| Frá: |
Skagaskarfur |
6.8.2010 21:29:14 |
|
Leiknir er komið í toppsæti 1. deildar karla eftir að hafa unnið ÍA með einu marki gegn engu á Akranesvelli í kvöld. Kjartan Andri Baldvinsson skoraði eina mark Leiknis beint úr hornspyrnu.
ÍA 0-1 Leiknir:
0-1 Kjartan Andri Baldvinsson
Rautt spjald: Andri Geir Alexandersson, ÍA
---
Fyrsti tapleikur liðsins í langan tíma. Höfum tekið stig úr síðustu sex leikjum. Enda leiðin hefur verið uppávið á töflunni.
Leiknir er hörku lið og er núna á toppnum með 31 stig.
Og það var ekkert sjálfsagt að taka þrjú stig úr leiknum, en við þurftum nauðsynlega á stigum að halda ef möguleiki átti að vera að ná 2. sætinu og upp í úrvalsdeild.
En það lítur ekki vel út núna. |
|
| Frá: |
skagi |
6.8.2010 22:22:09 |
|
Þetta er búið í ár sem eru mikil vonbrigði og óásættanlegt fyrir klúbb eins og ÍA. Liðið er bara ekki nógu gott og þarf mikla styrkingu fyrir næsta tímabil. Allt tal um annað er bara veruleikafirring. |
|
| Frá: |
einar |
6.8.2010 23:01:23 |
|
var ekki á vellinum í þessu leiðindaveðri.
er bretinn frá middlesborough ekkert farinn að sýna.
ÍA styrkti nú einna mest í glugganum. þannig að veruleikafirring eða ekki að þá átti að styrkja í glugganum en lítið sem ekkert er komið út úr því ennþá.
Enda stutt síðan nýjir menn komu og þeir verða að fá að komast inn í spilið.
En jú það þarf að styrkja liðið eitthvað fyrir næsta tímabil.
Held að vonir okkar um að ná öðru sætinu hafi horfið á vellinum í kvöld en við verðum anskotinn hafi það að ná 3-4 sæti.
Og síðan að koma liðinu upp í úrvalsdeildina, þótt spilamennska okkar í dag eigi ekkert erindi þangað.
Ef og þegar liðið kemst í pepsi deildina að þá þarf að eyða peningum í leikmenn.
KOMMON Þetta er stórveldið ÍA !!!!!! ekki eitthvað miðlungs 1. deildar lið, með fullri virðingu fyrir þeirri deild.
En þetta gengur ekki ! |
|
| Frá: |
Hjörvar |
6.8.2010 23:10:19 |
|
Nú er ég aðeins búin að sjá tvo leiki hjá ÍA en fylgst grannt með hinum leikjum þeirra og þeir virðast aldrei ná upp almennilegu spili í leikjum nema í einhverjum 2-3 leikjum. Það vantar sárlega einhvern leiðtoga og vel spilandi miðjumann í þetta lið, ég nefni t.d. Jóa Harðar sem væri góður kostur eða bara einhvern af svipaðri getu. Arnar Már er flottur leikmaður sem berst vel og skorar mörk en hann er ekki í þessum klassa sem Jói, Bjarki Gunnl og Bjarni Guðjóns eru í. Ragnar Leós hefur valdið mér miklum vonbrigðum en ég hélt að hann myndi koma sterkur inn þegar Jón Vilhelm hvarf á braut en maður saknar eiginlega bara Jóns þó hann hefði ekki leyst þetta vandamál. Ég vil prófa Hjört fyrir aftan centerinn og hafa Gary Martin eða annan hvorn Stefáninn frammi. Svo finnst mér bara synd að Arnar sé að spila sitt besta tímabil í úrvalsdeildinni síðan 1995 og er ekki skagatreyjunni sem hann ætti svo sannarlega að vera. Mér finnst bara að Þórð skorti hugmyndir í sóknarleik ÍA og það sérst best að markvarslan er okkar ljósasti punktur þessa dagana enda er Þórður flottur markvarðaþjálfari en hann hefur ekki náð að heilla mig sem aðalþjálfari. |
|
| Frá: |
Gummi |
7.8.2010 05:26:42 |
|
Pétur Pétursson heim núna!!!!! |
|
| Frá: |
Melur |
7.8.2010 08:32:05 |
|
Kalt mat skítalið og ekkert meira um það að segja |
|
| Frá: |
Eyþór GG |
7.8.2010 10:54:44 |
|
það varð tap
Það að ÍA liðið hafi tapað gegn einu sterkasta liði 1.deildar er ekkert svo slæmt sérstaklega þegar liðið missir mann út af stuttu eftir markið. Tímabilið er samt ekki búið enda 21 stig í potti og næsti leikur er gegn Þór AK úti. Það er stórleikur fyrir skagamenn sem og þórsara. Það er því ekki orðið svart ástandið enn sem komið er en það er brúnt. Ég tel að ÍA lendir ekki neðar en 5 sæti í ár en gæti jafnvel tekið annað sætið ef allt spilast eftir því.
Með næsta tímabil þá þarf að fá nokkrar gamlar kempur einsog Bjarka Gunn, Arnar Gunn, Jóa Harðar, Reynir, Habbo, Bjarni og svo fleiri góða og eflaust væri góður kostur að skipta um þjálfara t.d Pétur Pétursson eða jafnvel Óla Þórðar
ÍA ávallt og ævinlega í fremstu röð |
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
7.8.2010 11:38:00 |
|
Okkur vantar ekki gamlar kempur til að taka eitt síðasta tímabil á Skaganum. Okkur vantar lykilmenn til nokkurra ára, meðan flestir leikmenn okkar eru jafn ungir og raun ber vitni.
Við höfum góðan markvörð og efnilegan varamarkvörð. Engin vandamál þar.
Okkur vantar varnarmann sem sópar að. Spurning hvort Heimir geti leyst það hlutverk ef hann sleppur við meiðsl. Ef ekki þurfum við utanaðkomandi varnartröll. Vona þó að þarna getum við byggt innanfrá. Við erum með efnilega stráka í vörninni sem við getum byggt á í framtíðinni.
Okkur vantar leikstjórnanda og leiðtoga á miðjuna. Við erum með góða leikmenn á miðjunni en fullunga og reynslulitla til að þeir ráði við þetta einir. Igor stóð ekki undir væntingum í sumar. Okkur vantar leikreyndan mann sem getur stýrt miðjunni næstu árin þar til strákarnir okkar blómstra. Þennan mann verðum við að fá utanfrá.
Sóknarmaður sem skorar grimmt. Þetta hefur okkur vantað lengi. Hjörtur er að komast í gírinn en verður væntanlega ekki með næsta sumar og ekki næstu árin. Fannar Freyr er efnilegur og ég hef heyrt vel látið af Fjalari hinum unga. Þetta eru samt ekki endilega menn sem við getum treyst á næstu árin sem aðalmarkaskorara. Hér þurfum við utanaðkomandi mann í nokkur ár.
Við erum með fullt af ungum og efnilegum strákum en göngum í gegnum erfiðustu kynslóðaskipti í sögu félagsins, mun erfiðari en í kringum 1990. Efniviðurinn er góður en við þurfum jaxla til að leiða strákana. |
|
| Frá: |
Skagaskarfur |
7.8.2010 20:00:59 |
|
Tek undir flest sem hér kemur fram.
Nema "Melurinn" heldur greinilega að hann sé voðalega sniðugur, setjandi svona bull inn á síðuna. Er greinilega skítagaur sýnist mér.
--
ÍA hefur verið að taka sig saman í andlitinu í síðustu leikjum og eins og komið hefur fram, ekki tapað leik síðan í júní. Og er núna að koma á aðra viku í ágúst þegar liðið tapar leik gegn liði sem núna situr á toppi 1. deildarinnar.
Vorum að spila við hörkulið sem hefur átt mjög gott tímabil í sumar.
1. sæti. Leiknir --Sigur: 10 Jafn: 1 Tap: 4 Stig: 31 Mörk: +11
Það er ekki heimsendir þótt við náðum ekki að sigra í gær. En í þessu leiðinda fótbolta veðri, þar sem eina mark leiksins kom þegar boltinn fauk í netið vegna mótvinds, úr hornspyrnu...?!?!?!
Næsti leikur er 6 stiga leikur líka og við verðum að vinna þann leik. Ég trúi því að við vinnum þann leik 2:1 og Hjörtur setur fyrra markið og bretinn seinna markið.
Liðið er komið á beinu brautina og hefur verið að hala inn stigum í síðustu leikjum. Held að vonleysistal og komment eins og frá Melnum hér fyrir ofan eigi ekki við.
Ekki eins og liðið hefur verið að spila að undanförnu.
Áfram ÍA !!!!!!!!!! |
|
| Frá: |
S.dór |
8.8.2010 00:21:44 |
|
Menn geta farið í kringum getu liðsins eins og köttur í kringum heitan graut. En liðið í dag er bara miðlungs 1.deildar lið. Það gerir engum gott síst leikmönnum að reyna að tala/skrifa liðið upp í það að verða í einhverri baráttu um það að komast uppí efstu deild. Það er ekki að fara að gerast í ár. Já já þið megið kalla mig neikvæðan. Leikurinn í gær er einmitt leikurinn sem verður að vinnast ef liðið ætlar sér einhverja hluti.
Nú er bara að klára þetta mót með sæmd og koma sterkari að ári nógur er efniviðurinn.
Áfram Skagamenn alltaf!!!! |
|
| Frá: |
stuðningsmaður |
9.8.2010 10:04:24 |
|
1. Einar, bretinn getur ekki verið að sýna sig nógu mikið á meðan hann fær ekki hjálp við það.. það hefur of oft verið þannig að hann fær boltann og þá standa hinir í liðinu og bíða; ætla að sjá hvað hann gerir og hvort hann skori ekki.. en það gengur engan vegin. Hann verður að fá meiri hjálp til að geta búið til meira, bæði fyrir sjálfan sig og hina leikmennina.
2. þessi "Melur", eins og hann kallar sig, hefur ekkert með það að gera að vera inná þessu spjalli, greinilega.
3. Sammála Brynjari, við erum með unga, efnilega stráka, sem hafa litla reynslu og þurfum leiðtoga í hópinn, hvort sem það verða einn eða fleiri leiðtogar. Við þurfum einhverja til að leiðbeina þeim og kenna, því þá munu þeir öðlast meiri reynslu og verða betri leikmenn, bæði sem einstaklingar og sem lið.
4. Áfram Skagamenn! Alltaf! |
|
| Frá: |
Skagamaður |
9.8.2010 10:18:42 |
|
Ætla taka það fram að ég hef reyndar ekki séð marga leiki í sumar hjá ÍA, en auðvitað fylgst með svona til hliðar á leikdögum þ.e.a.s beint á netinu. Með fullri virðingu fyrir strákunum í liðinu, þjálfara/um og stjórn félagsins að þá held ég miðað við gengi og stöðu liðsins, væri búið að láta þjálfarann fjúka í einhverjum öðrum klúbbum, eða jafnvel ÍA eins og reyndar áður hefur verið gert (Gaui og Óli). Það er bara einu sinni þannig að þó að hráefnið sé gott en kokkurinn ekki, þá verður rétturinn ekki góður, góð spil á hendi en engir unnir slagir. Mín skoðun er sú að skipta á kallinum í brúnni út, en auðvitað fyrir löngu hefði hann átt að sjá það sjálfur að hann væri ekki að standa sig með liðið og ætti því fyiri löngu að vera búin að stíga til hliðar svo að annar fái tækifæri til að koma skipinu að landi!
Með fullri virðingu fyrir öllum, þá er þetta einungis mín skoðun
Takk |
|
| Frá: |
Stuðningsmaður |
9.8.2010 10:33:02 |
|
Skagamaður: kokkurinn er fínn, málið er að þetta "grænmeti" er ekki orðið nógu þroskað til að geta gert eitthvað með það...
Það er ekki alltaf lausnin að reka þjálfara eftir þjálfara.
Ég hef fulla trú á Þórði og að hann muni koma liðinu upp á hærri stall, hvað varðar spilamennsku og hugarfar ( því það er jú eitt það mikilvægasta sem strákarnir þurfa að hafa; gott hugarfar ) ..
En auðvitað eru einhverjir af þessum strákum eflaust vitleysingar, sem eru kannski bara ekki með nógu mikinn metnað til að fá að vera í þessu liði.
Því miður verð eg að segja að það hneykslar mig að sjá Andra Júl í hvert skipti sem hann (sérstaklega) er í byrjunarliði. Hann getur hlaupið, en reynir einhver óþolandi "trix" sem virka bara ekki!!
En hver hefur sína skoðun á þessu. |
|
| Frá: |
alvöru Stuðningsmaður |
9.8.2010 11:56:37 |
|
Hann átti þátt í öllum skotum skagans í leiknum....
Skot sjálfur frá miðju sem var hættulegast í leiknum..
Lagði á Ragnar með "trixi" sem skaut inni í vítateig
Lagði á Ragnar sem átti skot fyrir utan teig það eru 3 skot af 4 sem Skaginn átti í leiknum, hitt var slök aukaspyrna frá Gary Martiin... |
|
| Frá: |
ÍAfan |
10.8.2010 00:42:29 |
|
Hér er hægt að sjá glefsur úr leiknum!
http://www.youtube.com/watch?v=vUhZvK8ipXE |
|
| Frá: |
einar |
10.8.2010 07:47:28 |
|
stuðningsmaður, það er rétt. afhverju spilaði hann ekki 4-4-2 með Hjört og Bretann frammi.
Nú var bretinn einn frammi á meðan Hjörtur sem hefur btw. skorað í síðustu 4 leikjum.
Það er óraunhæft að henda bretanum einum fram og síðan vona það besta. Hann þarf hjálp. Vona að það hafi komist til skila í þessum leik, sérstaklega þegar litið er til úrslitana. |
|
| Frá: |
einar |
10.8.2010 07:50:30 |
|
[...] skorað í síðustu 4 leikjum sat á bekknum.
átti þarna að standa. |
|
| Frá: |
stuðningsmaður |
10.8.2010 14:09:17 |
|
alvöru stuðningsmaður: hann Andri á sínar mjög góðu rispur og getur hlaupið og hlaupið, en þegar hann fer svo að halda boltanum mikið sjálfur og reyna að sóla og það kannski heppnast eitt, tvö skipti fer hann að láta eins og vitleysingur með boltann og reynir aftur og aftur, og það bara virkar ekki! hann kann ekki að setja línuna þar sem hann á að spila bara öruggt og sleppa þessum einleik.
Það er nú í lagi þegar hann er gráðugur á að halda boltanum sjálfur >nokkrum sinnum<, en þegar það er farið að fara út um þúfur, þyrfti hann að sjá það svolítið sjálfur, að hann ætti bara að sleppa því og spila öruggt svo hann sé ekki að missa boltann svona í andstæðinginn eins og svo oft áður.
Og þessar "hælspyrnur" og þess háttar eru nú alveg út í hött! (líkt og í leiknum á móti Leikni, í seinni hálfleik)
einar; já, sammála því, það hefði verið flott að spila 4-4-2 og láta Hjört og Bretann rúlla þessu svolítið þarna uppi á toppnum. Hjörtur er nú kominn í gang, finnst mér, svo hann yrði líklegast góð hjálparhella Gary, plús það að Gary gæti þá örugglega skorað nokkur mörk, sem og Hjörtur, eins og hann er búinn að vera að gera. |
|
| Frá: |
Magga |
10.8.2010 15:29:08 |
|
Ég verð að segja að vera með Andra Júl þsrna inná er ekki að ganga upp, prufum eitthvað annað. Sem er reyndar búið að prufa, á meðan hann var meiddur þá töpuðum við ekki leik ..... skrítið þá að vera að breyta vinningsliði.
Annað það er búið að prufa allt nema að vera með 2 framherja, skora á Dodda að prufa það. Hjörtur og Gary frammi í næsta leik.
Svo verður að fara að láta Gumma bö hugsa um sína stöðu hann er alltaf út um allann völl og kemur svo með þvílíka hálofta bolta að hálfa væri nóg. Koma svo skagamenn, veit það býr miklu meira í þessu liði en þið eruð að sýna, en þið líka verðið að fara að sýna það.
Áfram ÍA |
|
| Frá: |
stuðningsmaður |
10.8.2010 15:43:48 |
|
verð að segja að ég er alveg sammála Möggu hvað þetta varðar. Góð áskorun á Þórð þjálfara að koma þeim Hirti og Gary upp á topp saman!
og ég tek undir það sem hún skrifar um Andra Júl og Gumma "bö" .. þó mér finnist þeir báðir berjast ágætlega.. |
|
| Frá: |
stuðningsmaður |
10.8.2010 15:53:12 |
|
verð að segja að ég er alveg sammála Möggu hvað þetta varðar. Góð áskorun á Þórð þjálfara að koma þeim Hirti og Gary upp á topp saman!
og ég tek undir það sem hún skrifar um Andra Júl og Gumma "bö" .. þó mér finnist þeir báðir berjast ágætlega.. |
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
10.8.2010 23:25:08 |
|
Hættið þessu skítkasti í Andra Júl. Þið látið sum hver eins og hann sé ástæðan fyrir slöku gengi liðsins síðustu ár. Samt er staðreyndin sú að hann er einn markahæsti leikmaður liðsins (þó það segi því miður ekki voða mikið) og hefur leikið stórt hlutverk í sóknarleik liðsins. Hann getur vissulega dottið í það að reyna of mikið upp á eigin spýtur en hann er ekki eini leikmaður liðsins, og reyndar deildarinnar allrar, sem getur verið mistækur. Hann gerir mun meira gagn en ógagn fyrir liðið, ella væri hann ekki að spila. |
|
| Frá: |
Hugi |
10.8.2010 23:29:25 |
|
Það er nú áður búið að skora á Þórð að stilla upp í 4-4-2, það var alveg upplagt fyrr í sumar að stilla Hirti og Stefáni Erni upp saman í það kerfi. Nú er Stefán ekki lengur í hópnum, er víst farinn út til USA í skóla, en þá er Bretinn auðvitað mættur til leiks. Hins vegar breytir litlu hvort einn eða tveir senterar eru í liði þegar boltinn kemur aldrei fram til þeirra. Það þarf að binda saman vörn og sókn með öflugri miðju, það er búið að vera helsta vandamálið í sumar. Ég myndi vilja sjá Stebba Þórðar á miðjunni í næsta leik, þar er mikil reynsla og mikið keppnisskap, held að hann gæti rifið þetta í gang. Taka bara léttan Óla Þórðar á þetta....koma svo !!! |
|
| Frá: |
Hannes |
11.8.2010 06:22:34 |
|
Eru menn alveg snar. Hafa stebba á miðjuni!
Vill bara hafa Gary og Hjört frammi þegar við sækjum og svo dettur annar þeirra niður fyrir framan miðjuna er við verjumst. |
|
| Frá: |
Hugi |
12.8.2010 15:43:02 |
|
Viltu ekki sjá Stebba Þórðar í liðinu? |
|
| Frá: |
stuðningsmaður |
12.8.2010 16:20:47 |
|
Brynjólfur, þetta er ekkert skítkast og ég er nú ekki að kenna honum um gengi liðsins, HANN er ekki liðið, það eru heilir 10 aðrir leikmenn inni á vellinum með honum. Finnst bara áberandi hversu heimskulega hann spilar stundum.
Og Stebbi Þ á alveg erindi í þessa leiki með ÍA en ekki á miðjunni held ég. |
|