Spjallið
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita

Staðan 2009 (KSÍ)

Félag Leikir Mörk Stig
1 Selfoss 22 53-26 47
2 Haukar 22 44-28 44
3 HK 22 36-28 36
4 Fjarðabyggð 22 32-33 36
5 KA 22 32-24 35
6 Þór 22 33-35 31
7 Leiknir R. 22 32-33 29
8 ÍR 22 40-46 29
9 ÍA 22 26-27 28
10 Víkingur R. 22 36-34 26
11 Afturelding 22 25-45 16
12 Víkingur Ó. 22 24-54 13
Spjall > Nýr framherji og áheit

Frá: Guðni Már 22.7.2010 20:04:29
Var að google Gary Martin og ef hann kemur erum við að tala um dreng með frábært "record". Skorar ríflega í öðrum hverjum leik, ungur og teknískur.

Mikil umræða hefur verið um þá staðreynd að við höfum ekki sömu peninga og Reykjavíkurliðin með sína bakhjarla.

En eitt hafa Skagamenn sem mörgum Pepsi-deildar liðum vantar og það eru stuðningsmenn, það hefur oft gerst í sumar að fleiri hafa verið á Akranesvelli en í úrvalsdeildinni.

Stuðningsmenn, sýnum samtaka mátt í verki, þökkum fyrir góðan liðstyrk með ungu drengjunum og heitum á strákanna, hver krónar bætir samkeppnisstöðu Skagans og setur stjórn og klúbb nær þeim stað sem við viljum vera á. Klúbburinn stendur framar flestum öðrum hvað skuldastöðu varðar en lausafé vantar.

svo væri gaman að sjá tölur um hvað áheitin hafa skilað í sumar.

Gular gleðikveðjur

Guðni Már
Frá: Rebbi 22.7.2010 21:40:22
Já góðu félagar nú er greinilegt að menn eru farnir að finna lykt af Pepsí. Gott mál að styrkja hópinn og vonandi að kappinn standi sig.

kv R. Refsson
Frá: Þórður G. 22.7.2010 21:59:53
Jæja ætlaði að vera búinn að setja þetta hér inn þegar að mótið væri hálfnað. En staðan eftir 12 leiki, 18 mörk og 3 "hrein mörk" er 101.200 kr,-.

Þúsund þakkir fyrir framlagið og munið að margt smátt gerir eitt stórt.

kv
Þórður G.
Frá: S.dór 22.7.2010 23:14:03
Vonandi að nýjí maðurinn nái að hafa af manni nokkra 500 kalla.
Er búin að gera hreint fyrir mínum dyrum og leggja inn fyrir 18 mörkum.
Áfram Skagamenn alltaf!!!!!
Frá: Ragnar Már 23.7.2010 08:00:13
Legg 5000 kall inn vegna leikmannakaupa. Margt smátt gerir eitt stórt, ekki satt félagar.

Áfram ÍA
Frá: Eyþór 23.7.2010 16:47:21
Flott að leggja inn fyrir nýjum leikmönnum og fyrir árangri. Ég hef aldrei lagt inn fyrir þessu en gæti alveg verið líklegur ef mörkin hrynja inn. Nú er Fjarðarbyggð í kvöld og spá fyrir þeim leik er 3-1 og svo er Fjölnir sem er mjög hressandi lið og þar gæti ég alveg trúað 0-2 sigri. Ég hef samt lagt til félagsins upphæð en ef Framherjinn nær að kveikja aðeins í liðinu þá held ég að það gæti orðið ansi dýrt fyrir margan en það er auðvitað þess virði. Ég ætla því að leggja fyrir hverju stigi og svo hverju marki eða markamun eða 4-2 er (plús 2). Enda þarf að verjast
Frá: Grafarholt 23.7.2010 17:17:54
Flott tíðindi og eftir þessu hef ég verið að bíða. Mæti klárlega í kvöld til að sjá "Middlesbro" manninn.


Frá: Brynjólfur Þór Guðmundsson 25.7.2010 20:52:11
Án þess að það skipti nokkru máli í þessu vill svo til að Ujpesti Dozsa, sem Martin lék með síðasta vetur, mætti ÍA í Evrópukeppni 1988. Fyrri leiknum lauk með jafntefli hér heima en seinni leikurinn tapaðist 2-1.
Frá: Þórður G. 27.8.2010 09:44:02
Jæja þá er komið að "up-date" vegna áheitana.

Staðan þann 27.ágúst er 117.700 krónur.
Þökkum þeim sem eru að leggja okkur lið með þessum hætti fyrir.
Skagakveðja
Þórður G.
Frá: Guðni Már 30.8.2010 12:36:28
Góð áminning ég átti eftir að standa við mín orð fyrir ágúst. Vonandi hjálpar þetta við uppbyggingu næsta árs.
Frá: Brynjólfur Þór Guðmundsson 1.9.2010 12:21:59
Gott að vita að það hefur þó þetta safnast. Þó við höfum vonast eftir meira fé.

Ég var kominn í skuld og lagði loks inn í dag.

Munið svo, góðu félagar, að það er aldrei of seint að byrja. Þrír leikir eftir sem fólk getur heitið á.


Nafn:
Netfang:
Svara:

Sláðu inn textann úr myndinni fyrir ofan
Er myndin óskýr? Smelltu hér til að búa til nýja mynd