Spjall
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
Spjall > Fjardabyggðarleikurinn

Frá: Grafarholt 4.3.2010 17:26:47
Gaman væri að heyra hvernig meiðslastaðan er á mönnum. Svo er bara að vinna þennan leik líka
Frá: Sævar 4.3.2010 20:25:39
Það vekur vissar áhyggjur hversu langur meiðslalistinn er! Getur einhver upplýst um hvort þetta séu alvarleg meiðsli? Fer Árni t.d að komast á skrið?

áfram ÍA
Frá: Rebbi 4.3.2010 21:05:38
Góðan og blessaðan daginn. Ekki veit ég hvaða áhyggjur þið hafið á þessum meiðslalista og hvað þá af varnarmönnum, er ekki liðið búið að fá á sig 3 eða fjögur mörk í þessum 10 leikjum í vetur? ekki hef ég svona áhyggjur eins og þið félagarnir.

einn voða bjartsýnn

R.Refsson
Frá: skaginn 5.3.2010 09:30:51
Gaman að sjá hversu góður stígandi er í liðinu. Þegar í alvöruna verður komið í maí reynir fyrst almennilega á menn. Er Stefán Þórðar ekkert á leiðinni á æfingar? Það er mikilvægt að Hjörtur komi sér í gang á ný.

Er menn nokkuð að kikna undan æfingaálagi? Vonandi eru menn ekki að sötra Herbalife eftir æfingar...