| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
19.8.2010 23:28:22 |
|
Hvernig líst fólki á leikinn annað kvöld (föstudagskvöld)? Verður þetta innlegg ÍA í menningarnótt eða getum við átt von á vandræðum þegar við heimsækjum Suðurnesjamenn?
Við höfum ekki fagnað sigri í síðustu fjórum leikjum. En á móti kemur að mér sýnist Njarðvíkingar hafa tapað síðustu sjö leikjum sínum, þar á meðal nokkrum með miklum mun.
Mér fannst liðið spila ágætlega í síðasta leik, alla vega betur en í Leiknisleiknum þar sem liðið komst ekki almennilega í gang. |
|
| Frá: |
Snorri E |
20.8.2010 01:11:58 |
|
Tap. alveg klárt. |
|
| Frá: |
Eyþór GG |
20.8.2010 12:20:01 |
|
Samkvæmt síðunni hjá Njarðvík þá er frítt á leikinn. Það í boði Norðuráls vegna þess að vígð verður ný stúka |
|
| Frá: |
ÍA fan |
20.8.2010 12:50:16 |
|
Þetta verður ekki auðveldur leikur hvað svo sem stigataflan segir.
Toppliðin þrjú hafa aðeins unnið þarna með einu marki. |
|
| Frá: |
skagi |
20.8.2010 19:27:15 |
|
0-1 fyrir ÍA eftir 9. mín, góð byrjun það. ÞÞ hefur greinilega gert einhverjar breytingar á liðinu. Er ekki rétt að horfa strax til næsta tímabils? |
|
| Frá: |
ÍA fan |
20.8.2010 22:40:06 |
|
Góður sigur í kvöld og merkilegt nokk, við erum núna með besta árangurinn á útivöllum af öllum liðum í deildinni. Nú er bara að halda því áfram og ná hefndum gegn þrótturum í næsta leik. |
|
| Frá: |
einar p |
21.8.2010 13:54:17 |
|
Gary Martin heldur áfram að skora. Núna 2 á móti Njarðvík.
Held að drífa ætti í því að semja við Martin fyrir næsta tímabil.
Einhvernvegin held ég að staðan væri önnur ef við hefðum haft Martin með okkur í byrjun móts.
Það var kallað eftir markaskorurum. Hjörtur Hjartar fór í gang og síðan var liðið styrkt í glugganum.
Held að áríðandi sé að tryggja okkur Martin og Hjört fyrir næsta tímabil. |
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
21.8.2010 17:07:45 |
|
Væri gott að halda í þá báða. Svo væri gott að koma Fannari Frey og Fjalari aðeins inn í meistaraflokkinn á næsta ári. Fjalar skorar og skorar en Fannar hefur víst verið óheppinn með meiðsli en virðist hörkuefnilegur. |
|
| Frá: |
Torfi |
21.8.2010 21:45:19 |
|
Það skyldi þó aldrei vera að áralangri leit okkar að alvöru framherja sé loksins á enda það vona ég að minnsta kosti |
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
22.8.2010 00:33:28 |
|
Bíðum róleg með fagnaðarlæti. Bæði á Gary Martin örugglega eftir að reyna að komast að erlendis og eins verður að hafa í huga að hann er ekki fullnuma leikmaður. Hann er efnilegur og kann ýmislegt fyrir sér en á kannski enn eftir að læra á takmarkanir sínar og að reyna ekki of mikið. |
|
| Frá: |
Rebbi |
22.8.2010 14:29:08 |
|
Ágætu skagamenn, það er að sjá eftir síðustu leiki að ungu strákarnir sem spiluðu í vetur og eru meira og minna að spila síðustu leiki eru að standa sig ágætlega og ættu menn að skoða vel hvar má bæta liðið á næsta tímabili, mín skoðun er sú að menn verða að vera slakir og gefa sér tíma til áframhaldandi uppbyggingar. Síðasti leikur sem ég sá var á Akureyri ogþað var skemmtilegur leikur, ég sé að það voru ungir menn að spila í Njarðvík og þar kom sigur þannig að skilaboðin eru skýr frá ungu strákunum í liðinu til þjálfarans.
Skoðið endilega uppstillinguna á liðinu þegar við vinnum leiki og þegar við töpum, hverjir spila og hverjir eru á bekk, athyggliverðar staðreyndir sem koma þar í ljós þó ekki sé meira sagt.
kulda kveðja úr Borgarfirði
R.Refsson |
|
| Frá: |
ísmaðurinn |
23.8.2010 20:30:17 |
|
Kallaru það uppbyggingu Rebbi að fara úr 3.sæti efstudeildar´i þá stöðu sem við erum í núna ? það er ansi atyglisvert. |
|
| Frá: |
Hannes |
23.8.2010 21:09:01 |
|
Icemen er þetta sami mannskapur í dag og fyrir 3 árum ? Það er líka athyglisvert. |
|