| Frá: |
ÍA fan |
12.8.2010 21:42:46 |
|
Maður saknar þess mikið að geta ekki séð Skagaliðið spila í sjónvarpinu eða sjá brot úr leikjum á netinu og ég efast um að ég sé einn um það. Þess vegna finnst manni erfitt að meta getu einstakra leikmanna í liðinu. Því langar mig að spyrja þá sem hafa séð liðið oft í sumar hvernig einstakir leikmenn hafa staðið sig? Hverjir hafa valdið vonbrigðum ? Hverjir hafa sýnt batamerki frá því í fyrra? Hverjir eru slakari en í fyrra ?
Hvernig hafa strákar eins og Óli Valur, Guðmundur Böðvar, Ragnar Leósson, Aron Ýmir og Andri Geir staðið sig til þessa?
Hvers vegna fá t.d. Arnþór Ingi, Eggert Kári og Ragnar Þór Gunnarsson ekki fleiri tækifæri í liðinu?
Hefur Igor Pesic eitthvað gagnast liðinu í sumar ?
Hverjir finnst ykkur hafa verið bestu og slökustu menn liðsins í sumar?
|
|