9. febrúar 2012
Allar upplýsingar um skráningu fyrir mótið í ár
Norðurálsmót 7.flokks karla 2012 á Akranesi
Norðurálsmótið á Akranesi er knattspyrnumót fyrir kraftmikla stráka í 7. flokki, sem koma til að skemmta sér í leik og keppni. Allir þjálfarar, fararstjórar og fjölskyldur keppenda eru velkomnir á Skagann með strákunum.
Norðurálsmótið á Akranesi verður haldið helgina 15.-17.júní 2012. Mótið er sett kl. 11 á föstudagsmorgni og lýkur um kl. 14 á sunnudegi. Á síðasta ári kepptu 144 lið frá 25 félögum og er búist við sama fjölda í ár, en ekki er hægt að stækka mótið frekar. Mótið er aðallega ætlað drengjum fæddum á árunum 2004 og 2005.
Skráning
Félög skulu skrá liðin á mótið með því að senda inn skráningarupplýsingar og greiða skráningargjald. Þegar þetta er bæði uppfyllt, er skráningin orðin gild. Um forgangsröðun gildir sú regla að fyrstur kemur (gild skráning), fyrstur fær, á meðan pláss er á mótinu.
Skráning hefst 1.mars 2012. Hún fram í gegnum heimasíðu mótsins www.kfia.is/norduralsmot/ eða með því að senda skráningu á netfangið norduralsmot@kfia.is. Hún skal innihalda eftirfarandi upplýsingar:
· Nafn félags
· Fjölda þátttakenda
· Fjölda liða
· Nafn tengiliðs, tölvupóstfang og símanúmer
· Nafn þjálfara, tölvupóstfang og símanúmer
· Annað sem félag vill koma á framfæri
Þegar skráning er orðin gild, fá tengiliðir félaganna staðfestingu á skráningu frá mótsstjórn.
Gjöld sem greiða skal til mótshaldara er skráningargjald fyrir lið og þátttökugjald fyrir keppendur.
Skráningargjald
Skráningargjald er kr. 14.000 fyrir hvert lið (ekki félag).
Gjaldið þarf að greiða samhliða skráningartilkynningu. Skráning er ekki gild fyrr en skráningargjaldið hefur verið greitt. Skráningargjaldið greiðist inn á reikning 0552-14-400883 kt. 500487-1279. Sendið kvittun á netfangið norduralsmot@kfia.is og munið að taka fram fyrir hvaða félag er verið að greiða.
Skráningargjald er óafturkræft og verður ekki dregið frá öðrum greiðslum. Innifalið í skráningargjaldi er matarpakki fyrir 1 liðsstjóra.
Þátttökugjald
Þátttökugjald hvers keppanda á Norðurálsmótið er kr. 11.000.
Innifalið í þátttökugjaldi: Gisting í skólastofu í tvær nætur, kvöldverður á föstudag, morgun-, hádegis- og kvöldverður á laugardag, morgunverður og grillveisla á sunnudag, kvöldskemmtun og viðurkenningar.
Greiðsla á þátttökugjaldi keppenda skal fara fram eigi síðar en 10 dögum fyrir mótssetningu, þ.e. þriðjudaginn 5.júní. Sé gjaldið ekki greitt, verða lið félagsins færð á biðlista og öðrum boðið að nýta plássin þeirra. Hvert félag skal greiða fyrir alla keppendur sína í einni greiðslu.
Félögin fá frítt einn matarpakka fyrir fylgdarmenn með hverju liði. Ef félög óska eftir að fá matarpakka fyrir aðra fylgdarmenn liðanna, þá verður hægt að kaupa þá aukalega á 6.000 kr. hvern matarpakka í upphafi móts.
Til baka
|