Spjallið
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita

Staðan 2009 (KSÍ)

Félag Leikir Mörk Stig
1 Selfoss 22 53-26 47
2 Haukar 22 44-28 44
3 HK 22 36-28 36
4 Fjarðabyggð 22 32-33 36
5 KA 22 32-24 35
6 Þór 22 33-35 31
7 Leiknir R. 22 32-33 29
8 ÍR 22 40-46 29
9 ÍA 22 26-27 28
10 Víkingur R. 22 36-34 26
11 Afturelding 22 25-45 16
12 Víkingur Ó. 22 24-54 13
Spjall > KR

Frá: Halli 9.3.2010 10:26:59
Eru ekki einhverjir ungir og efnilegir (en góðir) leikmenn í KR sem myndu vilja spila á Skaganum? Hvernig er með t.d. Davíð Birgisson (senter) og Gunnar Kristjánsson (kantari og senter).
Frá: Þröstur Heiðar 9.3.2010 18:18:02
Við höfum nú ekkert með það að gera að taka að okkur umkomulausa og munaðarlausa uppalda KR inga.

Foreldrahlutverk KR sem klúbbs er til skammar og ég sé ekki af hverju við ættum að hjálpa þeim að þroska þessa stráka þó þeir séu sveltir um leiktíma í Vesturbænum. Þeir myndu bara nota ÍA sem stökkpall og fara svo heim. Það er nóg af ungum skagastrákum hér sem spila með hjartanu fyrir klúbbinn.

Þeir hafa verið þannig gerðir KR ingarnir að þeir myndu kaupa ungan leikmann frá ÍA, frekar en að nota álíka efnilegann KR-ing. Þetta segir sagan.

Hörð orð í garð þeirra en þetta er þeirra ljótasti blettur og landsþekkt. Ég hef heirt að foreldrar í Vesturbænum og alvöru KR ingar séu mjög ósáttir við að enn sé kaupstefnann við lýði. Sérstaklega í ljósi þess að það er kreppa.

Hvaðan er þessi fyrrum nýfrjálshyggjuklúbbur að fá alla þessa peninga í dag ? Þeir sanka að sér leikmönnum. Er Björgólfur ennþá að dæla einhverjum seðlum í batteríið ?

P.S mér er slétt sama þó að þetta slái á viðkvæma strengi einhverra. Þá verða þeir bara að vera sannleikanum sárir.
Frá: Sammála 9.3.2010 22:26:30
Karlmannlega mælt Þröstur og akkúrat málið.

Hefði ekki getað orðað þetta betur. Nú þarf þolinmæði og þor í að byggja upp lið og ég sé ekki betur en þetta sé á góðri leið.
Frá: 300 10.3.2010 23:53:18
Hef nú aldrei verið talsmaður KR, og í raun fyrirlít allt sem kemur frá þessum klúbbi. En verðum við samt ekki að líta þannig á stöðuna að ef það eru einhverjir sem vilja koma og spila með okkur þá verður að skoða það. Sama hvaðan þessir leikmenn koma. Reikna nú samt ekki með því að nokkur einasti ofalinn eða ofmetinn KR-ingur sé að koma og spila með okkur, þeir skulu amk fá að sanna það að þeir séu betri en okkar strákar fyrst.
Frá: Brynjólfur Þór Guðmundsson 12.3.2010 11:07:22
Svona, svona. Það er sama hvaðan gott kemur. Ég var á þeirri skoðun skömmu fyrir mót í fyrra að það væri gott að fá einhverja öfluga stráka að láni til að styrkja liðið. Kannski hafði ég rétt fyrir mér þá. Núna held ég að við þurfum ekki endilega að styrkja liðið frekar en nú þegar er orðið. Strákarnir hafa verið öflugir og við höfum styrkt bæði miðju og sókn frá síðasta sumri. Það styrkir svo varnarleikinn að hafa Palla í markinu frá fyrsta leik og varnarmennirnir verða árinu eldri og reynslunni ríkar. Þannig að ég held að við þurfum ekki sérstaklega á viðbót að halda núna. Vona bara að ég hafi rétt fyrir mér.
Frá: 300+1 13.3.2010 19:40:00
Man nú ekki betur en þið hafið fengið Kristján Finnbogason "lánaðan" frá KR í den.

Síðan kom Steinar Adolfsson úr KR (þó uppalinn sé í Val)

Fyrirlíturðu þá báða?
Frá: Rebbi 13.3.2010 21:27:15
Minni á að Steinar Adolfsson er uppalin héðan af Vesturlandinu þó svo að hann hafi farið á síðasta ári í 3 fl til Vals og hann mun SEINT teljast til KR ings, það get ég fullyrt.

Verð reyndar að setja spurningu við þennan þráð þar sem það er verið að tala um drengi sem hugsanlega myndu koma til ÍA og spila......hvað ætlið þið að gera þegar og ef einhver ungur drengur kemur frá kr og skorar 20 mörk? Bull og vitleysa þessi þráður og menn ættu að skammast sýn fyrir svona bull, ef leikmenn eru nógu góðir til þess að styrkja okkar lið þá eru þeir velkomnir að mínu mati hvort sem þeir eru frá kr eða Val já eða Víkingi Ólafsvík meira að segja.

kv úr Borgarfirði
R.Refsson
Frá: Þröstur 15.3.2010 22:36:58
Rebbi spyr "hvað ætlið þið að gera ef ungur KR ingur skorar 20 mörk fyrir ÍA"

Ég skal svara því Rebbi. Fyrir það fyrsta þá myndi enginn ungur KR ingur skora 20 mörk fyrir ÍA. Ef hann væri svo góður þá væri hann í þeirra liði núna.

Nú og ef ef kraftaverkið myndi ske og 20 marka gullhæna sé að rotna á beknum í Vesturbænum. Fengi svo að verpa hér öllum sínum 20 eggjum. Þá væri það vitað mál að ÍA væri að fara upp í úrvalsdeild án leikmannsins sem kom þeim þangað. Hann myndi kveðja með það sama. En ég myndi líka syrgja spilatímann sem tilvonandi 30 marka skagastrákurinn fékk ekki :

En án alls gríns. Þá snýst þetta ekki um einhver stór EF. Þetta snýst um heiður og stolt og að spila með hjartanu fyrir klúbbinn.

Tugir skagamanna hafa spilað fyrir peningana hjá KR.

Aðeins einn KR ingur hefur spilað fyrir ÍA að mínu viti og staðið sig vel. (Kristján Finnbogason) Hann var náttúrulega í besta knattspyrnuliði sem þetta land hefur alið. Ekki furða að hann stoppaði við.

En ég lít á hann frekar sem undantekninguna sem sannar regluna.

Fyrir mér snýst þetta um það sem KR hefur staðið fyrir undanfarinn ár. Sama hugarfar og kafsilgdi þjóðfélaginu.
Þegar þeir fara að koma frá sér góðum leikmönnum í stað þess að vera ríkar afætur annara klúbba. Þá mun virðing mín á þeim koma á ný.

Það þarf ekki að taka það fram að ég fyrirlít líka Chelsea og Man.City Enda eru svona lið að skapa kreppu í boltanum sem á eftir að springa erlendis. Það er bara tímaspursmál hvenær það skeður.

Þú skalt svo fara varlega Rebbi í að kalla skoðanir annara "bull og vitleysa"

Það fer þér ekki vel að setja sjálfan þig í dómarsæti yfir skoðanaskiptum fólks.

Álit eru álit. Þau eru hvorki rétt né röng. Einungis álit.

Frá: skagahænan 16.3.2010 16:23:33
einn Kr ingur ?

er og var Steinigísla ekki kringur ?

man það reyndar ekki
Frá: Brynjólfur Þór Guðmundsson 16.3.2010 23:42:30
Steini er fæddur og uppalinn á Skaganum. Fór ungur í Vesturbæinn þar sem hann var tvö sumur áður en hann sneri aftur í fallegu gulu treyjuna.
Frá: skaginn 20.3.2010 01:33:51
Ég myndi ekkert segja gegn því að leikmenn einsog Gunnar Kristjánsson myndi spila á skaganum þrátt fyrir að hann sé uppalinn KR-ingar eða einhver annar sterkur leikmaður. Það eru auðvitða margir góðir bitar og meiðslalistinn er langur eða 4-5 lykilmenn eru meiddir og því er alveg í lagi að hafa augun opin fyrir sterkum leikmönnum ef þeir hafa skagahjarta og vilja hjálpa liðinu. Annað er auðvitað með að ÍA er með marga sterka leikmenn sem þurfa tækifæri en gott er að sækja smá reynslu og færni til aðeins eldri leikmanna ef þeir vilja koma á skagann
Frá: Már 20.3.2010 18:32:25
KR ingur með Skagahjarta ?!!! Eru þeir til ?

Þórður er búinn að loka á að fá þennann dreng. Hann sagðist hafa nóg af svipað sterkum strákum. Sem er hárrétt.
Frá: Rebbi 20.3.2010 19:01:32
Takk Þröstur, þú er klárlega skærasta peran í húsinu og skoðanir þína gefa okkur hinum fyrirheit um ljósmagnið, takk aftur.

kv Rebbi.
Frá: Þröstur 21.3.2010 18:12:04
Spjallvefur um knattspyrnu eða bloggið hans Rebba ?

Ég er alveg viss um að fólki er sama hvernig þó hagar þér á þínu bloggi. En hér er álitakerfi.

Ef menn þola ekki skoðanaskipti þá eiga þeir að snúa sér að öðru. Ekki ætla ég að gera þér til geðs að svara þessu með jafn smekklausu andsvari.

Þú setur sjálfan þig niður með því að beina þessu í persónulegan farveg Rebbi. Það væri gáfulegt af þér, að láta hér kyrt lyggja.

Frá: Rebbi 21.3.2010 19:12:05
Sleggju dómur þinní garð leikmanna sem vilja kannski koma hingað er hreint með ólíkindum, þú kannski hefur ekki fylgst með því að það voru leikmenn sem fóru bæði frá Kr og FH sem gengu til liðs við Fjölni og vildu svo ekki snúa til baka þegar Fjölnir komst upp um deild. Með skrifum eins og hjá þér kemur þú sennilega meira í veg fyrir það að leikmenn vilji koma heldur en hitt, verði þinn vilji svo á jörðu.......


Rebbi.
Frá: GG 21.3.2010 20:13:53
Það sem þið nennið að röfla um þetta KR kjaftæði:=) Á köflum mætti halda að þetta væri eitthvert kjötvinnslu-spjall þar sem allir eru fróðir um hjörtu! Einn bara ánægður með það sem hann sér í duglegum og vaxandi ÍA piltum :=)
Frá: Skagakona 23.3.2010 01:55:27
Rebbi er ekki í lagi ?

Þetta er fótboltaspjall og fólk á rétt á skoðunum sínum.
Frá: ÍA rulez 23.3.2010 09:10:37
Sammála Þresti með flest allt. Það er ekki eins og það sé hópur af efnilegum Kr-ingum að spretta upp á hverju ári sem fá sín ekki notið. Við erum að tala um einn og einn leikmann sem síðan snúa aftur til Kr ef þeir geta eitthvað. Þetta er svipað hjá hinum liðunum í Reykjavík og nægir að fara yfir byrjunarliðin hjá Fram og Val til að sjá þetta.

ÍA á að einbeita sér áfram að því sem félagið gerir best; að búa til frábæra knattspyrnumenn úr ungum Skagamönnum. Ef það koma lægðir eins og nú er þá er það okkur hvatning um að gera enn betur.

Föllum ekki í þessar gildrur Reykjavíkurliðanna sem þurfa að treysta á peningagjafir bæjarfélaga eða sykurpabba til að geta skapað sér sinn sess í sögunni. Við gerum þetta best sjálf, ÍA og íslenskri knattspyrnu til heilla.