Skráning og verð
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita

Skráning
Skráningar á mótið skal senda í tölvupósti á skraning.norduralsmot@kfia.is.

Tilgreina verður eftirfarandi:
* Nafn félags
* Fjölda þátttakenda
* Fjölda liða (A,B,C,D,E)
* Nafn þjálfara
* Tölvupóstfang þjálfara
* Símanúmer þjálfara
* Nafn tengiliðs (ef annar en þjálfari)
* Tölvupóstfang tengiliðs (ef annar en þjálfari)
* Símanúmer tengiliðs (ef annar en þjálfari)
* Annað sem félag vill koma á framfæri.

Þegar öllum þessum skráningaratriðum hefur verið skilað og staðfestingargjald greitt (sjá hér að neðan) inn þá telst skráningin gild

Staðfestingargjald
Staðfestingargjald er kr.7.000 kr. pr. lið (ekki félag) og þarf að greiða það samhliða  þátttökutilkynningu, (afrit af greiðslukvittun).
Staðfestingargjaldið greiðist inn á reikning  í Íslandsbanka á Akranesi ( 0552-14-400883 ) kt. 500487-1279. Sendið kvittun á skraning.norduralsmot@kfia.is og muna að skrá fyrir hvaða félag er greitt.
Staðfestingargjald verður ekki dregið frá þátttökugjaldi við uppgjör (óafturkræft).

 

Kostnaður við þátttöku
Kostnaður vegna Norðurálsmótsins er kr. 10.000,- pr.keppanda.
Innifalið í verði: Gisting í skólastofu í tvær nætur, kvöldverður á föstudag, morgun-, hádegis- og kvöldverður á laugardag, morgunverður og grillveisla á sunnudag, sundmiðar, kvöldskemmtun o.fl.

Frítt verður fyrir einn fylgdarmann með hverju liði frá hverju félagi. Ef lið óska eftir að fá auka armbönd fyrir fylgdarmenn liðanna, þá verður hægt að kaupa auka armbönd á 4.500 kr. stk. við skráningu liða í upphafi móts.

Greiðsla á þátttökugjaldi þarf að fara fram í síðasta lagi við afhendu armbanda á fararstjórafundi á föstudagsmorgni. Til að flýta fyrir þá er gott ef búið er að leggja upphæðina inn á reikning (sama reikning og fyrir staðfestingargjöld) og framvísa kvittun (t.d. útprentun úr heimabanka)