Spjallið
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita

Staðan 2009 (KSÍ)

Félag Leikir Mörk Stig
1 Selfoss 22 53-26 47
2 Haukar 22 44-28 44
3 HK 22 36-28 36
4 Fjarðabyggð 22 32-33 36
5 KA 22 32-24 35
6 Þór 22 33-35 31
7 Leiknir R. 22 32-33 29
8 ÍR 22 40-46 29
9 ÍA 22 26-27 28
10 Víkingur R. 22 36-34 26
11 Afturelding 22 25-45 16
12 Víkingur Ó. 22 24-54 13
Spjall > ÍA-Grótta

Frá: Brynjólfur Þór Guðmundsson 31.8.2010 17:31:50
Hvernig líst fólki á næsta leik? Grótta er eina liðið sem við höfum unnið með meira en eins marks mun. Eftir þann leik hófst reyndar besti kafli Gróttu á Íslandsmótinu en liðið hefur tapað síðustu tveimur leikjum stórt.

Við erum með þrjá menn í banni, Andri Geir, Arnar Már og Guðmundur Böðvar taka allir út eins leiks bann vegna gulra spjalda. Hefur einhver heyrt hvort Heimir Einars sé orðinn leikfær? Og fáum við Lárus Orra?
Frá: Aðdáandi rebba 31.8.2010 19:28:43
þetta fer pottþétt 1-1 Andri júll með sjálfsmark og Gary martin fyrir okkur.
Frá: Rebbi 31.8.2010 21:30:12
Sniðugur kall ! ég á von á hörku leik þar sem Grótta er að fá marga leikmenn úr leikbanni og verða klárir í þetta verkefni og ekki má gleyma því að gamla kempan Sigurður Helgason er búinn að taka við þjálfarastöðunni að Ásmundi, það eitt gefur mönnum stundum extra kraft.
Ég vona svo innilega að Andri J verði í liðinu og sýni okkur sitt rétta andlit og skori 2 mörk og mér sýnist á öllu að Gary Martin skori eitt á móti slakri vörn Gróttu en við fáum sennilega á okkur eitt þar sem hin ungi Andri Geir verður ekki með og svo er klárt að Þórður áí vandræðum með miðjuna og spurning hvernig hann stillir þar upp.

kveðja úr Borgarfirði
R.Refsson
Frá: Brynjólfur Þór Guðmundsson 31.8.2010 23:14:06
Ragnarök á miðjunni? Ragnar Þór og Ragnar Le. Hugsanlega væri hægt að stilla Gutta þar upp sem reynslubolta. Sjálfur hafði ég voðalega gaman af því þegar Hjörtur fór á miðjuna í leik 2006 og lagði Heimi Guðjóns því sem næst í einelti.
Frá: Torfi 1.9.2010 13:09:44
þetta er ekkert flókið, Hjörtur á að vera í holunni fyrir aftan Gary Martin og Andri Ad og 'Oli Valur/Andri Júl á köntunum. Svo kemur Lárus Orri inní vörnina með Ísleifi ef Heimir er ekki leikfær. Svo bara að vinna þennan fjandans leik og hætta þessu jafntefliskjaftæði!!! 3-1 fyrir ía
Frá: Skagaskarfur 2.9.2010 17:46:15
Við erum vissulega sterkara liðið. En auðvitað getur allt gerst.

Enn eitt jafnteflið til dæmis.. ehrehm... ;=)

En ég spái nú sigri okkar manna og finnst mér ekki ólíklegt að leikurinn fari 2:1 eða 3:1 Gary Martin og Hjörtur með mörkin.

Finnst ekki ólíklegt að við fáum á okkur mark úr föstu leikatriði... hornspyrnu spái ég, enn eina ferðina.
Það var hrikalegt að fá þetta jöfnunarmark á okkur gegn Þrótti...bara skelfilegt.. :/

Frá: Brynjólfur Þór Guðmundsson 4.9.2010 01:10:54
Ég ætla að spá 3-0. Kannski skrýtið að spá að við höldum hreinu í leik með svona mikilli fjarveru góðra leikmanna en hef trú á okkar mönnum.
Frá: Torfi 4.9.2010 15:50:06
Jæja flóðgáttirnar hafa opnast enda kominn tími til og Andri Júl svarar gagnrýnisröddum sem er hið besta mál
Frá: Tiger 4.9.2010 15:58:51
Andri Júll hefur svarað fullum hálsi. Rebba af spjallinu!
Frá: Skagaskarfur 4.9.2010 16:29:29
Þetta var fínasti leikur. Skellti mér á völlinn í þessu leiðinlega veðri og er ánægður með það sem ég sá.
Leikurinn byrjaði reyndar rólega. En fljótlega kom í ljós að það var í raun bara eitt lið á vellinum.
Hvort Grótta hafi átt 1 skot á markið í leiknum og því miður þá kom úr því mark.

En úrslitin 6:1 - Sannfærandi sigur.

Andri stóð sig vel og skoraði þrennu.
Gaman að sjá Hjört Hjartar ná að skora aftur. Hann náði þarna góðri törn um daginn, skoraði ef ég man rétt í 4 eða 5 leikjum í röð, en síðan tók Gary Martin við og ég held að hann hafi verið að skora sitt 5 mark.

Að mínu mati var maður leiksins: Gary Martin.
Sýndi skemmtileg tilþrif (ásamt fleiri leikmönnum reyndar) og mig minnir að hann hafi átt tvær ef ekki þrjár fyrirgjafir sem enduðu með marki, ásamt því að hann skoraði fyrsta markið.

Glæzilegur sigur og náðum 5. sætinu jafnir ÍR að stigum, með 29 stig. En með mun betri markatölu.
Erum með +9 eftir þennan leik á meðan ÍR eru með -4

Næstu tvo leiki eigum við að geta unnið. Spilum við ÍR úti og KA heima. Ef ég man rétt náðum við jafntefli við bæði KA og ÍR, í fyrri leik liðanna.

Taka 6 stig úr næstu tveimur leikjum. Enda mótið með stæl.

Áfram Skaginn !!
Frá: Skagaskarfur 4.9.2010 16:31:24
Hvort Grótta hafi átt 1 skot á markið í fyrri hálflek ....

Átti þetta að vera.

Þeir áttu nú nokkur skot í seinni hálfleik en lítil hætta á ferð, nema í 1 skiptið kannski.
Frá: Bullukall 4.9.2010 16:41:10
þú ert bullukall. Maður leiksin Andri Júll 3 mörk og eitt lagt upp.. blessaður!
Frá: Brynjólfur Þór Guðmundsson 4.9.2010 16:57:12
Fyrsti fimm marka sigurinn í deildarleik síðan 2004 (KA-ÍA 0-5)
Fyrsti sex marka deildarleikurinn síðan 1997 (ÍA-Stjarnan 6-2 og ÍA-Skallagrímur 6-0)
Fyrsta þrennan í deildarleik síðan 2004 ef ég man rétt (Helgi Pétur í Víkingur-ÍA 1-4), þó gæti verið að mér skjátlist.
Frá: Skagaskarfur 4.9.2010 17:02:06
Ja þú kallar sjálfan þig bullukall. Sýnist það eiga vel við.

að fólk sé "bullukall" fyrir að hafa aðra skoðun en þú. Athyglisvert.

Auðvitað stóð Andri sig vel.

Og það er spurningin með mann leiksins, Andri eða Gary. Fannst Gary bara sýna ótrúleg tilþrif á köflum. Þannig að þetta er mín skoðun.
Er það í lagi bullukollur ?
Frá: Gísli 4.9.2010 17:10:29
Það er litið til fleirri hluta en markaskorun þegar maður leiksins er valinn.

Frábær leikur hjá Skaganum í dag.
Frá: Rebbi 4.9.2010 19:31:28
Já nú er Rebbi kominn heim og vel sáttur, Andri J var frábær og stóð svo sannarlega undir væntingum í dag og frábært ef hann spilar svona það sem eftir er að mótinu, Gary var mjög góður og ekki skemmir fyrir að sjá Lárus Orra spila í vörninni.
Það má nú samt segja að liðið sem við spiluðum við í dag var nú ekkert sérstakt og hefði í raun verið skandall að vinna ekki sannfærandi sigur á þeim.
Menn tala um mann leiksins en að mínu mati var það ungur drengur á miðjunni sem átti frábærann dag í dag en það er Ragnar Gunnarsson, Ragnar var mjög góður og kom mér verulega á óvart með gríðarlegri vinnu, Andri J og Gary koma svo sterkir inn sem menn leiksins en sennilega var það liðsheildinn sem vann þennan leik.
Það vakti athyggli mína að ekki langt frá mér sat þjálfari Vestmanneyinga Heimir Hallgrímsson, sennilegat að hann ætli að höggva skarð í leikmannahóp okkar fyrst hann er að þvælast hingað.

Kveðja úr Borgarfirði
R.Refsson
Frá: Gauti 4.9.2010 19:41:48
Skilst að hann hafi verið að skoð Heimi og Gary.
Frá: ÍA fan 4.9.2010 20:09:23
Það hljóta margir klúbbar að vera skoða Martin og ég gæti vel trúað því að hann vilji reyna fyrir sér í betri deild. Það væri bara lúxus fyrir okkur að halda honum.
Hvernig er það annars með þessi leikmannamál? Af hverju er verið að bíða með að endurnýja samninga við þá leikmenn sem verða samningslausir í haust eins og Heimi og Ragnar Þór. Eru það einhverjar reglugerðir sem banna það?
Frá: skagi 4.9.2010 20:28:45
Það verða örugglega mörg lið í úrvalsdeild á eftir okkar mönnum. Nú reynir á þjálfara og stjórn að sannfæra lykilmenn um að vera áfram og svo þarf að styrkja liðið.
Frá: Torfi 4.9.2010 23:45:25
Þetta er hörmung að komast ekki upp og missa þá einhverja góða leikmenn frá sér. Það yrði sannkallaður draumur ef Gary Martin myndi semja við ÍA en því miður ólíklegt. Ef hann hefði verið með frá upphafi þá væri staðan önnur. En ef þeir ætla upp á næsta ári verða þeir að halda lykilmönnum sínum.
Frá: ÍA4EveR! 5.9.2010 00:16:03
Ef við ætlum okkur upp úr þessari 1.deild að þá verðum við að halda okkar lykilmönnum.
Þyrftum jafnvel að styrkja liðið meira fyrir næsta tímabil.

Vona að félagið geri allt til að halda þessum mönnum.
Frá: Bullukarl 5.9.2010 06:21:41
Veit það bara betur en þú skarfur.... Andir er maður leiksins og vertu ekki á annari skoðun, bullukarl
Frá: Skagaskarfur 5.9.2010 14:20:52
Ok Bullukarl.


Nafn:
Netfang:
Svara:

Sláðu inn textann úr myndinni fyrir ofan
Er myndin óskýr? Smelltu hér til að búa til nýja mynd