21. febrúar 2012
"Ég er kominn heim" -Trefill kominn i sölu
Knatttspyrnufélag ÍA hefur nú hafið sölu á nýjum trefli í tilefni að því að félagið er aftur komið í Efstu deild eða Pepsí-deildina eins og hún er nú kölluð. Hugmyndin á bakvið trefilinn er tvíþætt, annars vegar að fagna endurkomunni í efstu deild og hins vegar til heiðurs leikmönnum félagsins sem lyftu Íslandsmeistaratiltlinum 1951 fyrstir liða utan Reykjavíkur, en liturinn á treflinu er einmitt meira í anda litarblæsins sem var á búningum í þá daga. Á myndinni hér til hægri má sjá Þórð Þórðarson þjálfara með trefilinn góða, það er gaman að segja frá því að nafni hans og afi var einmitt burðarrás í liðinu frækna frá því 1951.
"Ég er kominn heim"-trefill fæst á skrifstofu félagsins og kostar hann 2.500 krónur, einnig er hægt að festa kaup á gripnum í síma 433-1109. Þess er þó rétt að geta að hann mun fylgja með í kaupum hjá þeim sem fjárfesta í Gullmiða fyrir sumarið, en ársmiðasalan hefst nú af fullum krafti nú í næsta mánuði.
Við látum að sjálfsögðu fylgja með slóðina að laginu góða sem hljómar svo undurfagurt á Akranesvelli fyrir heimaleiki félagsins:
http://www.youtube.com/watch?v=pxtdbMPCIQU
Áfram Skagamenn
Til baka
|