| Frá: |
Eyþór GG |
12.8.2010 10:55:00 |
|
Já stuðið heldur áfram næsti leikur er á morgun Norður á Akureyri gegn mjög skemmtilegu liði þórsara. Þetta er engu að síður leikur sem þarf að vinnast og ég tel að liðið eigi alveg að geta tekið 3.stig úr þessum leik. Spá 2-3 (Martin,Hjörtur, og Lárus Orri).
Svo í næstu viku er heimaleikur gegn Víking Rvk. Það er leikur allt er opið í eða gott sem. Spá 2-1 (Ragnar L, Andri A, Helgi Sig) |
|
| Frá: |
Skagaskarfur |
12.8.2010 21:47:12 |
|
Gífurlega mikilvægur leikur hjá okkur á morgun. Vildi að ég kæmist norður, en svo er ekki.
Nú unnu Fjölnismenn sinn leik, tóku Gróttu 1:0 og eru komnir 5 stigum á undan okkur í 5. sætinu. Var nú að vona að Grótta næði allavega jafntefli.
Verðum að vinna Þór á morgun. Þeir eru með hörkulið og þetta verður ekki auðvelt.
Mín spá er 2:3 . Tökum þrjú stig með okkur heim.
|
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
13.8.2010 02:54:42 |
|
Hefði verið gaman að fara norður, sérstaklega ef Lárus Orri spilar. Enn veik von um að komast upp og leikirnir því mikilvægir. |
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
13.8.2010 02:57:11 |
|
Sé núna, eftir að ég skrifaði fyrri setningar, að Lárus Orri verður ekki með gegn strákunum sem hann þjálfaði árum saman. Það er skiljanlegt.
Vonandi að okkar menn fagni sigri annað kvöld og haldi áfram spennu í þessu. |
|
| Frá: |
stuðningsmaður |
13.8.2010 14:09:07 |
|
Áfram skagamenn! tökum nú Þórsarana og stigin þrjú !
kemst því miður ekki á leikinn í kvöld, þó það hefði nú verið ágætis stemmari að renna norður og kvetja strákana! |
|
| Frá: |
Skagaskarfur |
14.8.2010 17:38:14 |
|
Spá mín var 2:3 fyrir ÍA og þrjú stig tekin með heim.
Ef annaðhvort vítið sem markvörður Þórs varði, eða markið sem Gary Martin skoraði og var dæmt af, þótt löglegt væri (hef ég heyrt). Að þá hefði sú spá gengið svona snyrtilega eftir.
En þetta féll ekki með okkur í dag.
áfram ÍA !! |
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
14.8.2010 23:40:52 |
|
Hér er hægt að sjá myndbrot úr leiknum í gærkvöldi. Þórsarar gera þetta með miklum sóma á vef sínum. Brotið í fyrra vítinu er augljóslega utan teigs. Treysti mér ekki til að dæma um seinna vítið og leyfi dómaranum að njóta vafans. Myndatakan er frá miðju þannig að sjónarhornið á rangstæðuna undir lokin er erfitt, en línuvörðurinn er líka á hlaupum til baka þannig að það er spurning hversu gott hans sjónarhorn er.
http://www.thorsport.is/thorsport/?D10cID=ReadNews&ID=4793&CI=0
|
|
| Frá: |
Rebbi |
16.8.2010 08:58:08 |
|
Sælt veri fólkið, nú er Rebbi kominn heim í kotið eftir ágætis sumarfrí. Rebbi var svo lánsamur að vera staddur á Akureyri þegar við spiluðum við Þór, leikurinn var ágætur af okkar hálfu en það sem stóð uppúr var slakur leikur dómarans og þá er ég ekki að tala um að það hafi hallað á annað liðið, það er með ólíkindum að KSÍ skuli ekki geta fundið dómara sem valda því verkefni sem fyrir þá er lagt. Ekki ætla ég að fara að telja upp mistökin hjá honum en ef einhver vill fá þau þá get ég talið það upp.
Annað sem ég var hissa á, Hjörtur Hjartar mætti á svæðið um leið og ég 30 mín fyrir leik og labbaði sér inn á völl, hitaði upp í smá stund og byrjaði svo leikinn, hann var reyndar ágætur í leiknum og skoraði gott mark, kom sér í fábært færi sem var varið og í heildina ágætur leikur hjá honum.
Garry var frábær og ekki spurning fyrir okkur að reyna að halda honum, Palli markmaður var góður ásamt Heimi Einars sem átti frábæran leik, Aron var frekar slakur og er áhyggju efni hjá okkur hversu slakir drengirnir eru í sendinga getu en það var áberandi hversu slakar sendingar voru á milli manna, Gummi, Ragnar G, Ragnar L, Ísleifur, Aron, Andri J þurfa allir að girða sig í brók varðandi sendingar ef þeir ætla að láta taka sig alvarlega.
Næsti leikur verður strax á morgun en ég kemst því miður ekki á hann og vona að strákarnir verði grimmir í þeim leik eins og á móti Þór.
kveðja úr Borgarfirði
R.Refsson |
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
16.8.2010 10:56:39 |
|
Hjörtur ætlaði að fljúga í leikinn en tók ekki með í reikninginn að slökkviliðsmenn fóru í verkfall og sáu til þess að ekki yrði flogið til Akureyrar eða Húsavíkur. Hann þurfti því að bruna norður samkvæmt því sem kom fram í umsögn Moggans um leikinn. |
|