27. maí 2010
Upplýsingar
NORÐURÁLSMÓT 2010 - UPPLÝSINGABLAÐ
MIKILVÆGAST Norðurálsmótið er mót fyrir byrjendur. Keppendur eru byrjendur, foreldrar eru byrjendur og dómarar eru líka byrjendur. Tökum tillit til þess. Byrjendur þurfa að fá að læra af mistökum. Hjálpumst að, þá gengur allt betur. Föstudagur er notaður til að getuskipta liðum fyrir keppni á laugardegi og sunnudegi. Þjálfarar, liðstjórar og foreldrar verða að fylgjast vel með skráningu úrslita á föstudegi. Niðurröðun fyrir laugardag og sunnudag byggir á úrslitum föstudags. Úrslitin verða að vera rétt skráð. Þeir sem lenda í 1. og 2. sæti á föstudegi spila frá 13:00-17:00 á laugardegi. Þeir sem lenda í 3. og 4. sæti á föstudegi spila frá 9:00-13:00 á laugardegi og síðan spila allir á sunndag kl. 9:00-11:00.
DAGSKRÁ – drög
Föstudagur 18.júní 07:30 Mæting á gististaði 10.30 Fararstjórafundur í Íþróttamiðstöð 11.00 Mæting í skrúðgöngu hjá Bæjarskrifstofum. 11.15 Skrúðganga frá Bæjarskrifstofum að Akraneshöll 12.00 Mótssetning í Akraneshöll 13.00 Keppni í Norðurálsmóti hefst 19.00 Keppni dagsins lýkur 22.30 Fararstjórafundur í Íþróttamiðstöð Laugardagur 19.júní 09.00 Keppni 2.mótdagsins hefst 17.00 Keppni dagsins lýkur 20:00 Kvöldskemmtun inn í Akraneshöll 21.30 Fararstjórafundur í Íþróttamiðstöð 22.00 Foreldrakaffi í íþróttasal, í boði foreldra KFÍA Sunnudagur 20.júní 09.00 Síðasta umferð allra deilda hefst 11.00 Keppni dagsins lýkur 13:00 Verðlaunaafhending og mótsslit í Akraneshöll
HUGARFAR
Fótbolti er skemmtun. Þessi skemmtun skiptir okkur öll máli. Það er sérstök ánægja að geta boðið leikmönnum ykkar að leika gegn liðum frá hinum ýmsu stöðum af landinu. Kennið leikmönnum að endurspegla þessa ánægju í leik og framkomu á Norðurálsmótinu, félagi sínu til framdráttar. Leikmönnum skal kennt að virða ákvörðun dómara án spurninga eða athugasemda. Þetta skal einnig brýna fyrir foreldrum og öðrum aðstandendum liðanna. Þjálfarar skulu alltaf styðja úrskurði dómara leiksins, hvort sem þeir eru réttir eða rangir. Þjálfarar og foreldrar skulu aldrei efast um hæfni dómarans svo leikmenn heyri til. Dómgæslu er hægt að ræða á kvöldfundum með þjálfurum og mótshöldurum. Stundvísi er viðhöfð á Norðurálsmótinu. Foreldrar og stuðningsmenn liða endurspegla þann anda sem er í hverju félagi. Verum okkar félagi til sóma. Norðurálsmótið hefur sínar ákveðnu reglur í leik og umgengni. Engu að síður, þá hefur hvert lið sinn rétt til þess að kvarta og gera athugasemdir við framkvæmd mótsins eða hluta þess. Þetta er réttur hvers félags. Ef þú þarft að nota þennan rétt, gerðu það við réttan aðila. Segðu rétt frá, rólega og virtu ákvörðun mótshaldara, hver svo sem hún verður. Við skulum koma fram fyrir hönd okkar félags með stolti og virðingu sem verður félagi okkar til framdráttar. Allir með í öllum leikjum.
MÓTSREGLUR
1. Leiktími er 2 x 12 mínútur. 2. Í leikjum er aldrei skráður meiri markamunur en 3 mörk. 3. Ef að lið eru jöfn að stigum þá ræður markamunur. Ef að markamunur er jafn þá ræður innbyrðis leikur liðanna. Ef að sá leikur er jafn þá eru þeir hærri sem að hafa fengið færri mörk á sig. Ef það er einnig jafnt þá ræður hlutkesti. 4. Þjálfurum er óheimilt að færa leikmenn á milli liða. 5. Ef tæpt er á mannskap og nauðsynlegt þykir að færa leikmenn á milli liða þá skal sérstaklega sækja um það til mótsstjórnar. 6. Dómari hefur rétt til að fara fram á það við þjálfara að leikmaður sé tekinn af velli ef hann gerist sekur um gróft brot. Annar leikmaður skal þó koma inn á. 7. Við hliðarlínu skulu eigi aðrir vera staðsettir en varamenn, þjálfari og einn fararstjóri. Aðrir skulu vera fjær, nánar tiltekið fyrir aftan mörkin utan merktrar línu. 8. Dómari hefur rétt til að stöðva leikinn en láta klukkuna ganga telji hann að áhorfendur, þjálfarar eða varamenn brjóti reglu númer 7 eða séu uppvísir að ósæmilegri hegðun. Til ósæmilegrar hegðunar telst t.d. óviðeigandi hróp og köll. 9. Góð umgengni er öllum til sóma - verum okkar liðum til sóma. 10. Allir mæta í góðu skapi
FARARSTJÓRAR
Móttaka þátttökugjalda og afhending armbanda verður í bikarherbergi Íþróttamiðstöðvarinnar föstudaginn milli kl. 12:30 og 14:30. Fararstjórafundir verða haldnir í sal á efri hæð Íþróttamiðstöðvarinnar föstudag kl. 10:30, föstudagskvöld kl. 22:30 og laugardag kl. 21:30. Gengið er inn að sunnanverðu frá aðalleikvangi. ALLIR óskilamunir verða settir í Íþróttasal. Úrslit leikja og skipulag eru birt í glugga á mótshúsi á vallarsvæðinu. Mikilvægt er að allir í hverju liði mæti saman í mat. Liðstjórar verða að fylgjast mjög vel með skráningu úrslita á föstudegi og tilkynna strax ef skráning úrslita er röng.
GISTING KEPPENDA
Gisting keppenda er í Grundaskóla og á Vesturgötusvæðinu: í Brekkubæjarskóla og í Íþróttahúsinu þar. Mjög gott er ef lið koma sér fyrir á gististöðum áður en skrúðganga hefst.
STRÆTÓ
Á laugardegi og sunnudegi gengur strætó beina leið á milli mótssvæðis og Vesturgötusvæðis (Brekkubæjarskóli og íþróttahús) eftir þörfum. Á föstudegi gengur hann skv. venjubundinni áætlun sinni um bæinn. Hann stoppar við Íþróttamiðstöð 12 mín yfir heilan og hálfan tíma og við Brekkubæjarskóla 26 mín yfir heilan og hálfan tíma. Frítt er í strætó alla helgina.
MATSALIR
Matur fyrir þáttakendur er framreiddur í íþróttasal Íþróttamiðstöðvar (og morgunverður í Brekkubæjarskóla). Gengið er inn í Íþróttamiðstöðina að norðanverðu.
FYRIR FJÖLSKYLDUR
TJALDSTÆÐI
Opinbert tjaldstæði Akranesbæjar með allri þjónustu er staðsett vestan til í bænum, rétt hjá bensínstöðinni olís. Tjaldstæði fyrir fjölskyldur keppenda er á grasflötum norðan og austan keppendasvæðið. Tjaldstæðið opnar kl. 12:00 fimmtudaginn 17.júní. Þarna verður sett upp snyrtiaðstaða eða kamrar og útiþvottaaðstaða. Ekki er rafmagn á tjaldstæðinu. Verð fyrir dvöl á tjaldsvæði mótsins er 3000 kr. á hvern ferðavagn (tjald/hjólhýsi/fellihýsi/ húsbíl). Ekki er heimilt að tjalda á lóðinni við Grundaskóla. Veitingasala er í Safnaskálanum við Byggðasafnið, og á golfvellinum. Vinsamleg tilmæli eru svo um að gestir á tjaldsvæði virði almennar umgengisreglur og njóti þess að eyða helginni í faðmi fjölskyldunnar og fylgjast með keppni barna sinna án neyslu áfengis.
MATUR
Hægt er að kaupa matarpakka sem gildir í morgunmat, hádegismat og kvöldmat á meðan móti stendur. Matarpakkinn kostar 4.000 kr.og fyrir börn 3.000 kr. Foreldrar geta einnig keypt staka matarmiða og er verð þeirra sem hér segir: Morgunverður: 600 kr., Hádegis- og kvöldverður: 1000 kr. fyrir börn : 700 kr. Matarmiðar og -pakkar eru seldir í matsal á matartímum. Grillveisla fyrir þátttakendur verður við Grundaskóla sunnudaginn kl. 11:00 - 13:00. Foreldrar eru velkomnir og geta keypt miða í grillveisluna sem kostar 600 kr. Miðar eru seldir í sölutjaldi. Foreldrakaffi: Foreldrar allra karla og kvennaflokka ÍA sameinast um að bjóða öllum foreldrum þátttakenda til kaffi- og kökuveislu laugardagskvöldið kl. 22:00. Foreldrakaffið verður í íþróttasal Íþróttamiðstöðvarinnar. Kaffið er eingöngu fyrir foreldra!
BÍLASTÆÐI
Bílastæði verða við Íþróttamiðstöðina og á tjaldsvæðum. Ekki er heimilt að leggja bílum á grasið við keppnisvelli, nota skal stæðin við íþróttamiðstöð. Akbrautin norðan við keppnisvelli verður lokuð fyrir umferð á meðan á móti stendur, utan þjónustubíla mótsins.
UMGENGNI
Reyklaust svæði: Keppnissvæði og gististaðir þátttakenda eru algjörlega reyklaus. Eru foreldrar vinsamlegast beðnir um að virða það.
Til baka
|
|