Spjallið
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita

Staðan 2009 (KSÍ)

Félag Leikir Mörk Stig
1 Selfoss 22 53-26 47
2 Haukar 22 44-28 44
3 HK 22 36-28 36
4 Fjarðabyggð 22 32-33 36
5 KA 22 32-24 35
6 Þór 22 33-35 31
7 Leiknir R. 22 32-33 29
8 ÍR 22 40-46 29
9 ÍA 22 26-27 28
10 Víkingur R. 22 36-34 26
11 Afturelding 22 25-45 16
12 Víkingur Ó. 22 24-54 13
Spjall > 20-1

Frá: Brynjólfur Þór Guðmundsson 23.1.2010 19:25:48
Heil og sæl

20-1 og þrír sigrar í þremur síðustu æfingaleikjum. Þetta hljómar ekki illa. Og þó ég viti ekki hvernig Eyjaliðið var skipað í dag vantaði alla vega þrjá leikmenn sem má gera ráð fyrir í byrjunarliði úr Skagaliðinu.

Vonandi veit þetta á gott. Sjáum svo til hvort það verði ekki framhald á þessu í Reykjaneshöllinni eftir tvær vikur þegar ég kemst (vonandi) loksins á völlinn.
Frá: Brynjólfur Þór Guðmundsson 23.1.2010 19:32:44
...og þar sem ég gleymdi þessu áðan. Verður Fannar Freyr með okkur næsta sumar? Er hann maður til að styrkja liðið?
Frá: Guðni Már 25.1.2010 19:54:44
Já, þetta veit vonandi á gott, við höfum samt því miður of oft séð fína æfingaleiki en lélega byrjun á Íslandsmóti, vonandi breytist það nú.
20-1 gegn tveimur úrvalsdeildarliðum og einu sem voru í baráttunni við okkur í fyrra eru frábær úrslit.

Þá má þakka stjórninni fyrir gott starf við að styrkja hópinn, Fannar Freyr, Hjörtur Hjartar, Arnar Már og Igor er flottur liðstyrkur.

Jón Vilhelm og Helgi að vísu farnir en heilt yfir held ég að ekkert 1. deildar lið hafi misst jafn fáa og styrkt sig jafn vel frá í fyrra.


Svo er bara að stefna á milljónina í áheitum stuðningsmanna!

kveðja
Guðni Már