Spjallið
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita

Staðan 2009 (KSÍ)

Félag Leikir Mörk Stig
1 Selfoss 22 53-26 47
2 Haukar 22 44-28 44
3 HK 22 36-28 36
4 Fjarðabyggð 22 32-33 36
5 KA 22 32-24 35
6 Þór 22 33-35 31
7 Leiknir R. 22 32-33 29
8 ÍR 22 40-46 29
9 ÍA 22 26-27 28
10 Víkingur R. 22 36-34 26
11 Afturelding 22 25-45 16
12 Víkingur Ó. 22 24-54 13
Spjall > Þróttur-ÍA

Frá: Brynjólfur Þór Guðmundsson 24.8.2010 00:05:06
Fjórir leikir eftir og ekki að miklu að keppa. Hvort finnst fólki að Doddi eigi að leggja áherslu á að hala inn stigum til að enda sem efst í deildinni og hugsanlega byggja upp sjálfstraust fyrir seinni tíma eða gefa ungum strákum tækifæri að spila dáldið í meistaraflokki og öðlast reynslu sem þeir búa þá að á næsta ári?
Frá: Rebbi 24.8.2010 07:39:54
Sæll Brynjólfur, ég geri ráð fyrir því að þú hafir séð fleirri leiki en ég á þessu tímabili og þess vegna skil ég ekki þennan pistil hjá þér, vilt þú sem sagt láta Dodda stilla upp gömlu leikmönnunum og reyna að láta þá vinna( sem þeir hafa ekki verið að gera) eða spila ungu strákunum (sem hafa verið að vinna) og nota þá sem einhver tilrauna dýr?

Mín skoðun er skýr í þessu, nota ungu strákana og hvíla þá eldri, þeir eru búnir að sanna fyrir okkur að nú er komið gott.

kv
R.Refsson
Frá: Skagaskarfur 24.8.2010 09:03:02
Þórður hefur verið að leyfa yngri leikmönnum að spila og bæta í reynslubankann.

Held að réttast væri að halda bara áfram á þessari braut út tímabilið.

Væri ljúft að ná 5. sætinu. Hvað þá 4
Frá: ÍA fan 27.8.2010 09:48:46
Ég mundi ekki vera að lesa of mikið í hvaða sæti við lendum. Ég bendi á að toppliðin þrjú í dag Leiknir, Þór og Víkingur enduðu öll fyrir neðan miðja deild í fyrra.
Mér fannst Skagamenn spila ágætlega í fyrri hálfleik í gær. Við fengum allavega sjensa til að klára leikinn þá. Óli Valur og Martin voru sprækir. Þetta datt aðeins niður í seinni, mér fannst áberandi óöryggi í vörninni í leiknum enda mikill forföll þar. Það er algjört lykilatriði að varnarleikurinn komist í lag fyrir næsta sumar. Við þyrftum líka að semja við Martin sem allra fyrst.
Frá: ÍA4EveR! 27.8.2010 12:18:54
ÍA átti að vinna þennan leik.

Hvað höfum við oft verið með unna leiki í höndunum en klúðrað á síðustu mínútunum fyrir leikslok.
Hvað ætli við séum búnir að missa mörg stig svona :Þ

Og hvað höfum við fengið á okkur mörg mörk í hornspyrnum...? 10 mörk? 11 mörk?

Það eru nokkur atriði sem þarf að bæta. Vörnin hefur staðið sig ágætlega í sumar en það eru samt hlutir eins og föstu leikatriðin..

Ef við bætum þessu vandamál og Hjörtur Hjartar og Gary Martin verða hjá okkur næsta tímabil ... hef ég mikla trú á því að við verðum að berjast meðal efstu liða.

Virkilega ánægjulegt að sjá Gary Martin skora í hverjum leik. 4 mörk núna í hvað.. 3 eða 4 leikjum? Hjörtur hrökk í gang þegar við þurftum virkilega á að halda. Skoraði í hverjum leik. Nú virðist bretinn hafa tekið við. Ungu strákarnir mjög efnilegir og hafa heldur betur bætt í reynslubankann á þessu tímabili.

Er bjartsýnn á að ekki sé langt að bíða að ÍA spili í úrvalsdeild innan skamms. Það voru vandræði á leik liðsins en það er verið að bæta þau og er ég handviss um að búið verður að bæta þau fyrir næsta tímabil.

Nota síðustu leikina til að leyfa ungu leikmönnunum að spila áfram. Þeir búa að þessari reynslu á næsta tímabili. Við erum um miðja deild og höfum þannig séð að engu að vinna.

Held að ekkert vit sé í að skipta um þjálfara enn eina ferðina. Halda Hirti Hjartar og Gary og spurning með að fá varnar/miðjumann fyrir næsta tímabil. Kemur í ljós.

ÁFRAM ÍA !!!
Frá: Kostic 27.8.2010 19:44:39
Það er nú nokkrir leikmanna liðsins sem eru einungis ungir, ekki beint efnilegar svona þegar maður tekur ÍA gleraugun niður.
Hvað gérist svo þegar þeir verða 22? fara þeir þá ekki suður og við sitjum uppi með unga drengi enn og aftur ? þá er skollin á önnur uppbygging ??
Við þurfum að setjast niður og vita hvernig við eigum að halda í þessa leikmenn svo hægt sé að taka þetta "uppbyggingarstarf" alvarlega.
Því miður, þegar gleraugun eru tekin niður að þá sér maður að þetta lið á ekki erindi í úrvalsdeild. Einstakir leikmenn eiga það en alls ekki liðið.
Svo spyr ég hvað er verið að setja Andra Adolphs alltaf á bekkinn ? þarna er á ferð efnilegur leikmaður, ekki bara ungur.
Það eru margir steinar sem þarf að velta við og rýna í undirlagið. Ekki vantar mikið uppá.
Afgerandi yfirþjálfara sem sér um þjálfun 2.flokks m.a.
Halda Heimi Einarssyni, svo ekki fari einsog ég gat hér að ofan.
Semja við Gary martin og fá svo miðvörð til að fá smá samkeppni í þetta.
ísleif í vinstri back, þ.e.a.s ef Gutti hættir.
Sá sem spilaði seinasta leik var ekki að heilla mig þær 80 min sem ég sá.
Halda Palla heilum enda hefur hann staðið sig vel drengurinn í sumar.
Þetta er svona punktar sem mig langaði að koma á framfæri.
Frá: Rebbi 27.8.2010 21:21:37
Já sæll, einhvernveginn er ég vissu um að sásem skrifar undir nafninu Kostic sé ekki sá sem hefur spilað fyrir ÍA, ég veit ekki hvað þú ert að spá með þessum skrifum en það er ljóst í þeim leikjum sem ég hef séð í sumar að Andri A er evnilegur leikmaður en klárlega ekki tilbúinn í leiki með fullorðnum mönnum og svo veit ég ekki annað en að hann sé búinn að vera eitthvað meiddur í sumar sem skírir kannski fjarveru hans. Þú talar um að fá miðvörð en vilt halda Heimi, ert þú sem sagt ekki ánægður með una manninn sm hefur spila nánast alla leikina í sumar? Ég hef ekki séð þann sem þú vitnar spila vinstri bakvörði en hef heyrt að hann hafi bara staðið sig ágætlega í þeim leikjum sem hann hefur verið en ég hef aftur á móti séð Ísleif í vinstri bakverði og það lofar ekki góðu, hann hefur spilað ágætlega í miðverði en bakvörður er hann ekki, ég sé reyndar ekki neina ástæðu fyrir Guðjón að hætta en ef hann hættir þá er ég viss um að Þórður notar ekki Ísleif í bakvörð.

Mitt áhyggjuefni er hins vegar að þegar Andri Júlíusson spilar ekki þá virðist liðið spila betur, er það vitleysa eða hvað? hvað ætlar stjórnin og þjálfarinn að gera með leikmenn eins og Guðmund, Ragnar Leóson og Heimi Einars sem allir eru samningslausir núna eftir 1 mánuð?

kv úr Borgarfirði
R.Refsson
Frá: ÍA Fan 27.8.2010 22:38:50
Ragnar le er búinn að skrifa undir. Verður að fylgjast betur með litli rebbalingur!!
Frá: Rebbi 28.8.2010 00:15:19
Gríðalega ánægjulegar fréttir, takk fyrir frábærar fréttir, "you make my day"

kv R.
Frá: Brynjólfur Þór Guðmundsson 28.8.2010 10:29:15
Svona er staðan samkvæmt skráningu á vef KSÍ.

http://www.ksi.is/mot/leikmannasamningar/?felag=300&tegund=%25&kyn=1

Menn með lausa samninga:
Árni Thor Guðmundsson
Björgvin Andri Garðarsson
Gary Martin
Guðjón Heiðar Sveinsson
Guðmundur Böðvar Guðjónsson
Heimir Einarsson
Hjörtur Júlíus Hjartarson
Ísleifur Örn Guðmundsson
Ragnar Þór Gunnarsson


Nafn:
Netfang:
Svara:

Sláðu inn textann úr myndinni fyrir ofan
Er myndin óskýr? Smelltu hér til að búa til nýja mynd