Spjall
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
Spjall > ÍA sjónvarp

Frá: Sigurjón 18.6.2010 14:22:01
Ég vil benda fólki á að ÍA sjónvarp verður alla helgina á meðan mótið er. Hægt að smella hér til hliðar á Sjónvarp.

Viðtöl og fleira í boði þar.
Frá: sævar 18.6.2010 14:24:40
Frábært Skagamenn
Frá: Jórunn 18.6.2010 15:18:21
Flott framtak hjá ykkur. Það verður gaman að fylgjast með þessu.
Frá: Magnús Magnússon 18.6.2010 16:33:02
Skemmtilegt framtak Skagamenn. Hvenær koma myndirnar inn? Eru þær settar inn síðdegis eða á ákveðnum tíma?
Frá: Bjöggi 18.6.2010 22:32:23
Sælir, það er búið að setja inn einhver myndbönd sé ég en einungis hægt að horfa á myndband frá æfingu 7.flokks.
Ekki hægt að horfa á hitt sem er víst tekið upp í dag (föstudag)
Frá: katlah 18.6.2010 22:52:42
Það er verið að laga þetta, reynir aftur eftir smá stund.
Frá: Valur 19.6.2010 19:55:41
Ég sé ekkert efni. Kann að vera einhver bilun í kerfinu?
Væri gaman að fá inn viðtöl, myndir af leikjum og falleg mörk.
Frá: ÍA-maður 19.6.2010 21:22:08
Hérna er linkurinn inná myndböndin

http://www.kfia.is/norduralsmot/sjonvarp/fostudagur/

Verið er að klippa saman efni frá Laugardeginum.