Spjallið
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita

Staðan 2009 (KSÍ)

Félag Leikir Mörk Stig
1 Selfoss 22 53-26 47
2 Haukar 22 44-28 44
3 HK 22 36-28 36
4 Fjarðabyggð 22 32-33 36
5 KA 22 32-24 35
6 Þór 22 33-35 31
7 Leiknir R. 22 32-33 29
8 ÍR 22 40-46 29
9 ÍA 22 26-27 28
10 Víkingur R. 22 36-34 26
11 Afturelding 22 25-45 16
12 Víkingur Ó. 22 24-54 13
Spjall > Aðalfundur

Frá: Sævar 30.1.2010 21:22:32
Hvenær er hefðbundinn aðalfundur félagsins boðaður?
Frá: Þórður G. 31.1.2010 10:56:11
Sæll Sævar

Viðbótar aðalfundur verður haldinn 11.febrúar.
kv
Þórður G
Frá: sævar 31.1.2010 21:59:38
Gott mál. Vonandi fjölmenna á fund og stilla saman strengi fyrir sumarið. Við þurfum að leggja fram stuðningsmannafjármagn því klúbburinn þarf nauðsynlega á peningum að halda.
Er ekki tilefni til að veita viðurkenningar og heiðursmerki. Frábært hjá stjórn að gera Harald Sturlaugsson að heiðursfélaga. Hann er vel að þeim heiðri kominn og það þó fyrr hefði verið.
Frá: Jóhanna 6.2.2010 21:40:11
Ég má til með að hrósa stjórninni fyrir að heiðra Kjartan Finnnsson og Gísla Einars á herrakvöldinu og getið er um á síðunni. Mér finnst frábært að félagið keyri á jákvæðni og sé ekki spart á hrós og viðurkenningar. Sem dæmi er ótrúlegt að Haraldur Sturlaugsson hafi fyrst fyrir nokkrum dögum verið gerður að heiðursfélaga. Fyrri aðalstjórn gerði gangskör í þessu og fagna ég að ný stjórn skuli halda áfram á sömu braut. Það eru margir fleiri sem eru vel að því komnir að hljóta heiðursmerki félagsins.
Frá: Sigrún Ríkharðs 10.2.2010 23:56:17
Frábært að heiðra þá Gísla og Kjartan. Fyrri stjórn var ítrekað búin að reyna að ná í Harald og heiðra en ekki gengið eftir. Hann er mjög vel að þessum heiðri komin.
Við stuðningsmenn segi ég að við þurfum að fara að hittast og stilla strengi og gera klárt fyrir sumarið.
Frá: Jóhanna 12.2.2010 18:17:20
Frétti að uppgjör félagsins er gott og er það sérstakt fagnaðarefni á krepputímum. Óska okkur öllum til hamingju með þá stöðu.
Á heimasíðunni er ekki getið um verðlaun eða heiðursviðurkenningar. Voru engar slíkar viðurkenningar veittar? Mér finnst vera tilefni til að veita viðurkenningar og bendi ég t.d. á fyrrverandi formann sem er að skila góðu búi og sterkari félagi eftir nokkrar raunir. Einnig mætti nefna marga aðra en ég vildi gjarnan vita af því hverjir fengu viðurkenningu núna. Fjölmargir félagar eru og hafa unnið frábæra vinnu þó árangurinn á vellinum sé ekkert til að hrópa húrra yfir.
Getur einhver upplýst um það?
Frá: sævar 13.2.2010 12:15:35
Tek undir með Jóhönnu.

Áfram ÍA
Frá: Gisli G 13.2.2010 15:37:55
Gott að heyra að styrk staða gelður félganna - en alltaf má betur gera og komandi ár verður ekki síður krefjandi við fjáröflun en hið liðna. Árangurinn er fyrst og fremst fólginn í góðu starfi margra einstaklinga sem eiga allir þakkir skyldar. Á aðalfundinum á fimmtudag voru ekki veittar sérstakar viðurkenningar- en um var að ræða framhaldsaðalfund. Hins vegar er engin spurning ða áfram verður haldið á þeirri braut að veita þeim viðurkenningar sem vel hafa unnið fyrir félagið - þó ekki verði sá siður tekinn upp að veita starfandi stórnarfólki slíkt - sú upphefð kemru síðar till þeirra sem verðskulda.
Ástæða er til að minna á að alltaf er þörf á fúsum höndum til starfa! Árangurinn á vellinum fer vonandi batnandi:=)
Frá: Svavar Jónsson 13.2.2010 15:51:41
Sælir félagar

Sterk fjárhagsleg staða félagsins er mikið fagnaðarefni enda erfiður tími framundan við fjármögnun íþróttafélaga. Viið þurfum að styðja félagið með beinum fjárframlögum og vinnu.
Varðandi viðurkenningar þá er ég sammála þeim sem á undan hafa ritað að alltof sparlega hefur verið farið með orður hjá félaginu. Það er rétt hjá Gísla að margir stjórnarmenn og stuðningsmenn félagsins eru vel að slíku komnir. Fyrri stjórn gerði gangskör í slíku og vil ég hvetja nýja stjórn til að gefa ekki eftir. Slíkt hefði átt að gera á síðasta fundi og öllum aðalfundum hér eftir.
Áfram Skagamenn
Frá: Birkir 14.2.2010 21:40:01
Góð staða félagsins er ánægjuefni en við verðum að gera miklu miklu betur á fótboltavellinum. Að því eiga allir að stefna. Stöndum saman um okkar félag. Söfnum peningum og vinnum fyrir félagið. Margt smátt gerir eitt stórt.
Ég vil einnig taka undir með þeim sem hvetja stjórnina til að fylgja eftir stefnu fyrri aðalstjórnar að veita viðurkenningar. Það er rétt hjá formanni að ekki er eðlilegt að veita starfandi stjórnarmönnum viðurkenningar eins og t.d. fyrrverandi formanni sem hefur unnið gott starf eftr því að ég veit best. Hins vegar er rétt hjá þeim sem á undan skrifa að margir aðrir eru vel að viðurkenningum komnir. Reyndar hef ég ekki sótt aðalfundi þar sem ég er búsettur út á landi en fylgi ÍA í boltanum. Kannski væri gott að setja inn á síðuna lista yfir nöfn þeirra sem hlotið hafa viðurkenningarmerki frá félaginu. Geri ráð fyrir að margir leikmenn, stjórnarmenn og stuðningsmenn hafi fengið heiðursmerki í gegnum árin. Er veitt brons, silfur og gullmerki?

Áfram ÍA
Frá: Gísli G 15.2.2010 10:34:15
Einmitt verið að taka saman lista yfir þá sem hafa fengið viðurkenningar í gegnum tíðina. Því þarf að koma í skarpara form - m.a. með ákveðnum reglum um veitingu viðurkenninga. Hins vegar eru heiðursfélagarnir tilgreindir á heimasíðu félagsins.