Spjall
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
Spjall > Kvöldskemmtun

Frá: Helgi 18.6.2011 22:28:30
Fyrst vil ég byrja á að hrósa Skagamönnum fyrir frábært mót og gott skipulag. Þó verð ég að lýsa yfir mikilli furðu með kvöldskemmtunina í kvöld, laugardagskvöld. Að bjóða uppá það að vera að draga út og verðlauna, með GSM símum, þá sem voru niðri í bæ í dag að spila tölvuleiki í versluninni Omnis, finnst mér bara ekki í lagi. Það er lagt uppúr góðri liðsheild og að liðin styðji hvort annað á meðan keppni stendur. Svo er dregið inn í þetta kvöld þessi verðlaunaafhending fyrir þá sem , vissu, einhverra hluta vegna af þessari "tölvuleikjakeppni" niðri í bæ, og þeim afhentir GSM símar. Þetta eru 6-8 ára peyjar!!!. Ég segi bara: Hvaða rugl er þetta?? Hvar var þetta aulýst sem hluti af mótshaldinu?? Ekki sá ég þetta neinstaðar. Ég er ekki að skrifa þetta af neinum sárindum að hafa ekki vitað af þessu, en mér finnst þetta ekki í lagi og vona að þetta hafi allt verið eintóm mistök.
Frá: Gísli Karlsson 18.6.2011 23:14:43
Ég er sammála með að þetta sé búið að vera frábært mót. En það er alveg skelfilegt að veitt séu óviðeigandi verðlaun í leik sem ekki allir hafa kost á að taka þátt í. Símar og startpakkar frá Símanum hafa ekkert erindi til 6-8 ára krakka. Ef svona leikur á að vera ætti hann að vera á mótssvæðinu og verðlaun að tengjast mótinu. Er nokkuð viss um að krakkarnir væru ekki síður sáttir með að fá bolta eða t.d. treyjur í verðlaun. Almennt voru foreldrar mjög hneykslaðir á þessu og mig grunar að það komi nokkrir til með að tjá sig um þetta.

Eins finnst mér að kynnirinn hafi ekki alveg verið með á nótunum þar sem hann var að tala um pressulið og landslið sem mér skilst að hafi verið fellt niður út af óánægju þar sem að mót fyrir þennan aldursflokk á að snúast um gaman en ekki styrkleika og sæti.

Annars hefur þetta mót á allan hátt verið til fyrirmyndar og því finnst manni þetta sorglegt.
Frá: Auður Erla 20.6.2011 12:58:20
Sammála með frábært mót. Var á því í fyrsta sinn og erum við fjölskyldan virkilega ánægð með helgina.
EEEEnn er svo hjartanlega sammála með þessa verðlaunaafhendingu, átti ekki til orð yfir þessu þegar það var farið að afhenda verðlaun fyrir tölvuleikjaspil á fótboltamóti fyrir 6-8 ára börn og hvað þá svona vinninga. Veit að foreldrar í kringum mig voru ansi óánægðir með þetta.
Já svo var kynnirinn einmitt ekki alveg með þetta á hreinu...finnst leiðinlegt að segja það en það hefði örugglega verið skemmtilegra að leika sér á tjaldsvæðinu með börnunum sínum en að mæta á þessa kvöldvöku...
Takk samt enn og aftur...hlakka til að koma að ári...;o)
Frá: Matthías Einarsson 20.6.2011 13:08:30
Sammála ofangreindu. Síðan má kannski splæsa í úr fyrir Ingó Veðurguð. Þetta er þriðja skemmtunin sem ég veit af þar sem hann kemur mætir alltof seint til leiks. En mótið sjálft og allt skipulag í kringum það fær 10 stjörnur af 10.
Frá: Íris 20.6.2011 17:21:24
Allveg sammála að verðlaunin voru óviðeigandi, fyrst og fremst eins og kom hér fram að þeir sem voru ekki með liðinu sínu og voru að spila tölvuleik niður í bæ voru verðlaunaðir og hitt að þessi aldurshópur hefur ekkert með þetta að gera. Hefði mátt eyða þessum pening t.d. í bolta eða annað handa öllum keppendum. Þetta er það eina sem ég heyri í kringum mig að forledrar eru ósáttir við, mótið annars frábært.
Frá: Kristín Margrét Gísladóttir 22.6.2011 12:27:21
Já sæll...hvað var í gangi???
Frábært mót og vel að því staðið og svo var þessi skemmtun alveg af ódýrustu gerð og var engan vegin í takti við allt hitt. Ingó var jú fínn en allt sem viðkemur kynninum og Omnis alveg úr takti eins og skrattinn sjálfur hafði komið uppúr jörðinni í miðjum leik
En vonandi þá verður þetta skráð í "það sem miður fór" bækurnar og þótt að verslanir séu að sponsora eitthvað þá ættu verðlaunin að vera í takt við mótið eins og bolti,skór eða bara ekki neitt