Fréttir
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
26. janúar 2012

Stelpurnar standa í ströngu

Meistaraflokkur kvenna hefur staðið í ströngu að undanförnu.  Þær léku nýlega í Faxaflóamótinu gegn liði Álftaness og unni þann leik 3-0 með mörkum Huldu Margrétar, Grétu Stefánsdóttur og Alexöndru Bjarkar.  S.l. laugardag spiluðu stelpurnar síðan við 2. fl. Stjörnunnar og lauk þeim leik með 1-1 jafntefli.  Stjörnustúlkur byrjuðu leikinn með því að skora eftir 20 sekúndur - en Heiðrún Sara jafnaði leikinn í uppbótartíma eftir frábæra sókn Skagastúlkna.  Þrátt fyrir jafntefli þá var Skagaliðið að leika vel.  Á morgun - föstudag - kemur úrvalsdeildarlið KR í heimsókn á Skagann og leikur gegn ÍA kl. 19:15. 

Til baka