Fréttir
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
25. janúar 2012

“Leikurinn gegn Keflavík leggst virkilega vel í mig” segjir Þórður Þ. þjálfari ÍA

 

Skagamenn eiga fyrir höndum leik gegn Keflavík um næstu helgi í fotbolti.net mótinu, en það verður jafnframt síðasti leikur liðsins í riðlinum. Skagamenn eru jafnir Blikum í efsta sæti riðilsins fyrir leiki helgarinnar með 4 stig. Þeir því góða möguleika á að fara áfram í úrslitaleik mótsins vinnist leikur helgarinnar gegn Keflavík.

 

Við heyrðum í Þórði Þórðarsyni þjálfara ÍA og spurðum hann út í leikinn um síðastu helgi gegn Breiðablik, standið almennt á leikmönnum liðsins auk leiksins væntanlega gegn Keflavík á næsta laugardag:

 

“Jú það er rétt við spiluðum þarna gegn Blikunum um síðustu helgi þar sem fyrsti hálftíminn var frekar slappur hjá okkur, við vorum hreinlega ekki bara alveg vaknaðir. Það var síðan jafnræði með liðunum eftir það, við fengum 2-3 sénsa til að setja mörk en að sama skapi fengu þeir sína sénsa líka. Annars var það ánægjulegt að allir leikmenn fengu sinn spiltíma og svo voru nokkrir að koma þarna inn í liðið að nýju eftir talsverða fjarveru. Arnar Már kom inn á og spilaði seinni hálfleikinn, Gummi Bö spilaði 20 mín og Bretarnir Gary og Mark fengu einnig sinn spiltíma svo þetta er allt á réttri leið hjá okkur.”

 

Aðspurður hvernig batinn hjá Heimi Einars gengi sagði Þórður:

“Þróunin hjá Heimi lýtur bara ágætlega út, en undanfarnar 2 vikur hefur hann aðeins verið að sparka í bolta með okkur. Annars tökum við það ferli bara skref fyrir skref og við munum fylgjast vel með gangi mála hjá honum því ef eitthvað klikkar þá verðum við skoða möguleikann á “backup-i” í hans stöðu.”

 

Um næstu helgi eiga Skagamenn leik gegn Keflvíkingum en leikir þessara liða hafa oftar en ekki verið harðar rimmur og í senn hin mesta skemmtun. Þjálfarinn hafði þetta að segja um væntanlegan leik gegn Keflavík:

 

“Leikurinn gegn Keflavík sem leggst bara virkilega vel í mig, þetta hafa yfirleitt alltaf verið hörkuleikir, það fylgir þeim oft smá fætingur eftir “Bjarnarskotið” fræga hér forðum daga. Svo við erum bara fullir tilhlökkunar, ég geri ráð fyrir að þeir leikmenn sem léku með okkur um síðustu helgi fái að spreyta sig aftur um helgina og svo getur vel verið að Garðar Gunnlaugs taki einhverjar mínútur með okkur á laugardaginn.”  sagði Þórður Þ. að lokum.

 



Til baka