður í Skallgrím (árið 2000) og fór svo til Loga í FH tímabilið á eftir. Ég ætla bara að biðja ykkur um það að líkja ekki Þórð og Ferguson saman þeir eiga ekkert sameiginlegt nema vera báðir karlar..
Frá: skaginn 18.8.2010 23:00:03
Frábært hjá Hirti að taka amk eitt tímabil í viðbót. Liðinu sárlega vantar meiri reynslu í bland við yngri strákana.
Frá: Haraldur 19.8.2010 01:10:38
Freyr fór frá okkur til með Loga árið 1999 eftir ða Logi var rekinn héðann.
Torfi varðandi Pétur að þá vill ég benda þér á lið Blika í dag. Þetta er annarflokkurinn hans.
Frá: Skagaskarfur 19.8.2010 13:06:20
Flott mál ef Hjörtur er til að vera næsta tímabil.
Held að réttast væri að semja líka áfram við Gary Martin.
Þótt hann eigi eftir að komast betur inn í leik liðsins að þá er greinilegt að drengurinn getur skorað mörk.

Frá: ÍA fan 20.8.2010 16:15:37
Þetta Blikalið í dag er það sama og vann 3. flokk árið 2005. Þá var Pétur ekki að þjálfa þá.
Góðir þjálfar eru ekki galdramenn, þeir þurfa á almennilegum leikmönnum að halda til að ná árangri. Ef ekki hefði verið fyrir tvíburana, Harald Ingólfs, Sigursteinn Gísla og fleiri hvað hefði orðið um þjálfaraferill Gauja Þóðar?


Nafn:
Netfang:
Svara:

Sláðu inn textann úr myndinni fyrir ofan
Er myndin óskýr? Smelltu hér til að búa til nýja mynd