| Frá: |
Sigríður |
18.6.2011 19:30:27 |
|
Sæl/sæll
Er einhver sérstakur staður fyrir óskilamuni hjá ykkur. Töpuðum myndavélinni okkar í dag og vonumst til að einhver góðhjartaður hafi fundið hana
kv.
Sigríður |
|
| Frá: |
Geiri |
18.6.2011 22:02:06 |
|
Allir óskilamunir verða settir í matsal Íþróttamiðstöðvar á meðan á móti stendur. |
|
| Frá: |
Jónas Þórðarson |
19.6.2011 18:02:32 |
|
Sæl Siríður,
Marvin sonur minn fann Canon myndavél í svörtu hulstri og fórum við með hana í íþróttahúsið og þar tók starfskona mótsins við henni.
Vona að þetta sé myndavélin ykkar.
kv, Jónas |
|
| Frá: |
Anna Rós |
19.6.2011 18:28:49 |
|
Hvar getur maður athugað með óskilamuni eftir mótið? Sonur minn týndi strigaskónum sínum, svartir og grænir að innan, með frönskum rennilás nr. 2 (stendur innan í)
|
|
| Frá: |
Þórdís Sv. |
19.6.2011 23:09:58 |
|
Sæl
Gleymdi Cintamani regn/vind jakka í morgun (19 júní), fullorðinsstærð við völl 12.
Hann er ekki í óskilamunum og dettur mér í hug að einhver úr liðunum sem voru að spila við þennan völl í morgun hafi tekið jakann haldið að það væri eitthvert foreldri í þeirra liði sem hafi gleymt honum. Þið sem sjáið þetta frá eftirfarandi liðum þá væri ég þakklát ef það væri athugað í óskilamunum hjá ykkur. Grótta, Víkingur, Þór, FH, KR og Stjarnan. Þetta voru C lið að keppa. |
|
| Frá: |
Snorri |
21.6.2011 13:05:47 |
|
Takk Jónas og Marvin
Það var myndavélin mín með ómetanlegum myndum sem ég endurheimti en hafði eiginlega afskrifað. Takk fyrir að vera skilvís og framúrskarandi heiðarlegur Marvin.
kveðja
Snorri |
|
| Frá: |
Þórdís Sv. |
21.6.2011 22:09:45 |
|
Búin að fá jakkann
Anna Rós það var slatti af strigaskóm í óskilamunum inn í íþróttahúsi eftir mótið á sunnudaginn. Ég myndi bara hafa samband við ÍA og athuga málið.
kveðja
Þórdís |
|