Fréttir
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
22. júní 2011

Athugasemdir vegna Kvöldvöku

Það er okkur á Skaganum mjög mikilvægt og við leggjum allt okkar í því að gera Norðurálsmótið eins eftirminnilegt og ánægjulegt eins og nokkur kostur er. Mótið í ár var einstaklega vel heppnað og fóru allir heim með bros á vör og með góðar minningar um ánægjulega og skemmtilega helgi. En alltaf má gera betur og það var eitt sem stóð uppúr hvað það varðar, þ.e. kvöldvakan.

Forsaga málsins er sú að einn af styrktaraðilum mótsins ákvað að halda keppni í hreyfitölvuleik í húsnæði sínu á Akranesi og var hugmyndin sú að þar fengu þeir sem ekki voru að keppa smá afþreyingu og skemmtun. Fyrirtækið óskaði eftir því við mótstjórn að fá að afhenda verðlaun fyrir keppina á kvöldvöku Norðurálsmótsins og við þeirri ósk urðum við, þar sem um einn af styrktaraðilum mótsins var að ræða. Það er skemmst frá því að segja að þar misstigum við okkar verulega og sjáum það nú að svona lagað á alls ekki heima á kvöldvökunni. Ákveðið hefur verið að heimila þetta ekki aftur. En maður lærir svo lengi sem maður lifir og erum við vitrari eftir á í þessu máli.

Með von um skilning ykkar á þessu máli.

f.h. Mótstjórnar

Þórður Guðjónsson

p.s. hlökkum til að sjá ykkur á Skaganum 2012!



Til baka