| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
5.12.2009 14:28:06 |
|
Heil og sæl
Veit einhver hér hvernig leikurinn fór í morgun? Ég varð að fara þegar enn var um hálftími eftir og staðan 2-2. |
|
| Frá: |
Rebbi |
5.12.2009 15:04:14 |
|
Heyrði að hann hefði farið 3-2 fyrir ÍA sem er gott. |
|
| Frá: |
Skagamaður |
5.12.2009 15:08:42 |
|
Hvernig var liðinu stillt upp? |
|
| Frá: |
Bjarki |
5.12.2009 18:26:28 |
|
Palli
Aon,Heimir,Ísi,gutti
Andri,Gummi,Arnar Már,óli valur
Raggi le
Hjössi |
|
| Frá: |
Steini |
6.12.2009 02:18:13 |
|
Gott að vinna val. Hvernig stóð þessi frá Sauðárkróki ?
Hverjir voru bestir í liðinu í þessum leik ? |
|
| Frá: |
Valgeir valdi |
6.12.2009 03:41:42 |
|
Getur Hjörtur eitthvað er hann ekki bara Feitur og lélegur?? |
|
| Frá: |
Bjarki |
6.12.2009 15:14:15 |
|
sko það sem ég sá að þá vorum við allir sem einn slakir í fyrri hálfleik og vorum þá komnir 0-2 undir. en eftir eldmessu í hálfleik að þá tók liðið við sér og setti strax eitt mark á "valsara" og allt annað að sjá til liðsins, en þá þurfti undirritaður að skella sér í klippingu svo ég veit ekki um rest.
En miðað við það sem eg sá af þessum nýja að þá var hann bara að lofa góðu sko, vantaði kanski smá meiri aðstoð af því sem ég sá.
En mark setti hann og það er vel og það sem skiptir máli ekki satt?
Hjörtur leynir á sér og er seigur þarna frammi valdi. Hann átti þó reyndar betri leik á móti KR.
Held að hann eigi eftir að reynast okkur fínn styrkur. |
|
| Frá: |
Brynjólfur Þór Guðmundsson |
6.12.2009 18:54:30 |
|
Fannar Freyr sneri sér ágætlega með boltann og losnaði þannig við varnarmann af bakinu á sér þegar hann skoraði. Gerði þetta vel. Annars sá ég bara tólf mínútur af leiknum eftir að hann kom inn á og get því ekki dæmt um hann.
Ég spurðist fyrir um hann á spjalli Tindastóls. Þetta er svarið sem ég fékk.
"sæll það er rétt að hann er sonur Gísla sig en hann er líkamlegaterkur leikmaður og skotfastur og á framtíðina fyrir sér ef hann leggur hart að sér"
Svo skoraði hann auðvitað þrennu gegn 2. flokki ÍA í æfingaleik á dögunum. Spurning hvort það sé þannig sem Skagamenn fréttu af honum? |
|
| Frá: |
Þröstur Heiðar Þráinsson |
6.12.2009 21:27:35 |
|
Ætli ég þekki ekki kauða Hann er frændi minn þessi kappi.
Hann tók mig í nefið á síðasta ættarmóti í fótboltaleik þar, svo að ég get ekki annað en mælt með honum. Ég mun þó ná hefndum á næsta ættarmóti. Það er loforð ! (ef hann eða Gísli faðir hans skildur vera að lesa)
Hann er þá líka frændi Arnórs Smárasonar og Andra Júlíussonar.
Ég hefði ekkert á móti því að sjá fleiri frænda spila á Akranesi.
P.s Sunnannmenn rúla ! (einkadjók)
|
|
| Frá: |
Bjarki |
6.12.2009 23:49:21 |
|
Þröstur þú misstir af grimmum stuðningsmannafundi á laugardagsmorgun (vissi ekki hvar ég gæti látið þig vita sorry) |
|
| Frá: |
Þröstur Heiðar Þráinsson |
7.12.2009 02:14:11 |
|
Sendir mér bara sms. Ég er í símaskránni. (ja.is)
Endilega tjekka á mér. Hef oft mikið fyrir stafni en um að gera að reyna tjekka á manni.
|
|
| Frá: |
Bjarki |
7.12.2009 17:00:07 |
|
þa´verður sá næsti bara enn grimmari með þig innanborðs  |
|