|
Kærar þakkir fyrir frábæra helgi ÍA. Vel var staðið að öllu hjá ykkur og skipulagið til fyrirmyndar... foreldrakaffið laugardagskvöldið var líka ótrúlega flott og ég þakka kærlega fyrir mig. Þar pantaði ég mynd af fótboltaliði sonar míns en það gleymdist alveg í öllu fráganginum á sunnudeginum að sækja myndina sem ég borgaði fyrir kvöldið áður. Er einhver leið að nálgast myndina? Það var númer 115 (mynd af Keflavíkurliði, B). Okkur þætti afskaplega vænt um að fá myndina ef það er hægt.
Kær kveðja,
Karólína
|